Umræða um ofbeldi í garð grunnskólakennara ekki ný af nálinni

Marga rak í rogastans þegar ég skrif­aði greinar um ofbeldi í garð kenn­ara. Margir þekkja og hafa heyrt af kenn­urum sem hafa orðið fyrir ofbeldi, hót­unum og ógn­andi hegðun af hálfu nem­anda. Í ein­hverjum til­fellum af hendi for­eldra líka. Sumt lít­il­vægi­legt annað alvar­legra, ofbeldi engu að síður. Innan margra grunn­skóla þekkja menn vand­ann. Margir for­eldrar fagna umræð­unni með það fyrir augum að mál­flokk­ur­inn verði rann­sak­aður og leitað lausna. Ofbeldi nem­enda bitnar ekki bara á kenn­ara heldur og öðrum nem­endum eins og Krist­björn Árnason nefndi í sinni grein. For­eldrar vilja aðgerðir ekki síður en kenn­arar. Mála­flokk­ur­inn er við­kvæmur og því stígur fólk ekki fram.

Vinnu­um­hverf­is­nefnd KÍ hefur áður rann­sakað mála­flokk­inn (KÍ, 2017) en ein­hverra hluta vegna virð­ist ekk­ert hafa verið gert með þá nið­ur­stöður, því miður. Nið­ur­staðan þá var slá­andi og er enn. Nú er lag og virð­ast for­menn KÍ og FG ekki ætla að láta sitt eftir liggja, sem er gott.

[adspot]

Formaður KÍ (þá starf­andi kenn­ari) skrif­aði pistli um mál­efnið og í honum segir:

Það var fyrst árið 2010 sem ég man eftir fyrst því að opinberlega hafi verið fjallað um þá viðkvæmu stöðu sem kennarar eru í. Þeir eru beittir ofbeldi. Það er kerfislægt vandamál. Árið 2013 eða 14 man ég að það birtist frétt um að ofbeldi gegn kennurum væri að aukast. Fyrir örfáum vikum birtust svo niðurstöður rannsóknar sem benda til þess að nánast sé um faraldur að ræða – að mörg hundruð kennarar séu beittir ofbeldi á hverju ári. Þetta er bæði andlegt og líkamlegt ofbeldi. Ein tegund ofbeldis hefur ekki verið rædd mikið upphátt. En það eru falskar ásakanir á hendur kennurum um ofbeldi eða áreitni (Ragnar Þór Pétursson, 2017).

Hér vitnar Ragnar Þór til könnun Vinnu­um­hverf­is­nefndar frá 2017 sem birti lýsandi nið­ur­stöður. Í þeirri könnun kemur ber­lega í ljós að við erum engir eft­ir­bátar nor­rænu þjóð­anna í þessum mála­flokki. Um 2200 grunn­skóla­kenn­arar svör­uðu könn­un­inni.

Það er eitt og hálft ár síðan Ragnari Þór þótti ástæða til að ræða mála­flokk­inn. Grein­ar­höf­undur hefur vitnað til nor­rænna rann­sókna í mál­flutn­ingi sínum þar sem við eigum engar rann­sóknir hér á landi (bara kann­anir) og það segir Ragnar Þór líka í sínum pistli. Ofbeldið á Norð­ur­lönd­unum er í kringum 19% og hér bendir Rangar Þór á rann­sókn frá Bret­landi.

Ég veit ekki um tíðni þessara mála hér á landi en í breskri rannsókn kom í ljós að rúmlega fimmtungur allra kennara þar í landi hefur orðið fyrir fölskum ásökunum um alvarlega áreitni eða ofbeldi. Þar í landi er þetta greint sem ein meginorsök þess að reynslumikið fólk hrökklast úr kennslu (Ragnar Þór Pétursson, 2017).

Í greinum mínum hef ég tekið dæmi erlendis frá en bent á að slík til­felli finn­ist hér á landi líka. Tegund ofbeldis nefndi ég í síð­ustu grein byggt á sam­tölum við kenn­arar sem hafa orðið fyrir ofbeldi. Ragnar Þór (2017) virð­ist hafa sömu vit­neskju og ég þegar hann skrif­aði sinn pistil.

Þetta er stórkostlegt vandamál í íslensku skólakerfi líka. Og þetta er mál sem lúrir djúpt í feni þöggunar. Ég var staddur í níu manna hópi kennara um daginn þar sem þessi mál bar á góma. Fjórir höfðu verið ranglega bornir sökum – þar af allir karlarnir þrír. Fyrir ári hitti ég fjóra karlkennara á viðburði. Þeir höfðu allir orðið fyrir ásökunum sem síðan reyndust rangar. Þetta eru allskonar ásakanir.

Þegar kemur að for­eldrum og sam­skiptum við kenn­ara virð­ast þekk­ing okkar Ragnars Þórs vera á sömu nótum. Í einni grein­inni skrif­aði ég um ógn­andi og hót­andi for­eldra sem er annað vanda­mál. Í pistli Ragnars Þórs má lesa:

Þá eru fjölmörg dæmi þess að kennarar séu lagðir í mjög harkalegt einelti af foreldrum. Einn var klagaður til skólastjóra og sagður vera umtalaður í nágrenninu fyrir að ofsækja börn og leggja í einelti. Kennarinn sætti ítarlegri rannsókn sem leiddi í ljós að um fullkomna lygi var að ræða.

Allar ofbeld­istil­kynn­ingar á að rann­saka. Þar til bær yfir­völd vinna að mál­unum, líka þegar börn eiga í hlut. Vissu­lega munu sak­lausir ein­stak­lingar lenda í rann­sókn sem er fórn­ar­kostn­að­ur­inn þegar börn eiga í hlut. Verra er, að ein­stak­lingur sem er hreins­aður af sök fær ekki þá við­ur­kenn­ingu í sam­fé­lag­inu.

Kennarar stíga ekki fram og segja frá ofbeld­inu. Þeir ótt­ast almenn­ings­á­litið því dóm­stóll göt­unnar er óvæg­inn. Kennarar upp­lifa skömm á því að hafa orðið fyrir ofbeldi, hótun eða ógn­andi hegðun af hálfu nem­enda, almenn­ingi finnst það svo ólík­legt. Stað­reyndin er samt sú. Eins og það er mik­il­vægt að ná til fólks sem fer illa með börn, hvort sem það er kenn­ari, for­eldri eða aðrir, verðum við að gæta þess að sak­lausir ein­stak­lingar njóti réttar og fái við­eig­andi aðstoð.

For­maður félags leik­skóla­kenn­ara, Har­aldur F. Gíslason og Ingi­björg Krist­leifs­dóttir skrifa í Skóla­vörð­unni (2013) að lífið væri línu­dans í tenglum við áhorf mynd­ar­innar Jag­t­en. Í þeirri mynd leiddi ímynd­un­ar­afl barns og röng fag­leg nálgun til hörm­unga fyrir karl­kyns leik­skóla­kenn­ara og fjöl­skyldu. Í grein­inni segja þau engan dóm um kyn­ferð­is­legt ofbeldi hafi fallið hér á landi, í tengslum við leik­skól­ann, en við verðum að vera við öllu búin. Talað er um grun, slúður og dóm­stól göt­unnar í því sam­hengi (Har­aldur F. Gíslason og Ingi­björg Krisleifs­dóttir 2013:14).

Á 7. þingi Kenn­ara­sam­bands Íslands, haldið í apríl 2018, ræddi Þor­gerður Dið­riks­dóttir for­maður Félags grunn­skóla­kenn­ara um kenn­ara sem hafa verið ásak­aðir um ofbeldi sem á ekki við rök að styðj­ast. Kenn­ara­sam­bandið, sagði hún, þarf að standa við bakið á félags­mönnum verði þeir fyrir slíkum ásök­unum og ítrek­aði að mála­flokk­ur­inn hafi hangið yfir sam­band­inu eins og skuggi (Þor­gerður L. Dið­riks­dóttir, 2018:35). Tek undir orð for­manns FG og hvet hana til góðra verka í því sam­hengi. Löngu tíma­bært að létta þessum skugga af sam­band­inu með öllum til­tækum ráðum. Rann­sóknin á haust­dögum verður ábyggi­lega gagn­leg í áfram­hald­andi umræðu og lausn­a­leit.

Rannsókn á mála­flokknum er ákveðin í kjöl­far for­sög­unnar og könn­unar sem gerð var í apríl s.l. á vegum Vinnu­um­hverf­is­nefndar KÍ. Fram kom að rúm­lega 800 grunn­skóla­kenn­arar af 1600 sögðu frá ofbeldi af hálfu nem­enda. Könnunin hafði þá ann­marka að ekki var spurt um s.l. 24 mán­uði eins og fyrri könnun og því er um kennslu­feril grunn­skóla­kenn­ara að ræða. Það breytir ekki vand­anum, hann er til staðar.

Hvet kenn­ara og annað starfs­fólk grunn­skóla að til­kynna ofbeldi, and­legt sem lík­am­legt, hót­anir og ógn­andi hegðun sem það verður fyrir. Talna­grunn þarf kenn­ara­stéttin að eiga sem og aðrar stéttir innan grunn­skól­ans.

Höfundur er M.Sc. M.Ed. og starfar sem grunn­skóla­kenn­ari og situr í vinnu­um­hverf­is­nefnd KÍ fyrir hönd grunn­skóla­kenn­ara.

Heim­ildir:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár