Ferðaþjónustan skoraði „sjálfsmark“ með óheftri fjölgun ferðamanna

Gríð­ar­leg óvissa er nú í heims­hag­kerf­inu sem hefur áhrif hér á landi. Gylfi Zoega hag­fræði­pró­fessor ótt­ast ekki spreng­ingu í verð­bólgu þegar að ferða­þjón­ustan tekur við sér en segir alla aðila verða að ganga í takt.

Gylfi segir að gera með ráð fyrir að ferðaþjónustan taki aftur við sér síðsumars.
Gylfi segir að gera með ráð fyrir að ferða­þjón­ustan taki aftur við sér síð­sum­ars. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Staða efna­hags­mála er í augna­blik­inu flókin á Íslandi. En það er hún líka erlendis og stærsta málið er hvað ger­ist í Banda­ríkj­unum í sumar og haust, segir Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, en hann var gestur í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun. Vest­an­hafs hafi verið farið í gríð­ar­lega aukn­ingu rík­is­út­gjalda sam­hliða fjölda­bólu­setn­ingum. „Sam­fé­lagið þar mun vænt­an­lega fara í eðli­legt horf þegar líður á sumar,“ segir Gylfi en með mik­ill örvun og lágum vöxtum. „Ef verð­bólgan fer vax­andi í Banda­ríkj­unum fara vextir í heim­inum upp. Við erum auð­vitað örlítið peð í því dæmi.“ En þá megi búast við að vaxta­stig hér og ann­ars staðar hækki með alls kyns afleið­ingum fyrir þau lönd sem tekið hafa lán í doll­urum síð­ustu árin. „Svo það er gríð­ar­leg óvissa í heims­hag­kerf­inu,“ segir hann. Hér á landi sé staðan svipuð, hér séu vextir mjög lágir, örvun frá rík­inu sé mikil sem og verið sé að bólu­setja þjóð­ina. Og kannski síð­sum­ars muni ferða­þjón­usta hefj­ast á ný. „Þá er vandi okkar sam­bæri­legur og stóru land­anna.“

[adspot]

Hér á landi hafi atvinnu­leysi verið mikið síð­ustu mán­uði en hins vegar hefur sam­setn­ing eft­ir­spurnar breyst. Gylfi hefur stundum talað um „90 pró­sent hag­kerfið“ ann­ars vegar og „10 pró­sent hag­kerfið“, sem er ferða­þjón­ustan, hins vegar. Á næstu mán­uðum mun ferða­þjón­ustan kom­ast aftur til lífs og atvinnu­leysi sem henni teng­ist mun minnka. Í hinum hluta hag­kerf­is­ins mun afkoma sjáv­ar­út­vegs vænt­an­lega batna en hins vegar munu aðrir þættir þess gefa eftir, t.d. verslun og þjón­usta, „þegar Íslend­ing­arnir fara aftur til útlanda að versla“.

[links]Hækkun verð­bólgu að und­an­förnu stafar að sögn Gylfa fyrst og fremst af hækkun fast­eigna­verðs og því sé ekki hægt að segja að um „almenna verð­bólgu“ sé að ræða, en af henni myndi hann hafa meiri áhyggjur. Til að bregð­ast við þurfi að hafa áætlun; með bólu­setn­ingu, hversu mörgum erlendum ferða­mönnum og með hvaða skil­yrðum verði hleypt inn í landið og hvenær. Einnig þarf að huga að því hvernig pen­inga­stefnan og rík­is­fjár­málin geti stutt við það. „Það þarf að hafa alla aðila í takt. Svo að ég vona að það muni heppn­ast.“

Hann segir ljóst að verð­bólg­unni verði ekki leyft að fara á skrið. Í veg fyrir það verði komið með einum eða öðrum hætti. Hægt sé að taka á fast­eigna­verð­bólgu með ýmsum tækjum. Seðla­bank­inn hafi t.d. nú tæki til að draga úr útlánum bank­anna. „Það er líka hægt að nota vaxta­tækið,“ bendir hann á.

Þegar gjald­eyrir fer að koma inn í landið með erlendum ferða­mönnum þá megi búast við því að gengi krón­unnar hækki sem myndi lækka verð­bólgu. Þá þurfi að ákveða hvort að leyfa eigi þeirri hækkun að fara í gegn eða huga að inn­gripi á gjald­eyr­is­mark­aði og tempra hana. „Ef við erum með 4,6 pró­sent verð­bólgu og 0,75 pró­sent stýri­vexti og atvinnu­leysi hverfur í sumar þá sam­kvæmt öllum reglum í pen­inga­stefnu eru vext­irnir of lágir.“

Komið í veg fyrir sprengingu

Spurður hvort að við þessar aðstæður megi búast við „spreng­ingu“ sagði Gylfi að farið yrði þá í hækkun vaxta í mörgum „ábyrgum“ og „var­færnum“ skrefum „til þess að það verði ekki spreng­ing, svo að það verði ekki verð­bólga“.

Óverð­tryggð lán hafa á síð­ustu miss­erum verið að taka yfir á hús­næð­is­lána­mark­aði. Séu vextir þeirra breyti­legir mun hækkun stýri­vaxta hafa áhrif á þau. Gylfi segir enga ástæðu til að ótt­ast þetta mikið, verði vextir hækk­aðir verði það gert eftir „kúnst­ar­innar reglum“.

Breyting varð á aðferða­fræði Seðla­bank­ans til að taka á sveiflum í hag­kerf­inu eftir hrun. „Í stað­inn fyrir að nota bara vexti, eins og áður var lenskan, eru komin mörg stjórn­tæki með hægt er að beita til þess að ná þessum mark­miðum; að halda verð­bólgu í skefjum og hafa fjár­mála­stöð­ug­leik­ann í lagi. Og það hefur gengið vel“ og með þessum aðferðum hefur verið hægt að bregð­ast við þeirri dýfu sem orðið hefur í hag­kerf­inu.

Spurður hvað muni ger­ast ef vextir taka að hækka, í heim­inum öllum og hér á landi svarar Gylfi að líta megi á þann halla á rík­is­sjóði sem nú hefur orðið vegna örv­un­ar­að­gerða sem fjár­fest­ingu til fram­tíðar þar sem lífi var haldið í fyr­ir­tækjum í ferða­þjón­ustu. „Svo ef túrism­inn byrjar í sumar þá verður miklu öfl­ugri við­snún­ingur vegna þess að fyr­ir­tækin eru nátt­úr­lega til.“

Hann segir skulda­hlut­fall rík­is­sjóðs sé lágt í alþjóð­legum sam­an­burði og ekki að nálg­ast nein hættu­mörk.

„Það sem tókst síð­ustu tólf mán­uði með þessum aðgerðum var að verja rest­ina af hag­kerf­inu, 90 pró­sent hag­kerfið, fyrir því að hrun ferða­þjón­ustu hefði smit­andi áhrif inn í allt annað. En það er erfitt að útrýma atvinnu­leysi í ferða­þjón­ustu því hún mun ekki fara í gang fyrr en ferða­menn­irnir fara að koma. En um leið og heim­ur­inn verður eðli­legur mun það atvinnu­leysi hverfa og það þarf engar rík­is­fjár­mála­að­gerðir til þess. Svo við verðum bara að bíða eftir að þetta tíu pró­sent hag­kerfi lifni við aftur í sumar og haust.“

[adspot]

Gylfi bendir á ferða­þjón­ustan hafi verið „orðin löskuð“ fyrir COVID-far­ald­ur­inn og atvinnu­leysi þar tekið að aukast. Hlut­deild launa í heild­ar­tekjum hafði ekki verið hærri í fleiri ár. Hann skýrir þetta með hinni snöggu og miklu aukn­ingu sem varð í fjölda ferða­manna hingað til lands. Hún hafði í för með sér hækkun á gengi krón­unnar á sama tíma og laun í krónum voru að hækka inn­an­lands svo að kostn­aður í evrum „var að verða óþol­andi fyrir þessar greinar,“ segir hann. „Þetta sýnir manni að það þarf að passa upp á allt kerfið. Þessi grein gerir sjálfri sér engan greiða með því að fjölga ferða­mönnum svona hratt og svona mikið. Þetta var svona sjálfs­mark hjá þeim.“

Þess vegna þarf í ferða­þjón­ustu, alveg eins og í sjáv­ar­út­vegi, að koma á kerfi svo nýt­ing auð­linda, í þessu til­viki íslensk nátt­úra, verði hag­kvæm. Slíkt hafi verið reynt fyrir nokkrum árum þegar fyr­ir­hugað var að setja gjöld á ferða­menn. Hægt væri að setja á lend­ing­ar­gjöld, gistin­átta­gjöld og fleira í þá veru „til að koma í veg fyrir það sem gerð­ist hjá okkur í sjáv­ar­út­vegi áður en kvóta­kerfið kom, þegar einn bátur skemmdi fyrir hinum. En þetta hefur ekki tek­ist og ég held að það hafi ekki tek­ist vegna þess að sér­hags­munir, mis­skildir sér­hags­munir, hafa barist á móti því að aðgangs­stjórnun sé tekin upp í þess­ari grein eins og í sjáv­ar­út­vegi.“ Þar sem að var ekki gert varð fjölgun ferða­manna alltof snögg með ýmsum afleið­ingum fyrir grein­ina og hún komin „í þröng fyrir COVID.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár