Glataði nánast öllu í kakkalakkafaraldri í Laugardalnum

Eliverta Panariti þurfti að flýja íbúð í Laugar­dalnum vegna plágu af kakka­lökkum. Lögráða­maður leigusala heldur leigu­tryggingu hennar eftir þar sem hún skildi mögulega smitaða búslóð eftir.

„Íbúðin er ekki laus við skordýrin, þau eru enn fleiri núna ef eitthvað er. Ég hef gist á hóteli í þrjár nætur. Þú ert að stressa mig og barnið mitt út. Ég vil flytja úr þessari íbúð eins fljótt og hægt er.“

Svona hefjast skilaboð sem Eliverta Panariti sendi lögráða­manni leigusala síns þann 5. júlí síðastliðinn, en fjórum dögum fyrr kom upp kakkalakka­faraldur í íbúð sem hún leigði á 12. hæð í Laugar­dalnum. Hún hefur síðan þá flutt út en fær ekki leigu­tryggingu sína endur­greidda.

Lögráða­maður leigu­salans segir að hún þurfi að rýma íbúðina en Eliverta ber fyrir sig að búslóðin sé ónýt og full af skordýra­eggjum. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem kakka­lakkar fyrir­finnast í blokkinni. Þegar blaða­maður fékk að sjá íbúðina voru enn kakkalakkahræ og lifandi skordýr sjáanleg þrátt fyrir heim­sóknir meindýra­eyða. Líffræðingur og meindýra­eyðir staðfesti að á myndum úr heim­sókninni mætti sjá austræna kakka­lakka, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár