Bæta þarf verklag við veitingu ívilnana og starfsleyfa

Bæta þarf verk­lag og auka kröfur við gerð íviln­un­ar­samn­inga um nýfjár­fest­ingar, mat á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmda og útgáfu starfs­leyfa. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar á kís­il­verk­smiðju United Silicon.

Bæta þarf verk­lag og auka kröfur við gerð íviln­un­ar­samn­inga um nýfjár­fest­ingar, mat á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmda og útgáfu starfs­leyfa. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar, Kís­il­verk­smiðja Sam­ein­aðs Sílikons hf. – Aðkoma og eft­ir­lit stjórn­valda, sem unnin var að beiðni Alþingis.

[links]Í skýrsl­unni er alls sjö ábend­ingum beint til atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytis, umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytis, Skipu­lags­stofn­unar, Umhverf­is­stofn­unar og Vinnu­eft­ir­lits rík­is­ins.

Fram kemur að mik­il­vægt sé að stofn­anir rík­is­ins sem koma að útgáfu starfs­leyfa og gerð íviln­un­ar­samn­inga geti sann­reynt getu þeirra sem sækj­ast eftir því að starf­rækja meng­andi iðn­að til að upp­fylla skil­yrði slíks rekstrar og sann­gildi þeirra upp­lýs­inga sem þeir leggja fram.

„Kís­il­verk­smiðja Sam­ein­aðs Sílikons var ekki full­búin þegar fram­leiðsla hófst og starf­aði aldrei í sam­ræmi við mat á umhverf­is­á­hrifum, starfs­leyfi og mark­mið samn­ings um íviln­anir. Rík­is­end­ur­skoðun telur brýnt að umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyti kanni, í sam­starfi við Umhverf­is­stofnun og önnur stjórn­völd, hvort herða þurfi eða skýra kröf­ur við útgáfu starfs­leyfa vegna starf­semi sem getur haft mengun í för með sér,“ segir Rík­is­end­ur­skoðun.

Ekki var gert ráð fyrir lykt­ar­mengun við mat á umhverf­is­á­hrifum kís­il­verk­smiðj­unnar og er sú mengun sem kom fram ekki að fullu skýrð, utan hvað ljós­boga­ofn verk­smiðj­unnar var óstöð­ugur.

Rík­is­end­ur­skoðun telur mik­il­vægt að Skipu­lags­stofnun kanni hvort og þá hvernig taka megi á hugs­an­legum frá­vikum í rekstri við mat á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmda, sér­stak­lega þegar nálægð við íbúða­byggð er mikil. Þá telur Rík­is­end­ur­skoðun að Skipu­lags­tofnun hefði átt að taka fram í áliti sínu að ekki var brugð­ist við athuga­semdum um skort á reyk­háfum. Rík­is­end­ur­skoðun hvetur til þess að kannað verði hvort gera eigi strang­ari kröfur við mat á umhverf­is­á­hrifum.

Auk lykt­ar­meng­unar voru sjón­ræn áhrif önnur og meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Þá var bygg­ing kís­il­verk­smiðj­unnar ekki í sam­ræmi við gild­andi svæð­is­skipu­lag. Rík­is­end­ur­skoðun telur þetta gagn­rýni­vert og bendir á að ástæða sé til að kanna hvort Skipu­lags­stofnun þurfi skýr­ari og bein­skeytt­ari úrræði þegar fram­kvæmdir eru ekki sam­ræmi við mat á umhverf­is­á­hrifum.

Rík­is­end­ur­skoðun telur að vanda þurfi betur til grein­inga sem ákvarð­anir um veit­ingu íviln­ana byggja á. Við gerð íviln­un­ar­samn­ings við Sameinað Sílikon var alfarið byggt á fram­lögðum gögnum og upp­lýs­ingum umsækj­enda. Við afgreiðslu á umsókn um ívilnun lágu ekki fyrir skýrar upp­lýs­ingar um eign­ar­hald og stjórn­endur. Íviln­un­ar­samn­ingur við Sameinað Sílikon gerði ráð fyrir að hámark styrk­hæfrar rík­is­að­stoðar, fyrir utan mögu­lega þjálf­un­ar­styrki starfs­fólks, yrði 484,8 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár