Samfylkingin og Viðreisn bæta við sig – Vinstri græn dala

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er að venju stærsti flokkur lands­ins. Þar á eftir koma hins vegar þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar: Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn. Þeir eru einu flokk­arnir á þingi sem mæl­ast með stuðn­ing yfir kjör­fylgi.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Sam­fylk­ingin bætir við sig tæp­lega tveimur pró­sentu­stigum sam­kvæmt nýj­ustu könnun MMR á fylgi stjórn­mála­flokka, og mælist með 14,9 pró­sent fylgi. Viðreisn bætir líka við sig og mælist nú með tíu pró­sent stuðn­ing. Píratar dala hins vegar lít­il­lega og nú segj­ast 14,3 pró­sent lands­manna að þeir myndu kjósa þá ef kosið væri í dag.

Allir þrír flokk­arnir, sem mynda meiri­hluta saman í næst stærsta stjórn­valdi lands­ins Reykja­vík­ur­borg ásamt Vinstri grænum, eru að mæl­ast með stuðn­ing yfir kjör­fylgi. Sam­an­lagt fengu þeir 28 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2017 en mæl­ast nú með 39,2 pró­sent stuðn­ing saman. Samtals hefur fylgi Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Pírata auk­ist um 40 pró­sent frá því að síð­ast var kosið til þings á Íslandi. Þeir eru einu flokk­arnir sem eiga full­trúa á Alþingi sem hafa bætt fylgi sitt á kjör­tíma­bil­inu, miðað við nið­ur­stöðu MMR.

Allir stjórnarflokkarnir undir kjörfylgi

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er áfram sem áður stærsti flokkur lands­ins og mælist með 24 pró­sent fylgi. Það er nákvæm­lega sama fylgi og hann mæld­ist með í lok júlí, þegar MMR birti síð­ast nið­ur­stöðu úr fylgiskönnun. Vinstri græn, flokkur for­sæt­is­ráð­herra, tapa fylgi milli kann­anna og mæl­ast með 9,6 pró­sent stuðn­ing. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stendur nán­ast í stað og nýtur stuðn­ings 8,9 pró­sent lands­manna.

[adspot]Allir stjórn­ar­flokk­arnir eru að mæl­ast með stuðn­ing undir kjör­fylgi. Sam­an­lagt fylgi þeirra árið 2017 var 52,8 pró­sent en nú mælist það 42,5 pró­sent. Stjórn­ar­flokk­arnir hafa því sam­tals tapað um fimmt­ungi fylgis síns frá síð­ustu kosn­ingum. Vinstri græn eru þar í sér­flokki, en flokk­ur­inn mælist nú með rétt rúm­lega helm­ing þess fylgis sem hann fékk þegar talið var upp úr kjör­köss­unum haustið 2017.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina hækk­aði þó milli kann­ana og mælist nú 50,1 pró­sent.

Miðflokkurinn í átta prósentum

Mið­flokk­ur­inn hefur verið að dala í könn­unum það sem af er ári og mælist nú með átta pró­sent fylgi. Það er tölu­vert minna en þau 10,9 pró­sent sem hann fékk í kosn­ing­unum 2017.

Flokkur fólks­ins mælist líka undir kjör­fylgi, en 4,8 pró­sent lands­manna segja að þeir myndu kjósa flokk­inn ef kosið yrði í dag.

Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem mæld­ist með 5,1 pró­sent fylgi í lok júli, lækkar umtals­vert milli kann­ana og nú segj­ast 3,4 pró­sent lands­manna ætla að kjósa flokk­inn.

Alls segj­ast 2,2 pró­sent ætla að kjósa eitt­hvað annað en ofan­greinda níu flokka.

Næstu kosn­ingar fara fram eftir rúmt ár, þann 25. sept­em­ber 2021.

Könnun MMR var fram­kvæmd 26. ágúst - 2. sept­em­ber 2020 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 929 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár