Íslandsbanki tapaði 1,4 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins

Virð­is­rýrnun útlána Íslands­banka á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins var nei­kvæð um tæpa 3,5 millj­arða króna og arð­semi eigin fjár hjá bank­anum var nei­kvæð um þrjú pró­sent.

Íslands­banki, sem er að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins, tap­aði 1,4 millj­arði króna á fyrsta árs­fjórð­ungi 2020. Á sama tíma í fyrra hagn­að­ist bank­inn um 2,6 millj­arða króna og því er um fjög­urra millj­arða króna við­snún­ing að ræða milli ára.

Þetta kemur fram í árs­fjórð­ungs­upp­gjöri bank­ans sem birt var í dag.

Þar segir að virð­is­breyt­ingar útlána til við­skipta­vina bank­ans hafi verið nei­kvæðar um tæp­lega 3,5 millj­arða króna og útskýrir það tapið að mestu. Hún var 907 millj­ónir króna á sama tíma í fyrra og hækk­aði því um 2,6 millj­arða króna milli ára. Arðsemi eigin fjár hjá bank­anum var nei­kvæð um þrjú pró­sent.

Virð­is­rýrn­unin á útlánum bank­ans teng­ist að uppi­stöðu lánum sem hann hefur veitt til ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja.

Tap á veltu­bók verð­bréfa og nið­ur­færslna eigna í fjár­fest­ing­ar­bók var 1,7 millj­arðar króna.

Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, segir að rekstr­ar­nið­ur­staðan sé lituð af nei­kvæðri virð­is­rýrnun, tapi á veltu­bók verð­bréfa og nið­ur­færslna eigna í fjár­fest­ing­ar­bók. Arðsemi eigin fjár sé því undir mark­miði sem skýrist af aðstæðum í kjöl­far COVID-19 far­ald­urs­ins sem eigi sér enga hlið­stæðu. „Íslands­banki hefur með hlut­verki sínu að vera hreyfi­afl til góðra verka skuld­bundið sig til að vinna náið með við­skipta­vinum og styðja við þá í þeim áskor­unum sem alheims­far­aldur veldur. Nú þegar hafa aðgerðir eins og tíma­bundin frestun afborg­ana og vaxta af lánum verið kynntar. Rík­is­stjórnin hefur einnig kynnt fjöl­margar aðgerðir sem vinna gegn atvinnu­leysi og tíma­bundnum tekju­missi og munu stuðla að við­spyrnu hag­kerf­is­ins þegar far­ald­ur­inn gengur niður.“

Rekstr­ar­kostn­aður Íslands­banka á fyrsta árs­fjórð­ungi lækk­aði um 8,4 pró­sent á milli ára og vaxta­tekjur juk­ust um 8,1 pró­sent. Ný útlán námu 57 millj­örðum króna og juk­ust um 4,8 pró­sent frá ára­mótum.

Eigið fé Íslands­banka er 179,5 millj­arðar króna og eig­in­fjár­hlut­fallið 22,3 pró­sent. Eignir bank­ans er 1.199 millj­arðar króna og í til­kynn­ingu vegna upp­gjörs­ins kemur fram að end­ur­fjár­mögn­un­ar­þörf bank­ans í erlendri mynt á þessu ári sé nær engin.

Kostn­að­ar­hlut­fall sam­stæð­unnar hækk­aði úr 59,6 í 62,9 pró­sent milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár