Ragnhildur Helgadóttir

Blaðamaður

Spurði hvort Bjarni og Þórdís hefðu reynt að hleypa illu blóði í kjaraviðræður
Fréttir

Spurði hvort Bjarni og Þórdís hefðu reynt að hleypa illu blóði í kjara­við­ræður

Í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum stóð fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra fyrir svörum um kjara­við­ræður. Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, spurði hvort að hún og Bjarni Bene­dikts­son væru að reyna að hleypa illu blóði í kjara­við­ræður. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir vildi vita hvort ætti að afhenda helm­ingi vinnu­mark­að­ar­ins það að taka ákvarð­anir um rík­is­fjár­mál.
Segir Bjarna ekki eiga heima á hinum pólitíska vettvangi
Stjórnmál

Segir Bjarna ekki eiga heima á hinum póli­tíska vett­vangi

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir gagn­rýndi Bjarna Bene­dikts­son utan­rík­is­ráð­herra fyrir að stilla Grind­vík­ingum upp á móti verka­lýðs­hreyf­ing­unni í ræðu á Alþingi í dag. Sagði hún að fólk sem æli á sundr­ung og reyndi að stilla Grind­vík­ingum upp á móti öðrum hópum sam­fé­lags­ins í póli­tískum til­gangi ætti ekki heima á hinum póli­tíska vett­vangi.
Framlög til RÚV hækkuðu um 1,6 milljarða vegna fólksfjölgunar 2017-2023
Fréttir

Framlög til RÚV hækk­uðu um 1,6 millj­arða vegna fólks­fjölg­unar 2017-2023

Framlög til Rík­is­út­varps­ins juk­ust umtals­vert árin 2017-2023 vegna fleira fólks í land­inu. Í svari frá menn­ing­ar­ráðu­neyt­inu kemur fram að kostn­aður við þjón­ustu RÚV auk­ist ekki í jöfnu hlut­falli við fólks­fjölgun. Útvarps­gjaldið hefur ekki hækkað í sam­ræmi við verð­bólgu í land­inu. Ekki eru sömu hag­ræð­ing­ar­kröfur gerðar á rekstur RÚV og aðrar rík­is­stofn­anir.
Hæfi Bjarna við sendiherraskipanir verði skoðað
Fréttir

Hæfi Bjarna við sendi­herra­skip­anir verði skoðað

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, hefur lagt fram beiðni um frum­kvæð­is­at­hugun á skip­unum utan­rík­is­ráð­herra á Svan­hildi Hólm Vals­dóttur og Guðmundi Árnasyni sem sendi­herra. Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd mun skoða hvort að Bjarni Bene­dikts­son hafi fylgt reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins og verið hæfur þegar hann skip­aði fyrr­ver­andi sam­starfs­fólk sitt í stöður í utan­rík­is­þjón­ust­unni án aug­lýs­ingar.
Þórdís Kolbrún: „Við erum alltaf að tala um 70 milljarða plús“
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Þórdís Kolbrún: „Við erum alltaf að tala um 70 millj­arða plús“

Á blaða­manna­fundi skuld­batt rík­i­s­tjórnin sig til þess að eyða óviss­unni um það hvað verður um fjár­muni sem bundnir eru í íbúð­ar­hús­næðum í Grinda­vík. Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir í sam­tali við Heim­ild­ina að heild­ar­pakk­inn muni kosta meira en 70 millj­arða króna.
Ríkisstjórnin skoðar uppgjör eða uppkaup á íbúðahúsnæði Grindvíkinga
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Rík­is­stjórnin skoðar upp­gjör eða upp­kaup á íbúða­hús­næði Grind­vík­inga

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra kynnti fyr­ir­hug­aðar aðgerðir stjórn­valda fyrir Grind­vík­inga á blaða­manna­fundi í dag. Á fund­inum til­kynnti Katrín að tekin hafi verið ákvörðun um að fram­lengja skamm­tíma­að­gerðir. Hins vegar ætti rík­is­stjórnin eftir að taka ákvörðun um aðgerðir sem eru til lengri tíma. Katrín sagði að tvær leiðir standa til boða í þeim efnum: Annars vegar að kaupa upp íbúða­hús­næði Grind­vík­inga eða að leysa Grind­vík­inga undan skuld­bind­ingum við sína lán­veit­endur.
Einar: „Við erum óhrædd við að hagræða“
FréttirPressa

Einar: „Við erum óhrædd við að hag­ræða“

Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóri var við­mæl­andi Aðal­steins Kjart­ans­sonar í nýjasta þætti Pressu. Ræddi hann um hús­næðis- og leik­skóla­mál og hvernig ástandið í Grinda­vík hefur haft áhrif á borg­ina. Hann segir Framsókn óhrædda við hag­ræð­ingu en nýlega var ráð­ist í hag­ræð­ing­ar­að­gerðir sem sneri rekstri borg­ar­innar við um 10 millj­arða.
Lögreglan ráði hvort útlendingar sem vísa á úr landi fái að tala við fjölmiðla
Stjórnmál

Lög­reglan ráði hvort útlend­ingar sem vísa á úr landi fái að tala við fjöl­miðla

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur lagt fram frum­varp um lok­aða búsetu fyrir útlend­inga sem liggur fyrir að senda eigi úr landi. Kemur þetta í stað þess að þeir séu vistaðir tíma­bundið í fang­elsi líkt og tíðkast hefur. Nokkuð strangar reglur eiga að gilda í lok­aðri búsetu svo sem aðskiln­aður kynja, mögu­leiki á aga­við­ur­lögum og leit á her­bergjum.
Íslenskir rithöfundar klofnir vegna Palestínu
MenningÁrásir á Gaza

Íslenskir rit­höf­undar klofnir vegna Palest­ínu

Nokkrir rit­höf­undar hafa gagn­rýnt Rit­höf­unda­sam­band Íslands fyrir að taka ekki afstöðu gegn árásum Ísraels á Palest­ínu. Formaður RSÍ segir að í lögum sam­bands­ins standi að það taki ekki póli­tíska afstöðu og ein­hugur sé meðal stjórn­ar­innar að senda ekki út yfir­lýs­ingar um málið. Þeir félags­menn sem hún hafi heyrt í séu klofnir í tvennt í afstöðu sinni.
Fullyrðingar Ásmundar um hælisleitendur eiga við takmörkuð rök að styðjast
FréttirFlóttamenn

Full­yrð­ingar Ásmundar um hæl­is­leit­endur eiga við tak­mörkuð rök að styðj­ast

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur haft uppi tals­verðar mein­ingar um hæl­is­leit­endur á Íslandi. Hann hefur upp á síðkastið haldið því fram að kostn­að­ur­inn við mál­efni útlend­inga nemi allt að 20 millj­örðum króna og haldið því fram að palest­ínskir mót­mæl­endur á Aust­ur­velli birti stríðs­á­róður og hat­urs­orð­ræðu.

Mest lesið undanfarið ár