Hærri lífaldur gæti bitnað á tekjulágum

Ójöfn­uður í lífaldri á milli þjóð­fé­lags­hópa hefur auk­ist hér­lendis á síð­ustu árum. Samkvæmt Seðla­bank­anum gæti þessi þróun þýtt að tekju­lægri þjóð­fé­lags­hópar beri skarðan hlut frá borði úr líf­eyr­is­kerf­inu.

Eftir því sem lífaldur þjóð­ar­innar hækkar eykst hættan á að líf­eyr­is­kerfið ýti undir ójöfnuð á milli þjóð­fé­lags­hópa. Þetta kemur fram í grein sem Þor­steinn Sigurður Sveins­son, hag­fræð­ingur Seðla­bank­ans, birti á Kalkofn­inum fyrr í dag.

Ójöfnuður í lífslíkum

Í grein­inni sýnir Þor­steinn að mik­ill ójöfn­uður sé í lífaldri á milli mis­mun­andi þjóð­fé­lags­hópa hér á landi. Til að mynda er væntur lífaldur íbúa Suð­ur­nesja er tæpum þremur árum lægri en íbúar í nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur.

Svipaðan mun má einnig sjá á milli mennt­un­ar­hópa, en fólk með háskóla­menntun geta vænst þess að lifa þremur til fjórum árum lengur en fólk með grunn­skóla­menntun. Þessi ójöfn­uður hefur auk­ist tölu­vert hér á landi á síð­ustu árum, þar sem hækkun lífald­urs hefur verið marg­falt meiri á meðal háskóla­mennt­aðra heldur en grunn­skóla­mennt­aðra.

Tekjulægri fá minni lífeyri

Mis­mun­andi lífaldur líf­eyr­is­sjóðs­fé­laga leiðir til þess að þeir sem lifa skemur fá minni líf­eyri greiddan út en aðrir, þrátt fyrir að hafa borgað jafn­hátt hlut­fall af eigin tekjum í sjóð­inn.

Þor­steinn bendir á að þessi bjögun eykst þegar bilið í lífaldri breikkar á milli sjóðs­fé­laga, líkt þró­unin hefur verið á Íslandi síð­ustu ár. Einnig eykst bjög­unin ef líf­eyr­i­s­töku­ald­ur­inn hækkar, þar sem slík hækkun hefur hlut­falls­lega meiri áhrif á útgreiddan líf­eyri þeirra sem lifa skemur.

Sömu­leiðis gæti meiri fjölgun sjóðs­fé­laga með háan væntan lífaldur skert líf­eyr­is­greiðslur, þar sem dreifa þarf líf­eyr­is­greiðsl­unum yfir á fleiri ár. Þetta hefði verst áhrif á þá þjóð­fé­lags­hópa sem lifa skemur, en þeir gætu setið uppi með skertrar líf­eyr­is­greiðslur án þess að lífaldur þeirra hafi hækkað að ráði.

Með hækk­andi lífslíkum tekju­hárra þjóð­fé­lags­hópa gætu skuld­bind­ingar líf­eyr­is­sjóð­anna einnig hækkað tölu­vert, þar sem líf­eyr­is­greiðslur eru fast hlut­fall af tekjum.

Þar sem þeir tekju­háu lifa lengur en með­al­sjóðs­fé­lagi vegur þessi skuld­bind­ing þyngra en sam­svar­andi hækkun iðgjalda, svo nauð­syn­legt er að skerða líf­eyr­is­greiðslur til allra sjóð­fé­laga. „Þar með skerð­ist líf­eyrir þeirra sem hafa lægri væntan lífaldur við það eitt að tekjur þeirra sem lifa að jafn­aði lengur hækka,“ skrifar Þor­steinn í grein­inni sinni.

Umbætur gætu jafnað stöðuna

Þor­steinn segir að tveir mik­il­vægir áhrifa­þættir vegi að hluta til á móti þess­ari bjögun á Íslandi, en það er ann­ars vegar upp­skipt­ing líf­eyr­is­sjóða eftir starfs­stéttum og hins vegar að mis­mun­andi lífslíkur og hætta á örorku sé metin fyrir hvern sjóð fyrir sig.

Þó bætir hann við að íslenska kerfið gæti sann­ar­lega gengið lengra í að taka til­lit til mis­mun­andi vænts lífald­urs lands­manna, til dæmis með umbótum í sam­trygg­ing­ar­deildum líf­eyr­is­sjóða eða almanna­trygg­ingum. Í því sam­hengi nefnir Þor­steinn einnig nýlegar umbætur á danska líf­eyr­is­kerf­inu, þar sem Danir sem hafa unnið lík­am­lega strembna vinnu og fóru ungir út á vinnu­markað fara nú fyrr á eft­ir­laun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár