Kári: Skynsamlegt að ríkisstjórnin skipti sér beint af kjaradeilum

Kári Stef­áns­son skrifar í opnu bréfi til Katrínar Jak­obs­dóttur og Bjarna Bene­dikts­sonar að nú sé ekki aðeins æski­legt heldur skyn­sam­legt að rík­is­stjórnin skipti sér beint af kjara­deilum. Kári leggur til sjö liða kjara­bót sem mögu­legt fram­lag rík­is­ins.

Kári Stefánsson
Kári Stef­áns­son Mynd: Skjáskot

Kári Stef­áns­son, for­stjóri íslenskrar erfða­grein­ingar, segir að akkúrat núna sé ekki aðeins rétt­læt­an­legt heldur einnig skyn­sam­legt að rík­is­stjórnir skipti sér beint af deilum á vinnu­mark­aði. Í opnu bréfi hans á Facebook, sem stílað er á Katrínu Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að það sé ekki lík­legt að aðilar vinnu­mark­að­ar­ins geti kom­ist að sam­komu­lagi án þess að „eitt­hvað mik­il­vægt í íslensku sam­fé­lagi liggi í valnum“.

Hann segir þetta vera tæki­færi fyrir rík­is­stjórn­ina til þessa að sýna tölu­verða stjórn­kænsku við að verja hags­muni beggja aðila. Kári leggur því til sjö liða kjara­bót sem fram­lag rík­is­ins til kjara­mála sem hann segir að gæti gjör­breytt ástand­inu.

Líka að verja tilfinningar og sjálfsmynd aðila vinnumarkaðsins

Í bréfi sínu segir Kári að nú séu harð­vítug átök á vinnu­mark­aði, verka­lýðs­fé­lögin krefj­ist mik­illar hækk­unar launa á sama tíma og það kreppi að þeim atvinnu­vegum sem beri upp efna­hags­líf þjóð­ar­innar. „Laun­þegar í lægri kant­inum segj­ast ekki geta lifað mann­sæm­andi lífi af tekjum sínum og fyr­ir­tækin halda því fram að þau myndu enda í þroti ef launa­kostn­aður ykist. Í þessu til­felli er ekki loku fyrir það skotið að báðir aðilar hafi rétt fyrir sér,“ segir Kári í stöðu­upp­færslu sinni.

Jafn­framt segir hann það ekki lík­legt að aðilar vinnu­mark­að­ar­ins geti kom­ist að sam­komu­lagi án þess að eitt­hvað mik­il­vægt í íslensku sam­fé­lagi liggi í valnum. Því sé það nú ekki aðeins æski­legt heldur einnig skyn­sam­legt að rík­is­stjórnir skipti sér beint af deilum á vinnu­mark­aði. Hann segir það mik­il­vægt að gera sér grein fyrir því að verk­efnið sé ekki aðeins að verja efna­hags­lega heldur líka aðra hags­muni aðila vinnu­mark­að­ar­ins eins og til­finn­ingar þeirra og sjálfs­mynd.

Leggur til að fjármagnstekjuskattur verði hækkaður í 38 prósent

Kári leggur því til sjö liða fram­lag af hendi rík­is­ins sem gæti gjör­breytt ástand­inu. Þar á meðal leggur hann til að rík­is­stjórnin myndi hafa milli­göngu um leik­skólar yrðu ókeypis, að hætt yrði að inn­heimta greiðslu fyrir heil­brigð­is­þjón­ustu, að laun for­stjóra rík­is­fyr­ir­tækja yrðu færð til sam­ræmis við það sem fólk­inu í land­inu þykir eðil­legt og fjár­magns­skattur verði hækk­aður í 38 pró­sent.

Hann segir að slíkar aðgerðir myndu kosta sitt en að aftur á móti myndi sá kostn­aður blikna við hlið­ina á því tekju­tapi íslensks sam­fé­lags sem hlyt­ist af löngum verk­föllum. „Það er ein­fald­lega verk­efni rík­is­stjórn­ar­innar að leysa þann vanda á vinnu­mark­aði sem blasir við okkur í dag, og er það klár­lega mik­il­væg­asta verk­efni sem hún hefur staðið frammi fyrir. Ef hún treystir sér ekki til þess að bretta upp ermar og hoppa ofan í skurð­inn er eins gott fyrir ráð­herra hennar að fara að leita sér að vinnu ann­ars staðar.“ Að lokum segir Kári í bréf­inu að ef rík­is­stjórnin leggi sitt af mörkum á þann máta sem hann leggur til og verka­lýðs­for­ystan neiti að meta það að verð­leikum þá yrði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að verka­lýðs­for­yst­unni þyki vænna um átök en umbjóð­endur sína.

1. Rík­is­stjórnin hafi milli­göngu um að leik­skólar yrðu ókeypis. Það myndi létta byrð­ina svo um mun­aði hjá ungu fólki. Það er skringi­legt að það skuli vera skóla­gjöld á því eina stigi skóla­kerf­is­ins þar sem börn þeirra sem minnst eiga eru í meiri­hluta.

2. Hætt yrði að inn­heimta greiðslu af þeim sem leita til heil­brigð­is­kerf­is­ins, það yrði fjár­magnað alfarið af skattfé. Þegar það er skatt­lagt til þess að greiða fyrir heil­brigð­is­þjón­ustu er ekki verið að taka fé úr umferð sem gæti búið til meira verð­mæti ann­ars staðar sem er algeng rök­semd fyrir því að lækka skatta, vegna þess að heil­brigð­is­þjón­ustan er ekki mun­aður heldur nauð­syn og það er borgað fyrir hana hvort sem er. Það má leiða að því rök að um væri að ræða greiðslu­dreif­ingu sem lenti að vísu þyngra á þeim ríku en þeim fátæku, sem er kostur í stöð­unni.

3. Auka stuðn­ing við grunn­skól­ana vegna þess að þeir eru sá staður þar sem hægt er vinna að því að börn í erf­iðum aðstæðum fái tæki­færi til jafns á við önnur börn.

4. Rík­is­stjórnin sjái til þess að verð á raf­magni og hita hald­ist innan ákveð­inna marka. Lands­virkjun sem er í eigu rík­is­ins skil­aði betri afkomu á síð­asta ári en nokkru sinni fyrr en gaf samt út yfir­lýs­ingu um að hún ætl­aði að hækka gjald­skrá sína tölu­vert. Meira að segja í Banda­ríkj­unum, heima­landi hins óhefta kap­ít­al­isma, er fyr­ir­tækjum sem selja raf­magn og hita (utilities) snið­inn þröngur stakkur við verð­lagn­ingu.

5. Rík­is­stjórnin sjái til þess að laun for­stjóra rík­is­fyr­ir­tækja og stofn­ana og ann­arra á vegum hins opin­bera yrðu færð til sam­ræmis við það sem fólk­inu í land­inu finnst eðli­legt.

6. Fjár­magnstekju­skattur verði hækk­aður í 38%.

7. Ríkið leggi að mörkum til þess að koma á fót eðli­legum leigu­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár