Upplifun af því að kæra til lögreglu brot gegn friðhelgi einkalífs var hræðileg

Kona sem var hökkuð fékk áfallastreituröskun í kjöl­farið. Per­sónu­legum upp­lýs­ingum um hana var lekið á netið og hún hefur fengið hót­anir frá þeim sem frömdu brotið. Konan kærði en segir að lög­reglan hafi ekki haft áhuga á að rann­saka málið.

Helga Rakel Guðrúnardóttir var hökkuð og sá sem það gerði hefur játað það fyrir henni. Samt sem áður vill lögreglan á Íslandi ekki rannsaka málið.
Helga Rakel Guð­rún­ar­dóttir var hökkuð og sá sem það gerði hefur játað það fyrir henni. Samt sem áður vill lög­reglan á Íslandi ekki rann­saka málið. Mynd: Eyþór Árnason

Helga Rakel Guð­rún­ar­dóttir, tæp­lega 45 ára fjöl­skyldu­kona í Kópavogi, var hökkuð í fyrra­haust. Sá sem það gerði hefur deilt per­sónu­legum upp­lýs­ingum um hana á net­inu og hótað því að gera meira. Hún hefur líka fengið bréf heim til sín sem hún telur að sé fyrst og síð­ast skila­boð um að hakk­ar­inn viti hvar hún eigi heima. Afleið­ing­arnar hafa verið miklar, bæði per­sónu­lega og fag­lega.

Helga Rakel Guð­rún­ar­dóttir, kærði brotin til lög­reglu sem hefur þó ekki viljað rann­saka þau. Hún segir, í ítar­legu við­tali við Kjarnann sem birt­ist síð­ast­lið­inn fimmtu­dag, að hún hafi fengið áfallastreiturösk­un í kjöl­far þess að hún var hökkuð. „Ég hrundi alveg saman og ég hef þurft að vera hjá sál­fræð­ingi til að vinna úr þessu. Líf mitt svo­lítið hrundi við þetta. Ég bjóst aldrei við því að ein­hver myndi gera mér svona.

Það lok­uð­ust líka ofboðs­lega margar dyr fyrir mig fag­lega. Ég bý til YouTube-­mynd­bönd og þetta hafði áhrif á tekjur mínar af þeim. Það eru sam­keppn­is­að­ilar mínir sem eru að gera þetta. Tæki­færum fækk­aði. Keppnir sem ég var að taka þátt í, allt í einu lok­að­ist á þær. Fólk hætti að tala við mig. Þetta hafði miklar afleið­ingar fyrir mig, bæði per­sónu­lega og fag­lega.“

Þeir rannsaka bara það sem þeir vilja

Hún segir að þegar það rann upp fyrir henni að hún væri með staf­rænan elti­hrelli þá hafi hún hætt að geta skap­að. „Það bara læs­ist á mig. Ef ég er að tala við fólk í gegnum þetta for­rit, þá er ég alltaf að hugsa um hvort það sé verið að fylgj­ast með mér? Það er svo óþægi­leg til­finn­ing.“

[adspot]Hún kærði málið en rann­sóknin var látin niður falla þar sem ger­and­inn býr erlendis. Lög­reglan taldi málið því ekki vera lög­reglu­mál hér­lendis.

Aðspurð hver upp­lifun hennar sé af því að kæra brot gegn frið­helgi einka­lífs síns til lög­regl­unnar á Íslandi segir Helga Rakel að hún sé hræði­leg. „Ég upp­lifði að þeim kæmi ekk­ert við að á mér væri brot­ið. Þeir eru ekki að vernda mig. Þeir eru bara að rann­saka það sem þeir vilja.“

[links]Lögmaður Helgu Rakelar kærði ákvörðun lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um að hætta rann­sókn­inni til rík­is­sak­sókn­ara í gær. Í bréfi sem sent var vegna þessa segir meðal ann­ars: „Að mati und­ir­rit­aðs og skjól­stæð­ings míns hefur mál þetta ekki fengið þá athygli emb­ætt­is­ins sem því ber skv. lögum og í ljósi alvar­leika þess. Um auð­kenna og ein­kenna stuld er að ræða og alvar­lega árás á einka­líf og frið­helgi skjól­stæð­ings míns. Lög­reglan hefur ítrekað komið fram og hvatt borg­ara lands­ins til að kæra og vera á varð­bergi gagn­vart tölvu­árásum og auð­kenna þjófn­aði og þykir und­ir­rit­uðum því miður og afar ein­kenni­legt hvernig þetta mál var með­höndlað. Skjól­stæð­ingur minn hefur lagt sig fram við að afla gagna og stað­fest­inga á hátt­semi hins kærða og m.a. verið í sam­skiptum við erlend lög­gæslu­emb­ætti sem sýnt hafa mál­inu áhugaen beðið hafa aðgerða og rann­sóknar íslenskra lög­gæslu­yf­ir­valda. Því kann trú­verð­ug­leiki emb­ætt­is­ins að bíða hnekki ef mál þetta fær ekki þá athygli og rann­sókn sem nauð­syn­leg er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár