Nýr leiðarvísir loftslagsmeðvitaða þingmannsins

Norð­ur­landa­ráð hefur gefið út leið­ar­vísi Steen Gade fyrir þing­menn sem vilja beita sér í lofts­lags­málum með skil­virk­ari hætti.

Hlýnun jarðar er hnattrænt vandamál sem allar þjóðir heims verða að leysa í sameiningu.
Hlýnun jarðar er hnatt­rænt vanda­mál sem allar þjóðir heims verða að leysa í sam­ein­ingu. Mynd: Úr safni

Út er komin leið­ar­vísir fyrir þing­menn á þjóð­þingum Norð­ur­landa sem vilja láta til sín taka í lofts­lags­málum. Norð­ur­landa­ráð gefur leiða­vís­inn út sem heitir á ensku Clever climate legislation.

Hand­bókin á að und­ir­búa þing­menn um heim allan fyrir mik­il­væg verk­efni svo hægt sé að ná lofts­lags­mark­miðum Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins sem und­ir­ritað var árið 2015.

Steen Gade, danskur stjórn­mála­maður sem átti eitt sinn sæti á danska þing­inu og í Norð­ur­landa­ráði, skrif­aði leið­ar­vís­inn. Þar veitir hann inn­sýn inn í gang­verk alþjóð­legra samn­inga um lofts­lags­mál og kynnir verk­færi sem þing­menn geta not­fært sér til þess að vera með­vit­aðri um lofts­lags­mál.

„Þingmenn um allan heim standa frammi fyrir risa stóru verk­efni,“ er haft eftir Britt Lundberg, for­seti Norð­ur­landa­ráðs, í frétt á vef ráðs­ins. „Verk­efnin snú­ast um að skapa laga­legan ramma og und­ir­stöður fyrir lausnir á lofts­lags­vand­anum. Til þess að heim­ur­inn geti staðið við skuld­bind­ing­arnar sem lýst er í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu þarf vit­ræna og árang­urs­ríka lofts­lags­lög­gjöf.“

[adspot]

Í hand­bók­inni er farið yfir lyk­il­þætti í lofts­lagstefnu Norð­ur­landa, Evrópu og alþjóð­lega stefnu í lofts­lags­málum. Þar eru einnig gefin ráð um það hvernig hægt er að hafa frek­ari áhrif á lofts­lags­stefnu stjórn­valda í hverju landi, til dæmis með því að auka athygli á minni losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá hinum alþjóð­lega flutn­inga­geira, hvort sem það er í loft eða á leigi.

„Þingmenn um allan heim verða að láta rík­is­stjórnir axla ábyrgð á skuld­bind­ingum sínum,“ er haft eftir Bärbel Höhn, fyrr­ver­andi þing­maður og yfir­maður umhverf­is­ráðs þýska sam­bands­þings­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár