Ásmundur Einar Daðason mun taka við málinu gegn Hafdísi Helgu Ólafsdóttur af Lilju Alfreðsdóttur. Hér eru þau saman á kosningavöku Framsóknarflokksins í september.
Ásmundur Einar Daðason mun taka við mál­inu gegn Hafdísi Helgu Ólafs­dóttur af Lilju Alfreðs­dóttur. Hér eru þau saman á kosn­inga­vöku Fram­sókn­ar­flokks­ins í sept­em­ber. Mynd: Bára Huld Beck

Ásmundur Einar tekur við málarekstri Lilju gegn Hafdísi

Nýr mennta- og barna­mála­ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins hefur fengið í fangið mál sem varðar brot for­vera hans í emb­ætti og sam­flokks­konu gegn jafn­rétt­islögum. Það bíður hans að taka ákvörðun um hvort mála­rekstri fyrir Lands­rétti skuli haldið til streitu.

Forræði yfir mála­rekstr­inum sem Lilja Alfreðs­dóttir fyrr­ver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra stofn­aði til gegn Hafdísi Helgu Ólafs­dóttur, umsækj­anda um starf ráðu­neyt­is­stjóra í ráðu­neyt­inu, færð­ist í kjöl­far þess að ný rík­is­stjórn var mynduð til Ásmundar Einars Daða­sonar, nýs mennta- og barna­mála­ráð­herra.

Þetta kemur fram í svari frá stjórn­ar­ráð­inu við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið, en þar segir að málafor­ræðið verði hjá Ásmundi Einari þar sem hann fari sam­kvæmt nýrri verka­skipt­ingu rík­is­stjórn­ar­innar með skipu­lag og starfs­manna­hald mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Það er því ljóst að það verður hans að taka ákvörðun um hvort halda skuli áfram með mála­rekst­ur­inn fyrir Lands­rétti eða sætta sig við nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í mál­inu. Kjarninn hefur sent fyr­ir­spurn til Ásmundar um hvað hann hygg­ist gera, en svar hefur ekki borist.

Ráðherra stefndi borgara sem leitaði réttar síns samkvæmt lögum

Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála komst að þeirri nið­ur­stöðu í mars 2020 að Lilja hefði brotið gegn jafn­rétt­islögum við skipan Páls Magn­ús­sonar í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra árið 2019. Nið­ur­staðan fól í sér að Lilja, eða öllu heldur hæf­is­nefnd sem starf­aði í hennar umboði, hefði van­metið Hafdísi Helgu í sam­an­burði við Pál. Hæf­is­­nefndin hafði reyndar ekki talið Haf­­dísi Helgu í hópi þeirra fjög­­urra sem hæfust voru talin í starf­ið.

Lilja ákvað í kjöl­far þess­arar nið­ur­stöðu að reyna að fá úrskurð­inum hnekkt, en til þess að gera það þurfti hún að höfða mál gegn Hafdísi Helgu per­sónu­lega. Það vakti nokkra furðu. Lög­maður Haf­dísar Helgu, Áslaug Árna­dótt­ir, sagði að sú ákvörðun hefði komið á óvart. „Ég veit ekki til þess að þetta hafi verið gert áður, að ráð­herra hafi höfðað mál per­­són­u­­lega gegn aðila sem kærir ákvörðun ráð­herra til kæru­­nefnd­­ar­inn­­ar,“ sagði hún við RÚV þann 24. jún­í 2020.

Ákvörðun Lilju um að stefna Haf­dísi Helgu til að fá úrskurð­inum hnekkt byggð­ist á lög­fræði­á­litum sem ráð­herr­ann afl­aði sér eftir að nið­ur­staða kæru­nefnd­ar­innar lá fyr­ir. Þau voru sögð benda til laga­legra ann­marka í úrskurði kæru­nefnd­ar­inn­ar. Kjarn­inn óskaði eftir þessum lög­fræði­á­litum frá ráðu­neyt­inu sama dag og ljóst var að málið stefndi fyrir dóm­stóla, en þau reynd­ist ómögu­legt að fá.

Héraðsdómur staðfesti úrskurð kærunefndarinnar – Lilja kaus að áfrýja

Málið var tekið fyrir hjá Hér­aðs­dómi Reykja­víkur, sem kvað upp þann dóm 5. mars 2021 að ekki væri til­efni til að fall­ast á kröfu ráð­herra um að ógilda úrskurð kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála. Íslenska ríkið var dæmt til þess að greiða 4,5 millj­ónir króna vegna máls­kostn­aðar Hafdísar Helgu, en sam­dæg­urs til­kynnti Lilja að mál­inu yrði áfrýjað.

Hún tjáði sig þó ekki frekar um málið fyrr en 9. mars og sagði þá að ákvörðun hennar um að áfrýja byggði á lög­fræði­á­lit­unum sem aflað hefði verið og und­ir­byggðu mál­sókn­inna fyrir hér­aðs­dómi. Í þeim hefði komið fram að kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála hefði ekki rök­stutt með full­nægj­andi hætti hvernig kær­anda var mis­munað á grund­velli kyn­ferð­is­.

Ákvörðun um áfrýjun var tekin á fundi Lilju með tveimur póli­tískum aðstoð­ar­mönnum sínum og lög­mönn­unum Víði Smára Pet­er­sen og Guð­jóni Ármanns­syni, sem sömdu lög­fræði­á­litin sem und­ir­byggðu mála­rekst­ur­inn.

Aðal­með­ferð í mál­inu fór fram í lok jan­úar. Í umfjöllun Frétta­blaðs­ins úr dóm­sal kom fram að lög­maður íslenska rík­is­ins hefði sagt Pál hafa staðið sig betur í atvinnu­við­tali sínu og ekki væri hægt að líta fram hjá hug­lægu mati hæf­is­nefndar og ráð­herra um leið­toga­hæfni hans.

Haf­dís taldi hins­vegar að hæf­is­nefndin hefði gert lítið úr reynslu hennar í opin­berri stjórn­sýslu og rangt hefði verið farið með hversu lengi hún starf­aði hjá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Haf­dís Helga hefur starfað í opin­berri stjórn­sýslu í 25 ár, verið for­stöðu­maður nefnd­ar­sviðs Alþing­is, skrif­stofu­stjóri í tveimur ráðu­neytum og aðal­lög­fræð­ingur bæði Alþingis og Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

„Hún starf­aði við opin­bera stjórn­sýslu,“ sagði um Haf­dísi í umsögn hæf­is­nefnd­ar. Um Pál sagði nefnd­in: „Hann hefur langa reynslu við ábyrgð­ar­mikil stjórn­sýslu­verk­efn­i,“ en Páll er með meist­ara­próf í opin­berri stjórn­sýslu og hefur starfað sem bæj­ar­rit­ari hjá Kópa­vogsbæ og sem aðstoð­ar­maður ráð­herra. Haf­dís Helga taldi þetta mik­inn blæ­brigða­mun, sam­kvæmt frétt Frétta­blaðs­ins.

Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra.

Kostn­að­ur­ rík­is­ins við rekstur máls­ins fyrir hér­aðs­dómi nam alls 8,7 millj­ónum króna. Áætlað var að kostn­aður vegna áfrýj­unar til Lands­réttar verði á bil­inu 900 þús­und krónur til 1,2 millj­ónir króna án virð­is­auka­skatts.

Því má ætla að kostn­að­ur­inn verði í kringum tíu millj­ónir króna, ef Ásmundur Einar Daðason ákveður að halda mál­inu til streitu, en það er óljóst, sem áður segir.

Pólitískt hitamál

Hvernig sem mál­inu vindur fram er þó alla­vega ljóst að það verður áfram í höndum ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins. Sigurður Ingi Jóhanns­son for­maður flokks­ins hefur sagt að hann hafi stutt þá ákvörðun Lilju, sem er vara­for­maður Fram­sóknar, að reyna að fá úrskurð­inum hnekkt.

Póli­tískir and­stæð­ingar flokks­ins hafa á móti gagn­rýnt harð­lega hvernig á mál­inu hefur verið haldið og þess er skemmst að minn­ast er það neist­aði á milli Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur for­manns Við­reisnar og Sigurðar Inga í síð­ustu sjón­varp­s­kapp­ræðum RÚV fyrir kosn­ing­arnar í sept­em­ber.

Þor­gerður Katrín sagði fullum fetum við Sigurð Inga, er hún gagn­rýndi flokk­inn fyrir jafn­rétt­is­mál, að flokk­ur­inn hefði ráð­ist á konu og mis­beitt valdi.

Svona voru orðaskiptin þeirra á milli í sjónvarpskappræðum:

Sigurður Ingi: „Þetta er bara ekki rétt.“

Þor­gerður Katrín: „Það er bara þannig, þið hafið ráð­ist á konu, skilið hana [eftir] úti á ber­angri og ég ætla að leyfa mér að fá að standa með henni en ekki hvernig því þið beitið og mis­beitið valdi. Fyr­ir­gefið þetta.“

Sigurður Ingi: „Þú veist að þetta er bara ósvífni.“

Þor­gerður Katrín: „Nei, þetta er ekki ósvífni. Þetta er hvernig þið umgang­ist vald og ekki síst þegar kemur að jafn­rétt­is­málum.“

Sigurður Ingi: „Þetta er rangt.“

Þrátt fyrir gagn­rýni á póli­tíska svið­inu – og dvín­andi trausts almenn­ings til Lilju sam­kvæmt mæl­ingum – var þó ekki að sjá að málið hefði skaðað Fram­sókn­ar­flokk­inn í kosn­ing­unum í sept­em­ber, en þar stóð hann uppi sem nokkuð ótví­ræður sig­ur­veg­ari og hefur kom­ist til auk­inna áhrifa í nýrri rík­is­stjórn Fram­sóknar, Vinstri grænna og Sjálf­stæð­is­flokks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár