Hlutdeild prentmiðla mest en fer minnkandi

Hlut­deild prent­miðla á íslenskum aug­lýs­inga­mark­aði var 32,3 pró­sent í fyrra, sam­kvæmt nýbirtri árs­skýrslu fjöl­miðla­nefndar. Upp­lýs­ing­arnar koma frá fimm stærstu birt­inga­húsum lands­ins, og ell­efu fjöl­miðlum. Fjöl­miðla­nefnd telur að upp­lýs­ing­arnar eigi við um helm­ing aug­lýs­inga sem seldar voru á íslenskum fjöl­miðla­mark­aði í fyrra, og geti gefið mik­il­vægar upp­lýs­ingar um það hvernig fjöl­miðla­mark­að­ur­inn er að þró­ast hér á landi.

Sjónvarp var með 30 pró­senta hlut­deild á aug­lýs­inga­mark­aði, útvarp 16,8 pró­sent og vef­miðlar inn­an­lands 15,2 pró­sent. Á heild­ina litið jókst birt­ingafé birt­inga­hús­anna fimm sem tóku þátt um 4,8 pró­sent milli ára.

Hlutur prent­miðla fer minnk­andi miðað við þessar upp­lýs­ingar, þar sem hann var 37 pró­sent árið 2014. Það ár tók fjöl­miðla­nefnd saman í fyrsta sinn upp­lýs­ingar um skipt­ingu birt­inga­fjár á Íslandi milli miðla. Sjónvarp var þá með 29,1 pró­sent og útvarp 15,8 pró­sent. Báðir miðlar bæta því aðeins við sig. Inn­lendir vef­miðlar virð­ast líka sækja aðeins í sig veðrið, fara úr 12,4 pró­sentum árið 2014 í 15,2 pró­sent árið 2015.

Rúmlega þrjú pró­sent af birt­ingafé fór til erlendra vef­miðla, rétt eins og árið 2014. Þegar aug­lýs­ingar á vefnum voru skoð­aðar sér­stak­lega voru nið­ur­stöð­urnar þær að um 20,4 pró­sent af birt­ingafé á net­inu fór í erlenda vef­miðla á móti 79,6% hlut inn­lendra vef­miðla.

2,6 pró­sent fóru í aðrar aug­lýs­ingar, eins og bíó, flettiskilti og annað. Fjöl­miðla­nefnd segir að nið­ur­stöð­urnar úr könn­un­inni verði að skoð­ast með þeim fyr­ir­vara að stærsti fjöl­mið­ill­inn sem afhenti upp­lýs­ingar um skipt­ingu birt­inga­fjár er á sjón­varps­mark­aði.

Lítill en merkjanlegur samdráttur

Prent- og sjón­varps­miðlar eru ennþá stærstu miðl­arnir í aug­lýs­ingum, þrátt fyrir lít­inn en merkj­an­legan sam­drátt, eins og fjöl­miðla­nefnd orðar það. Vef­miðlar sækja í sig veðrið á kostnað prent­miðla, en það er þróun sem að sumu leyti hefur sést ann­ars staðar. Engu að síður er staða íslenskra prent­miðla og sjón­varps miklu sterk­ari en staða slíkra miðla í nágranna­ríkj­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár