Mynd: afp

Ímyndarherferð Talíbana

Talíbanar hafa aftur náð völdum í Afganistan, 20 árum eftir að innrásarlið Banda­ríkjanna steypti stjórn þeirra. Konur og minnihluta­hópar óttast ofsóknir og harkalegt stjórn­arfar samkvæmt fyrri reynslu en leiðtogar talíbana lofa auknu umburðar­lyndi.

Flestir sérfræðingar spáðu því að talíbanar myndu fljótt sækja í sig veðrið eftir að Bandaríkja­menn drógu síðasta herlið sitt heim frá Afganistan. Stjórnin í Kabúl var gjör­spillt, hafði lítil völd utan stærstu borga landsins og naut ekki stuðnings almennings. Hversu hratt spila­borgin hrundi kom hins vegar mörgum í opna skjöldu, ekki síst ráða­mönnunum sjálfum í Kabúl.

„Þegar maður spyr sig hvers vegna afganski herinn streittist ekki á móti sókn talíbana verður fyrst af öllu að athuga hvernig hann varð til,“ segir Þórir Jónsson Hraundal, lektor við Háskóla Íslands. Hann kennir meðal annars arabísku og sögu Mið-Austur­landa.

Þórir Jónsson Hraundal

„Bandaríski herinn gerði þau regin­mistök að reyna að búa til afrit af sér sjálfum í landslagi og menningu þar sem það átti alls ekki við. Það gat aldrei gengið upp þrátt fyrir vilja til að ausa enda­lausum milljörðum dollara í þjálfun og tækjakost …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár