Segir Samtök iðnaðarins í áróðursherferð gegn orkufyrirtækjum í almannaeigu

For­stjóri Lands­virkj­unar spyr hvort meiri­hluta aðild­ar­fé­laga Samtaka iðn­að­ar­ins sé sam­þykkur því að íslenska þjóðin gefi 20-30 millj­arða króna til nokk­urra alþjóð­legra stór­fyr­ir­tækja með því að hætta að selja upp­runa­á­byrgðir.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar. Mynd: Bára Huld Beck

Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, segir Samtök iðn­að­ar­ins og Samál standa í áróð­urs­her­ferð gegn orku­fyr­ir­tækjum í almanna­eigu sam­hliða því að eitt aðild­ar­fyr­ir­tæki þeirra, Río Tinto sem rekur álverið í Straums­vík, reynir að lækka það verð sem það greiðir fyrir raf­orku.

Í grein sem hann skrifar í Morg­un­blaðið í dag segir Hörður að hluti af þess­ari áróð­urs­her­ferð snú­ist um and­stöðu gegn kerfi um upp­runa­á­byrgðir raf­orku, sem mikið hefur verið fjallað um í fréttum und­an­farið, sem Samtök iðn­að­ar­ins hafa farið fram á að sala upp­runa­á­byrgð­anna, sem skil­uðu Lands­virkjun um einum millj­arði króna í tekjur í fyrra, verði hætt.

Öll heim­ili og lang­flest íslensk fyr­ir­tæki fá upp­runa­á­byrgð inni­falda í sínum raf­orku­kaupum. Þau fyr­ir­tæki sem ekki fá upp­runa­á­byrgðir inni­faldar í sínum raf­orku­kaupum eru stórnot­endur á borð við álver. Þeim hefur staðið til boða að semja um kaup á upp­runa­á­byrgð­unum en hafa valið að gera það ekki.

[adspot]Í grein Harðar kemur fram að Innan Samtaka iðn­að­ar­ins séu 1.400 fyr­ir­tæki og aðild­ar­fé­lög og að yfir 99 pró­sent þeirra fái í dag upp­runa­vott­aða end­ur­nýj­an­lega orku frá sínum raf­orku­sala.

Hann spyr hvort það sé með sam­þykki meiri­hluta aðild­ar­fyr­ir­tækja sam­tak­anna að þau beiti sér fyrir því að íslenska þjóðin gefi 20-30 millj­arða, sem er áætl­aður hagn­aður af sölu upp­runa­á­byrgða á næstu tíu árum,til nokk­urra alþjóð­legra stór­fyr­ir­tækja?

Spyr Samtök iðnaðarins fimm spurninga

Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, sagði í fréttum Stöðvar 2 nýverið að með söl­unni sé verið að grafa undan sam­keppn­is­for­skoti Íslands þar sem í dag þurfi öll fyr­ir­tæki á Íslandi sem noti mikla raf­orku að kaupa sér upp­runa­vott­orð vilji þau til­taka að afurðir þeirra séu fram­leiddar með grænni orku.

Hörður segir í grein sinni að mál­flutn­ingur sam­tak­anna í þessu máli ein­kenn­ist af ítrek­uðum rang­færslum og setur í kjöl­farið fram fimm spurn­ingar sem hann vill að sam­tökin svari.

Í þeim spyr Hörður hvort að Samtök iðn­að­ar­ins geti nefnt dæmi um kola­orku- eða kjarn­orku­ver í Evrópu sem hafa getað nýtt sér íslenskar upp­runa­á­byrgðir til þessa að bæta ímynd sína, hvort að Samtök iðn­að­ar­ins geti bent á ein­hvern skaða sem orðið hafi á ímynd Íslands vegna sölu upp­runa­á­byrgða, hvort þau geti svarað því hvernig við­skipti með upp­runa­á­byrgðir geti haft áhrif á kolefn­is­hlut­leysi Íslands, hvort sam­tökin telji að alþjóð­leg stór­fyr­ir­tæki eigi að borga það sama fyrir græna þátt raf­orkunnar á Íslandi og þau greiða í öðrum löndum og hvort að það sé með sam­þykki meiri­hluta aðild­ar­fyr­ir­tækj­anna að sam­tökin beiti sér fyrir því að íslenska þjóðin gefi nokkrum alþjóð­legum stór­iðju­fyr­ir­tækjum 20-30 millj­arða á næstu tíu árum?

[links]Hörður segir að öll raf­orka sem sé fram­leidd á Íslandi sé end­ur­nýj­an­leg og upp­runa­á­byrgðir breyti þar engu um. „Ísland er og verður „land end­ur­nýj­an­legrar orku,“ óháð þátt­töku í kerf­inu og allir geta stoltir selt fisk og vörur frá landi end­ur­nýj­an­legrar orku. Þegar Ísland verður kolefn­is­hlut­laust í fram­tíð­inni bæt­ist sú stað­reynd við þá jákvæðu ímynd lands­ins.“

Frá því að Íslend­ingar byrj­uðu að nýta raf­orku fyrir orku­frekan iðnað hafi vonir staðið til að end­ur­nýj­an­lega orkan sem hér er fram­leidd hefði sér­stök verð­mæti sem ein­hver væri til­bú­inn að greiða sér­stak­lega fyrir. „Það hefur nú loks raun­gerst. Verð­mætin eru mikil, þó óvissu sé háð hversu mikil. Áætlanir benda til að þau gætu á næstu tíu árum numið 20-30 millj­örðum. Vegna auk­innar vit­undar um mik­il­vægi lofts­lags­mála um allan heim gæti þessi upp­hæð orðið mun hærri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár