Mikil verðmæti byggst upp í fyrirtækjum hins opinbera

Íslenska ríkið á meira en helm­ing­inn í heild­ar­eig­infé tíu stærstu fyr­ir­tækja lands­ins. Mikil verð­mæti hafa byggst upp í fjár­mála­kerf­inu í end­ur­reisn­inni eftir hrunið, og það sama á við um orku­fyr­ir­tækin.

Á und­an­förnum árum hafa miklar breyt­ingar orðið í íslensku efna­hags­lífi eftir umrót­ar­tíma í kjöl­far hruns­ins. Eitt af því sem hefur gerst, er að mikil verð­mæti hafa byggst upp í end­ur­reisn­inni eftir hrunið innan dótt­ur­fé­laga hins opin­bera.

Mikil verðmæti

Af um 1260,8 millj­arða eigin fé (mis­munur á eignum og skuldum) tíu stærstu fyr­ir­tækja lands­ins sé horft til eig­in­fjár stöðu í lok árs í fyrra, þá til­heyrir hinu opin­bera 790,1 millj­arður króna, eða sem nemur um 62,6 pró­sent af öllu eigin fé tíu stærstu fyr­ir­tækj­anna. Hlutur íslenska rík­is­ins er bróður part­ur­inn af því, eða sem nemur 666,2 millj­örðum króna, eða 52,8 pró­sentum af heildar eigin fé tíu stærstu félag­anna.

Stærsta fyr­ir­tækið, sé horft til eig­in­fjár­stöðu í lok árs í fyrra, er Lands­bank­inn með eigin fé upp á 251 millj­arð króna. Ríkið á bank­ann að nær öllu leyti, ríf­lega 98 pró­sent.

Arion banki er með eigið fé upp á 211,3 millj­arða en íslenska ríkið á 13 pró­sent hlut í bank­anum, sem nemur um 27,4 millj­örðum króna af eigin fénu.

Næst þar á eftir kemur Lands­virkjun með eigin fé upp á 1,96 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 205,8 millj­örðum króna.

Eigið fé Íslands­banka nam 178 millj­örðum, en íslenska ríkið á bank­ann að öllu leyti.

Orku­veita Reykja­víkur (OR) var með eigið fé upp á 128 millj­arða í lok árs í fyrra en Reykja­vík­ur­borg á 95 pró­sent hlut í félag­inu og afgang­ur­inn er í eigu Akra­nes­kaup­staðar og Borg­ar­byggðar. Eig­in­fjár­staða OR hefur styrkst veru­lega frá því eftir hrunið, en þá var staða félags­ins um margt tví­sýn. Eig­in­fjár­hlut­fallið hefur hækkað úr 14 í ríf­lega 42 pró­sent.

Samherji stærst í einkaeigu

Sjötta stærsta félagið, sé horft til eig­in­fjár, er alfarið í einka­eigu. Það er sjáv­ar­út­vegs­ris­inn Samherji, en eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins í lok árs í fyrra var 701 millj­ónir evra, eða sem nemur 87,7 millj­örðum króna.

Á eftir Samherja koma síðan fjögur skráð félög, sem eru með álíka eig­in­fjár­stöðu. Marel er verð­mætasta félagið sem skráð er á markað, með verð­miða upp á 243 millj­arða króna, sem nemur tæp­lega fjórð­ungi alls mark­aðsvirðis á skráðum mark­aði á Íslandi. Eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins nemur 446 millj­ónum evra, eða sem nemur 55,7 millj­örðum króna.

Össur kemur þar á eftir með eigin fé upp á 463 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 48,6 millj­örðum króna. Icelandair er með eigin fé upp á 456 millj­ónir Banda­ríkja­dala eða sem nemur um 48 millj­örðum króna.

Fast­eigna­fé­lagið Reitir, sem er með tölu­vert mikið eigið fé í sam­an­burði við önnur skráð fast­eigna­fé­lög (Eik og Reginn) er síðan með 46,7 millj­arða króna í eigið fé.

Mikil breyting

Á und­an­förnum árum hafa mikil verð­mæti byggst upp í fyr­ir­tækjum sem hið opin­bera á. Það á ekki aðeins við um fjár­mála­fyr­ir­tækin, heldur ekki síst orku­fyr­ir­tækin, Lands­virkjun og OR. Sam­an­lagt eigið fé þeirra nemur 333,8 millj­örðum króna, miðað við stöð­una eins og hún var í lok árs í fyrra. Fyr­ir­tækin hafa ein­blínt á að styrkja efna­hag­inn með því að greiða niður skuldir og er útkoman sú, að eig­in­fjár­hlut­föll hafa hækkað veru­lega. Reikna má með því að fyr­ir­tækin greiði eig­endum sínum millj­arða í arð árlega, næstu árin.

End­ur­reisn fjár­mála­kerf­is­ins, og ekki síst stöð­ug­leika­fram­lög slita­búa föllnu bank­anna, hafa síðan fært rík­inu mikil verð­mæti. Sam­an­lagt á íslenska ríkið 456,4 millj­arða af heildar eigin fé end­ur­reistu bank­anna, en það nemur 640,3 millj­örðum króna, miðað stöðu mála í lok árs í fyrra.

Það nemur um 71,2 pró­sent af öllu eigin fé bank­anna sem reistir voru við á nýjum kenni­tölum, á grunni inn­lendra eigna hinna föllnu banka, Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans, sem allir féllu eins og spila­borg dag­ana 7. til 9. októ­ber 2008.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár