Ívilnanir til nýfjárfestinga verði metnar út frá loftslagsáhrifum

Vegna athuga­semda frá ESA og Rík­is­end­ur­skoðun hefur nýsköp­un­ar­ráð­herra lagt fram nýtt frum­varp um breyt­ingar á lögum um íviln­anir til nýfjár­fest­inga. Í frum­varp­inu er ráð­herra gert heim­ilt að tengja veit­ingu íviln­ana við umhverf­is­stefnu stjórn­valda.

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, ferðamála-, iðn­aðar- og nýsköpun­arráðherra, hefur lagt fram frum­varp um breyt­ingar á lögum um íviln­anir til nýfjár­fest­inga á Íslandi. Á meðal breyt­inga er að úti­lokað er að veita íviln­anir til starf­semi í stál-, kola-, skipa­smíða-, gervi­trefja- og flutn­ings­geir­anum. Auk þess er ráð­herra veittar frek­ari heim­ildir til tengja veit­ingu ívilna við ákveðnar stefnur stjórn­valda þar á meðal umhverf­is­stefnu í frum­varp­inu.

Frumvarpið tilkomið vegna athugasemda frá ESA og Ríkisendurskoðun

Frumvarp Þórdísar Kol­brúnar kveður á um breyt­ingu á lögum um íviln­anir til nýfjár­fest­inga á Íslandi en mark­mið lag­anna er að efla nýfjár­fest­ingu í atvinnu­rekstri, sam­keppn­is­hæfni Íslands og byggða­þróun með því að til­greina hvaða íviln­anir heim­ilt er að veita vegna nýfjár­fest­inga hér á landi og hvernig þeim skuli beitt.

[links]Frum­varpið eru til­komið meðal ann­ars vegna athug­semda frá Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA (ESA) og Rík­is­end­ur­skoð­unar. Í mars 2018 gerði ESA athuga­semdir við núgild­andi lög um nýfjár­fest­ingar en sam­kvæmt ESA eru þau ekki í fullu sam­ræmi við reglu­gerð Evr­ópu­sam­bands­ins um almenna hópund­anþágu.

Þá hefur Rík­is­end­ur­skoðun greint frá því að bæta þarf verk­lag og auka kröfur við gerð íviln­un­ar­samn­inga um nýfjár­fest­ing­ar hjá stjórn­völdum. Í grein­ar­gerð frum­varps­ins er fjallað um nið­ur­stöður stjórn­sýslu­útt­tekar Rík­is­end­ur­skoð­urnar á aðkomu og eft­ir­lit stjórn­valda með upp­bygg­ingu og rekstri kísil­vers Sam­ein­aðs Sílikons sem birt var í maí 2018.

Í skýrsl­unni er alls sjö ábend­ingum beint til stjórn­valda. Þar á meðal að mik­il­vægt sé að vanda und­irbúning, gerð og eft­ir­fylgni samn­inga um íviln­anir. Atvinnu­vega- og nýsköp­un­aráðuneytið þurfi að bæta eft­ir­fylgni og eft­ir­lit með fram­kvæmd slíkra samn­inga og veita handhöfum íviln­ana nauð­syn­legt aðhald.[adspot]

Jafn­framt telur Rík­is­end­ur­skoðun að tryggja þurfi að óháðir aðilar kanni til hlítar hvort skil­yrði séu upp­fyllt og meti sjálfstætt þau gögn og þær áætl­anir sem umsækj­endur leggja fram. Að lokum bendir Ríkisend­ur­skoðun á að ráðuneytið þurfi að kanna hvort kveða megi skýrar á um skyldur þeirra aðila sem fá íviln­anir með samn­ingum og hvort hags­muna ríkis­ins sé betur gætt þannig.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að eftir að farið var yfir athuga­semdir ESA og Ríkisend­ur­skoð­unar var nið­ur­staðan sú að aðrir val­kostir en breyt­ing á lögum um íviln­anir.

Nú fá stórfyrirtæki aðeins veitt aðstoð ef það er í þágu nýrrar atvinnustarfsemi

Í nýja frum­vapr­inu er meðal ann­ars bætt við upp­taln­ingu á þeirri starf­semi sem útil­okað er að veit­ing íviln­anir nái til, það er starf­semi í stál-, kola-, skipa­smíða-, gervi­trefja-, og flutn­ings­geir­unum.

Auk þess er bætt við skil­yrði sem stór fyr­ir­tæki þurfi að upp­fylla. Eftir breyt­ing­una þá er aðstoð til stórra fyr­ir­tækja ein­ungis veitt vegna nýfjárfest­ingar í þágu nýrrar atvinnu­starf­semi í við­kom­andi lands­hluta. Ný atvinnu­starf­semi á við um starf­semi sem er ekki í lands­hlut­anum.

Jafn­framt er bætt við skil­yrði um við mat á því hvort veita eigi ívilnun skal gætt að við­kom­andi nýfjárfest­ing­ar­verk­efni sé í sam­ræmi við áherslur í þingályktun um stefnu stjórnvalda um nýfjárfest­ingar sem sam­þykkt var 2016.

Veitt heimild til að tengja ívilanir við stefnu stjórnvalda á hverjum tíma

Enn­fremur er reglu­gerð­ar­heim­ild ráðherra rýmkuð í frum­varp­inuog honum veittar frek­ari heim­ildir til að tengja veit­ingu íviln­ana við ákveðnar stefnur stjórnvalda á hverjum tíma. Til að mynda væri þá hægt að tengja veit­ingu íviln­ana við nýsköpun­ar­stefnu stjórnvalda, byggða­stefnu og umhverf­is­stefnu.

Í grein­ar­gerð­inni kemur fram að stjórnvöld stefni að því að allar stærri áætl­anir ríkis­ins verði metnar út frá lofts­lags­mark­miðum. „Stjórnvöld leggja áherslu á þátttöku allra geira samfélags­ins og almenn­ings í að draga úr los­ungróðurhúsaloft­teg­unda og styðja við nýsköpun,“ segir í grein­ar­geð­r­inni.

Því gætu íviln­anir til nýfjárfest­inga byggst á því að verk­efnin hafi verið metin út frá lofts­lagsáhrifum og alþjóðlegum skuld­bind­ingum Íslands um samdrátt í gróðurhúsaloft­teg­undum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár