Samherjamálið og afleiðingar þess í erlendum fjölmiðlum

Meintar mútu­greiðslur Sam­herj­a­manna til áhrifa­manna í namibísku stjórn­kerfi til þess að fá eft­ir­sóttan kvóta þar í landi og afleið­ingar þess hafa ratað í erlenda fjöl­miðla.

Frétt af afsögnum þeirra Bern­hardt Esau, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namib­íu, og Sacky Shang­hala, dóms­mála­ráð­herra lands­ins, er nú komin á vef New York Times en þar er vísað í frétt Reuters um málið. Þar er talað um að afsagn­irnar teng­ist meintri mútu­þægni sem teng­ist íslenska sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­inu Samherja.

[links]Ráð­herr­arnir sögðu af sér í kjöl­far þess að Hage Gein­gob, for­seti Namib­íu, lýsti því yfir að hann ætl­aði sér að reka þá úr rík­is­stjórn­inni. Frá þessu var greint á namibíska frétta­miðl­inum Namibian Sun.

Í gær­kvöldi var opin­ber­að, í ítar­legri umfjöll­un, að hópur sem inn­i­heldur meðal ann­­ars Shangala og Esau hefðu fengið 1,4 millj­arða króna hið minnsta greidda frá Sam­herja á und­an­­förnum árum. Auk þess hefði ráð­herra í Angóla fengið greiðsl­­ur.

Í sér­­­stökum tvö­­­földum Kveiks-­þætti sem sýndur var á RÚV í gær­kvöld kom fram að vís­bend­ingar væru um að þarna væri um mút­u­greiðslur að ræða til að kom­­ast yfir kvóta í land­inu með sem ódýrustum hætti. Umfjöll­unin var unnin í sam­­starfi Kveiks, Stund­­ar­innar, Al Jazeera og Wik­i­­leaks.

Einnig var fjallað um Sam­herj­a­málið í miðlum í Noregi og Svíþjóð í dag og gær þar sem málið er reifað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár