Pútín með öll trompin

Rússar valda stöð­ugum póli­tískum skjálftum í Washington DC.

Segja má að póli­tíska kerfið í Banda­ríkj­unum (les: Washington) leiki á reiði­skjálfi þessa dag­ana. Ekki aðeins vegna fundar Trump eldri með for­seta Rúss­lands, Vladimír Pútín, heldur vegna gjörða Trumps yngri.

Það var stór­blaðið New York Times sem afhjúpaði upp­lýs­ingar um fund Trump yngri með kven­kyns lög­fræð­ingi frá Rúss­landi sem heitir Natalia Ves­elnit­skaya. Af hverju öll þessi læti útaf honum?

Hvaða ,,skít“ áttu?

Markmið fund­ar­ins, sem hald­inn var um mitt síð­asta ár (júní 2016), var að fá afhentan ,,skít“ um Hillary Clinton, en þá var bar­áttan á milli hennar og Donald Trump eldri, um fos­eta­emb­ætti USA að nálg­ast hámark. Öllu var tjaldað til, til þess að grafa undin ,,crooked Hillary“ (svikulu Hillary), eins og Trump eldri hamr­aði stöðugt á.

Það er s.s. ekk­ert nýtt að menn reyni að grafa upp skít um sína póli­tísku and­stæð­inga. En það er kannski ekki á hverjum degi sem full­trúar for­seta­fram­bjóð­enda, opin­berir eða ekki, láti glepjast af útsend­urum höf­uð­and­stæð­ings­ins. Aug­ljós­lega hafa Rússar sett upp snilld­ar­fléttu og lagt gildru fyrir Trump og kompaní, sem þeir hafa aug­ljós­lega ekki áttað sig á.

Áður­nefnd Natalía var s.s. á fund­inum, sem fram fór í Trump-turn­inum (,,Kremlin“ Donalds Trumps eldri) og á honum voru Trump yngri, Paul Manafort, þá kosn­inga­stjóri Trumps og einnig er talið að tengda­sonur Trumps og helsti ráð­gjafi, Jared Kushner hafi ,,droppað inn“.

En sam­kvæmt Trump yngri kom eng­inn skítur um Clinton fram á fund­inum, heldur þró­að­ist fund­ur­inn út í eitt­hvað snakk um ætt­leið­ingar(!) Hvers­vegna ætt­leið­ingar?

Flækjustigið magnast

Hér flæk­ist málið tölu­vert. Árið 2012 setti banda­ríska þingið lög sem nefn­ast ,,The Magnist­sky Act“. Samkvæmt þeim má hópur rúss­neskra auð­manna ekki stunda við­skipti utan Rúss­lands. Þeir eru ,,frystir“ á aljþóða­vett­vangi. Vitað er að margir þess­ara manna hafa náin tengsl við Kreml og Pútín, sem vill sjá þessi lög ,,hverfa“.

Lögin bera hins­vegar nafn lög­fræð­ings­ins Sergei Magnit­sky, sem lést árið 2009 í haldi rúss­neskra yfir­valda og úr hverju hann lést hefur aldrei kom­ist á hreint. Hann hafði vakið athygli á gríð­ar­legri spill­ingu og þjófn­aði á rík­is­r­eigum í Rúss­landi og þar með kom­ist í ónáð yfir­valda. Hægt er að lesa um þetta í frá­bærri bók eftir Bill Browder, Eft­ir­lýstur, sem er eins­konar hryll­ings­saga úr heimi rúss­neskra við­skipta. Hér lýsir hann þessu einnig á Youtube. Browder stjórn­aði á sínum tíma risa­stórum fjár­fest­inga­sjóði (Hermitage Foundation) í Rúss­landi og Magnit­sky sá um skatta­málin fyrir hann.

Þannig að fund­ur­inn í turni Trumps fyrir um ári síðan, hefur að öllum lík­indum allt annan til­gang en gefið hefur verið upp og hefur einnig lík­lega mun lengri og dýpri teng­ingar. Frétta­skýrendur hafa sagt að raun­veru­legi til­gang­ur­inn með ,,fund­inum“ hafi verið að reyna að hafa áhrif á Trump og co til þess að afnema Magnit­sky-lögin, kæm­ist hann til valda.

En ætt­leið­ing­arnar? Jú, sam­kvæmt rúss­neskum lögum, sem sett voru í byrjun 2012 og eru talin vera ,,hefnd“ Pútíns vegna Magnistky-lag­anna, er banda­rískum fjöl­skyldum ekki heim­ilt að ætt­leiða rúss­nesk börn. Samkvæmt frétt á CNN hefur Natalía sett upp sér­stakan hóp (HRAGI), sem hefur það að mark­miði (að sagt er) að létta ætt­leið­ing­ar­lög­unum, þá mögu­lega gegn því að Magnist­sky-lög­unum yrði aflétt. Fléttan er því sú að í skjóli ætt­leið­inga koma því í kring að aflétta hömlum á rúss­neska auð­jöfra og áhrif­menn. Skapa þannig reyk­mökk.

[adspot]

Stóru málin sitja á hakanum

Mál þetta er allt hið und­ar­leg­asta. Í við­tali á Fox News þann 11.júlí í þætt­inum Hannity, sagð­ist Trump yngri að hann hefði kannski gert þetta öðru­vísi í dag. Hann sagði að ekk­ert hefði komið út úr þessum fundi og þetta hefðu verið ,,20 mín­útur til einskis“. Kannski var það einmitt til­gang­ur­inn hjá hini rússnsesku Natalíu. Að gefa ekki upp neitt, en kom­ast inn í hjarta Trump-veld­is­ins og þar með skaffa Rússum spil á hendi. Því það verður að segj­ast eins og er að Rússar hafa á und­an­förnum mán­uðum leikið sér að Banda­ríkja­mönnum, með öllu því sem kallað er ,,hakkið“ og meintri inn­blöndun Rússa í for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­rík­unum. Banda­rískir fjöl­miðlar hafa var talað um annað í marga mán­uði! Á meðan sitja stóru málin á hak­anum, eins og t.d. heil­brigð­is­málin, skatta­mál, inn­viðir og fleira.

Það má í raun segja að banda­ríska stjórn­kerfið sé hálf lamað vegna aðgerða Rússa, sem verður að segja þeim til hróss, hafa verið ótrú­lega snjallar. Þar kemur kannski reynsla ,,hæsta han­ans“ úr KGB sér að góðu. En hvernig gátu Trump-liðar verið svona hrika­lega barna­legir? Jú, eins og Trump yngri sagði á Fow; ...,,svona gengur þetta fyrir sig í biss­ness.“ Þeir voru sem sagt bara að beita sömu nálgun á hlut­ina og þeir gera í við­skiptum til þess að fá ,,skít“ til að klína á Clinton. Þá vitum við hvernig þau viðksipti ganga fyrir sig. Svo segj­ast þessir kallar vera nýgræð­ingar í póli­tík. En er þetta ekki sama aðferðin og þar?

Rússabangsinn bara hress

Og fundur Pútíns og Trumps, hver vann hann? Jú, Pútín, ekki nokkur spurn­ing. Í fyrsta lagi gaf hann sér 2.5 klst í fund­inn og hann slapp mjög vel undan spurn­ingum Trumps um mögu­lega inn­blöndun Rússa í for­seta­kosn­ing­arnar í fyrra. Trump spurði Pútín að sögn tvisvar um inn­blöndun, en Pútín sagði bara nei í bæði skiptin. Og þar við sat.

Staðan er ein­fald­lega þessi: Pútín hefur öll tromp á hendi, en Trump, ,,hinn mikli samn­inga­maður“, engin. Ekki eitt ein­asta! Rúss­neski björn­inn er því bara hress þessa dag­ana og glottir við tönn.

Höfundur er stjórn­mála­fræð­ingur og MA í stjórn­málum A-Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár