Davíð Oddsson býður sig fram til forseta Íslands

Davíð Oddsson ætlar að taka sér frí úr rit­stjóra­stóli Morg­un­blaðs­ins og bjóða sig fram til for­seta. Tapi hann mun Davíð snúa aftur í rit­stjóra­stól­inn.

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, hefur til­kynnt for­seta­fram­boð. Það gerði hann í útvarps­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun, sem var í fyrsta sinn stýrt af Páli Magn­ús­syni, fyrrum útvarps­stjóra. Davíð er fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, for­sætis- og utan­rík­is­ráð­herra og seðla­banka­stjóri.

Davíð segir: „Ég sjálfur er þannig að stór hluti þjóð­ar­innar þekkir mig mjög vel." Þjóðin þekki bæði hans kosti og galla. Ef hann væri fast­eign þá væri hægt að segja að í honum væri ekki að finna neina leynda galla.

Davíð segir að hann búist við því að reynsla hans og þekk­ing, sem sé nokkur, geti fallið vel af þessu starfi. Hann tók ákvörð­un­ina í gær, laug­ar­dag. Davíð segir að hann geti ekki svarað því hvort að ákvörðun Ólafs Ragnars Gríms­sonar um að hætta við að hætta hafi skipt höf­uð­máli. Hann og Ólafur Ragnar hafi þekkst lengi og þótt þeir hafi verið and­stæð­ingar í stjórn­málum þá hafi per­sónu­lega farið ágæt­lega á með þeim alla tíð. Davíð segir að hann hafi ekki kosið Ólaf Ragnar 1996 en að hann og Guðrún Katrín hafi verið glæsi­leg for­seta­hjón.

Kaus ekki Ólaf Ragnar

Davíð segir að hann hafi ekki verið eins ánægður með Ólaf Ragnar á því sem hann kallar „Útrás­ar­skeiðið" en for­set­inn hafi svo gert mjög merki­lega hluti með ákvörðun sinni í Icesave-mál­inu. 2012, þegar að Ólafur Ragnar ákvað að bjóða sig aftur fram, þá skildi Davíð þá ákvörðun. Það hafi verið öryggi að hafa Ólaf Ragnar á Bessa­stöðum á þeim óvissu­tímum, þar sem vinstri stjórnin hefði verið að gera atlögu að stjórn­ar­skránni og að reyna að koma Íslandi inn í Evr­ópu­sam­bandið. Davíð segir að hann hafi ekki kosið Ólaf Ragnar 2012 - hann skil­aði auðu - en segir að ef litið hefði út fyrir að Ólafur Ragnar myndi tapa þá hefði hann kosið hann. Sú staða hafi hins vegar ekki verið uppi nú, þegar Ólafur Ragnar ákvað að bjóða sig aftur fram.

Davíð gengur út frá því að nið­ur­staða vinnu­veit­and­ans í svona kosn­ingum, þjóð­ar­innar, geti orðið sú að velja ein­hvern annan. Davíð telur, þrátt fyrir að vera ekki vanur að tapa kosn­ingum, þá geti hann tapað vel. „Ég mun líta á nið­ur­stöðu kjós­enda sem rétta, hver sem hún er."

Davíð segir að ef hann tapar kosn­ing­unum þá myndi hann snúa aftur í rit­stjóra­stól Morg­un­blaðs­ins. Þar sem hann hafi ein­ungis tekið viku í sum­ar­frí frá því að hann sett­ist í þann stól þá eigi hann mikið sum­ar­leyfi inni. Það sum­ar­leyfi ætli hann að nýta sér nú þegar fyrir liggur að hann ætli að bjóða sig fram til for­seta.

Þarf mann sem forseta sem getur brugðist við

Davíð telur að það hafi verið „absúrd" hjá Ólafi Ragnari að synja fjöl­miðla­lög­unum und­ir­skrift og að í hjarta sínu hljóti hann að vita það. Davíð telur að það sé eina und­an­tekn­ingin sem hægt sé að benda á að for­seti hafi beitt neit­un­ar­valdi sínu óvar­lega. Ólafur Ragnar hefði gert það rétti­lega í Icesave-mál­unum og aðrir for­setar hafi talið sig hafa valdið, þótt þeir hafi ekki notað það.

Davíð telur að það sé ekki verið að leita að manni í for­seta­emb­ættið sem geti sinnt mót­tökum og veislum, heldur manni til að bregð­ast við. For­set­inn sé þarna til að bregð­ast við, alveg eins og læknar á slysa­deild og slökkvi­liðs­menn. „Þarna þurfa að vera menn sem þjóðin veit að geta brugð­ist við." Menn sem þora að taka ákvörðun sem láti engan „rugla" í sér. Þessa eig­in­lega telur Davíð sig hafa og að þeir muni nýt­ast vel.

Davíð telur sig ekki vera mann sem sundrar fólki, þótt hann sé ákveð­inn. Hann rök­styður það með því að þegar hann hætti sem borg­ar­stjóri hafi hann fengið 60 pró­sent atkvæða. Þær kosn­ingar fóru fram árið 1990. Enginn stjórn­mála­maður hefði átt betra með að vinna með and­stæð­ingum sínum en hann sjálfur enda hafi Davíð haldið saman rík­is­stjórn lengur en nokkur annar í sög­unni.

Davíð segir að það sé sann­gjörn spurn­ing að velta fyrir sér hvort að hann sjálfur eða Ólafur Ragnar séu ekki búnir að fylla upp í allt stjórn­mála­legt rúm á Íslandi ára­tugum saman. Hvort þetta sé ekki komið gott. En Davíð telur að það séu ekki aðrir val­kostir. Þingið sé veikt og við svo­leiðis aðstæður væri ekki ráð að velja sér veikan for­seta. „Þá væri þjóðin alveg úti að aka, og ég held að hún sé það ekki."

Ósanngjarnt að Sigmundur Davíð hrökklaðist frá

Að mati Davíðs átti Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son ekki að hrökkl­ast frá með þeim hætti sem hann gerði, í kjöl­far þess að hann var „tek­inn í bak­aríið" af sænskum frétta­manni. Það hafi ekki verið sann­gjarnt gagn­vart Sigmundi Davíð, sem hefði gert margt mjög vel, að hann hrökkl­að­ist frá með þessum hætti. Það hafi verið mikið umhugs­un­ar­efni að rík­is­stjórn með 38 manna meiri­hluta væri nálægt því að hrökkva af hjör­unum. Það sé óvissa víðar. Evr­ópu­sam­bandið sé í upp­lausn, for­seta­fram­bjóð­and­inn Donald Trump sé í Banda­ríkj­unum með mál­flutn­ing sem eng­inn botni í. Því sé mik­il­vægt að ein­hvers­staðar sé hald­reipi.

Það eru ell­efu ár síðan að Davíð hætti í stjórn­málum. Hann lítur ekki á for­setaslag­inn sem stjórn­mála­legan slag, heldur sé hann að spyrja þjóð­ina hvort hún geti notað sig. Eig­in­kona hans hafi ekki verið upp­rifin vegna ákvörð­unar hans um að bjóða sig fram, en muni auð­vitað standa með honum og styðja líkt og hún hafi alltaf gert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár