Hinir ofurríku verða mjög hratt miklu ríkari...líka á Íslandi

Í nýrri skýrslu mann­úð­ar­sam­tak­anna Oxfam, sem byggir meðal ann­ars á tölum frá Credit Suisse, sem birt var í dag kemur fram að nú sé rík­asta eitt pró­sent fólks í heim­inum orðið rík­ara en öll restin til sam­ans. Á árinu 2015 var staðan þannig að 62 ein­stak­lingar –einum færri en sitja á Alþingi Íslend­inga – áttu sam­tals jafn mik­inn auð og sá helm­ingur mann­kyns sem á minnst, eða sam­tals 3,6 millj­arðar manna.

Á Íslandi er þessi þróun einnig að eiga sér stað. Á árinu 2014 fór helm­ingur alls nýs auðs sem varð til á Íslandi til þess fimmt­ungs lands­manna sem hafði hæstar tekjur. Þær tölur eru likast til van­metnar og lík­lega hefur auður þess hóps vaxið mun meira en þær gefa til kynna. Ýmis gögn styðja það, til dæmis sú stað­reynd að rík­asta eitt pró­sent lands­manna, alls um 1.890 manns, þén­uðu um helm­ing allra fjár­magnstekna sem urðu til á árinu 2014.

62 einstaklingar eiga 229 þúsund milljarða króna

Oxfam hefur um ára­bil gefið úr skýrslu í jan­úar sem sýnir efna­hags­lega mis­skipt­ingu í heim­inum. Megin stef hennar í þetta skiptið er að mis­skipt­ingin hefur náð nán­ast súr­r­eal­ískum hæðum, sem end­ur­spegl­aðst í því að nokkrir tugir ein­stak­linga er orðið rík­ara en helm­ingur mann­kyns sam­an­lagt, og að bilið er að aukast hraðar en jafn­vel svart­sýn­ustu menn áttu von á.

Þessi þröngi hópur ein­stak­linga, alls 62 ein­stak­lingar, hefur aukið auð sinn um 44 pró­sent síðan á árinu 2010. Hann á nú 1,76 þús­und millj­arða dala, eða 229 þús­und millj­arða íslenskra króna. Auður þess­arra 62 ein­stak­linga hefur því vaxið um 65 þús­und millj­arða króna á fimm árum.

Á sama tíma hefur auður þess helm­ings jarð­ar­búa sem á minnst af eignum dreg­ist saman um 41 pró­sent, eða um 130 þús­und millj­arða króna. Þetta eru stjarn­fræði­legar tölur og erfitt fyrir flesta að setja þær í sam­hengi. Það er þó til að mynda hægt að benda á að lands­fram­leiðsla Íslend­inga árið 2014 nam 1.989 millj­örðum króna, eða 0,8 pró­sent af eignum ofan­greindra 62 ein­stak­linga.

Brauðmolakenningin virkar ekki

Í skýrslu Oxfam kemur fram að frá ald­ar­mótum hefur sá helm­ingur jarð­ar­búa sem á minnst fengið til sín um eitt pró­sent af þeim auð sem orðið hefur til á síð­ast­liðnum 15 árum. Helm­ingur þess við­bót­ar­auðs hefur ratað til þess eins pró­sents ein­stak­linga í heim­inum sem eru rík­astir.

Brauð­mola­kenn­ingin, um að aukin auður þeirra rík­ustu hafi jákvæð áhrif á lífs­gæði og auðs­söfnun allra hinna, virð­ist því ekki eiga sér stoð í raun­veru­leik­anum. Skýrslu­höf­undar segja að aukin efna­hags­legur ójöfn­uður grafi undan efna­hags­legri og félags­legri sam­heldni.Áhrif þessa sístækk­andi bils séu sér­stak­lega alvar­leg hjá fátæk­asta fólki heims. Oxfam bendir á að þótt fjöldi heims­búa sem sé undir fátækrar­mörkum hafi dreg­ist saman á tíunda ára­tug síð­ustu aldar, sam­hliða mik­illi aukn­ingu í auð­söfnun þeirra rík­ustu, þá sé það ekki rök­stuðn­ingur fyrir því að brauð­mola­kenn­ingin virki. Samtökin benda á að ef mis­skipt­ing hefði ekki auk­ist á tíunda ára­tugnum þá hefði um 200 millj­ónir manns til við­bótar ekki lent undir fátækrar­mörkum. Ef meiri­hluti þess hag­vaxtar sem varð í heim­inum á tíma­bil­inu hefði lent í vösum fátækra þá hefði fjöldi þeirra sem hefðu getað náð yfir fátækra­mörk vaxið í um 700 millj­ónir.

Málið sé því ein­falt. Stærstu sig­ur­veg­ar­arnir í þeim kapital­íska leik sem leik­inn er í hag­kerfum heims­ins eru rík­ustu þátt­tak­end­urnir í honum.

Misskipting auðs eykst líka hratt á Íslandi

Það er ekki bara út í hinum stóra heimi sem auður hinna ríku er að vaxa hratt. Þótt dregið hafi saman í launa­mun milli stétta hins íslenska sam­fé­lags þá gleym­ist oft að umtals­verður hluti þjóð­ar­innar er alls ekk­ert launa­fólk, heldur eigna­fólk. Það hefur tekjur sínar af því að ávaxta þær eignir og kaupa nýjar, sem geta mögu­lega ávaxt­ast í fram­tíð­inni. Þegar horft er á þann nýja auð sem verður til á Íslandi árlega, út frá þeim tölum sem aðgengi­legar eru opin­ber­lega hér­lendis, kemur í ljós að eign­ar­fólkið er að taka til sinn þorra hans.

Í lok sept­em­ber 2015 greindi Kjarninn frá því að sá fimmt­ungur Íslend­inga sem hafði hæstar tekjur á árinu 2014, alls tæp­lega 40 þús­und manns, jók hreina eign sína um 142,2 millj­arða króna á því ári. Tæpur helm­ingur aukn­ingar á auði íslenskra heim­ila á því ári féll í skaut þessa hóps.

Tekju­hæsta tíund lands­manna, 19.711 manns, sá auð sinn vaxa um 88,2 millj­arða króna á árinu 2014. Á sama tíma óx hrein eign þess helm­ings þjóð­ar­innar sem er með lægstu tekj­urnar, alls um eitt hund­rað þús­und manns, um 72 millj­arða króna, eða 16,2 millj­arða króna minna en rík­asti hluti þjóð­ar­innar.

Ríkasta eitt prósentið þénar helming fjármagnstekna

Kjarninn greindi síðan frá því í nóv­em­ber í fyrra að tekju­hæsta eitt pró­sent lands­manna, alls 1890 manns, þén­aði 42,4 millj­arða króna í fjár­magnstekjur á árinu 2014. Alls námu fjár­magnstekjur sem ein­stak­lingar og sam­skatt­aðir greiddu á því ári 90,5 millj­örðum króna og því fékk þessi litli hópur sam­tals 47 pró­sent þeirra tekna í sinn hlut. Um tvær af hverjum þremur krónum sem rík­asta pró­sent lands­manna þénar er vegna fjár­magnstekna. Þetta má lesa úr stað­tölum skatta vegna árs­ins 2014 sem birtar hafa verið á vef emb­ættis rík­is­skatt­stjóra.

Fjár­magnstekjur eru tekjur sem ein­stak­lingar hafa af fjár­magns­eignum sínum. Þ.e. ekki launum. Þær tekjur geta verið ýmis konar. Til dæmis tekjur af vöxtum af inn­láns­reikn­ingum eða skulda­bréfa­eign, tekjur af útleigu hús­næðis, arð­greiðslur, hækkun á virði hluta­bréfa eða hagn­aður af sölu fast­eigna eða verð­bréfa.

Ljóst er að auður þessa hóps, sem er allra virkastur á Íslandi á verð­bréfa­mark­aði, hefur auk­ist mjög á árinu 2015. Hluta­bréf hækk­uðu nefni­lega gíf­ur­lega í verði á síð­asta ári.

Á árinu 2015 hækk­aði úrvals­vísi­talan, sem er sam­sett af þeim átta félögum sem hafa mestan selj­an­leika á Nasdaq Iceland-hluta­bréfa­mark­aðnum, um 43 pró­sent. Mark­aðsvirði félaga sem skráð eru á mark­að­inn jókst um 340 millj­arða króna, úr 634 millj­örðum króna í 974 millj­arða króna. Ljóst er að góður hluti þeirrar virð­is­aukn­ingar lenti hjá rík­asta pró­senti Íslend­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár