Veðjuðu rauðvínsflösku um hvort ríkisstjórnin myndi sitja út kjörtímabilið

Logi Ein­ars­son heldur að rík­is­stjórnin muni springa áður en kjör­tíma­bilið er búið. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir segir Trump-ás vera orð­inn til í íslenskum stjórn­málum. Hún telur þó að rík­is­stjórnin muni sitja ansi lengi.

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur aldrei haft trú á því að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur muni sitja út kjör­tíma­bilið. „Ég[...]hef enga trú á því að Vinstri græn treysti sér í að fara í kosn­ingar, og starfa í þess­ari rík­is­stjórn fram á síð­ustu stundu. Vegna þess að þau eru að verja mál­stað sem ég trúi ekki að þau trúi á. Ég trúi ekki á það að þau ætli að láta allar byrð­arnar í lægð­inni leggj­ast á veik­ustu hópanna. Ef að það er þá er þessi flokkur minna virði en ég hélt að hann væri.“

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, telur hins vegar að rík­is­stjórnin muni sitja ansi lengi og að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn muni gera allt sem hann getur til að halda henni saman. Það yrði líka mikil nið­ur­læg­ing fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn að enn ein rík­is­stjórnin sem hann situr í næði ekki að sitja út heilt kjör­tíma­bil, líkt og raunin hefur verið með síð­ustu þrjár stjórnir sem flokk­ur­inn hefur átt aðild að. „Ég held að þessi rík­is­stjórn muni sitja lengur og þreyja þorr­ann eins lengi og hún getur.“

Þetta kom fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, við Loga og Þorgerði í þætt­inum 21 á Hring­braut sem sýndur var síð­asta mið­viku­dag. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum, þar sem þau ræða stjórn­mála­á­standið, hér að neðan.

Í þætt­inum er einnig rætt tölu­vert um mögu­lega blokka­myndun innan íslenskra stjórn­mála, í ljósi þess að íslenskt stjórn­mála­á­stand hefur umbreyst á örfáum árum. Nú eru til að mynda átta flokkar á þingi og ómögu­legt að mynda sterka tveggja flokka stjórn, sem var normið í íslenskum stjórn­málum ára­tugum saman.

Logi segir að sér hafi lengi þótt ákjós­an­leg sú til­hugsun að flokkar færu með­vit­aðri og upp­lýst­ari inn í kosn­ingar og gæfu kjós­endum sínum skýr­ari skila­boð um hvað þeir ætli að gera. „Ég tala um Vinstri græn – þó ég gagn­rýni þau í þess­ari rík­is­stjórn – sem mína póli­tísku nágranna. Þau eru það vissu­lega í mörgum málum. Og þau eru miklu nátt­úru­legri sam­starfs­að­ili Sam­fylk­ing­ar­innar heldur en Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Ég held að þessi spenna sem er að hlað­ast upp, og hún mun birt­ast í þriðja orku­pakk­anum, hún mun birt­ast í þung­ung­ar­rofs­mál­inu, kosn­inga­mál­inu, stjórn­ar­skránni, hún mun á end­anum leiða til þess að þetta springur í tætlur og þá fylkja sér auð­vitað saman þeir sem eru nátt­úru­legir banda­menn og geta stjórnað án þess að vera að gera mála­miðl­anir um lægsta sam­nefn­ara.“

[adspot]Þor­gerður Katrín seg­ist að mörgu leyti sam­mála Loga. Hún segir tvo ása vera til staðar í íslenskum stjórn­málum. „Það er frjáls­lyndi-ásinn. Svo er íhaldsami-ásinn, en það má líka kalla hann Trump-ásinn. Hann er birt­ing­ar­mynd þess sem ákveðnir flokkar, eða hópar innan ákveð­inna flokka, vilja standa frammi fyrir. Ég vona að íslenskir kjós­endur fari að átta sig á nákvæm­lega þessu. Það hefur oft verið gaman í póli­tík en þetta eru mjög áhuga­verðir og skemmti­legir tímar.“

Logi segir í þætt­inum að hann telji að það sé miklu meiri áhugi innan Vinstri grænna, jafn­vel innan þing­liðs flokks­ins, að skoða gjald­miðla­málin og velta fyrir sér hvort að Ísland eigi að taka upp nýjan gjald­miðil. „Ég þyk­ist vita það af sam­tölum við þing­menn.“

Þor­gerður Katrín er ekki jafn viss og seg­ist upp­lifa að Vinstri grænum líð ótrú­lega vel í þessu rík­is­stjórn­ar­sam­starfi. „Það er alla­vega þannig að yfir­hönd­ina í Vinstri grænum hefur núna gamli arm­ur­inn.“

Í lok þátt­ar­ins gerðu for­menn­irnir með sér veð­mál um hvort rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur myndi sitja út kjör­tíma­bilið eða ekki. Þar lögðu þau undir góða rauð­víns­flösku og nýja rík­is­stjórn.

Hægt er að sjá þátt­inn í heild sinni hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár