Hvað er að gerast í heiminum? Verðfall á mörkuðum – Ísland í vari

Á meðan óvissa og nei­kvæðni hefur ein­kennt erlenda mark­aði í upp­hafi árs­ins, eru hag­vísar á Íslandi jákvæðir. George Soros telur að alþjóða­mark­aðir hafi nú svipuð ein­kenni og árið 2008.

Árið hefur ekki byrjað vel á verð­bréfa­mörk­uðum í heim­inum, og hefur þessi vika verið sögu­leg vegna mik­illa lækk­ana. Strax á mánu­dag­inn var tónn­inn gef­inn fyrir það sem á eftir hefur komið, þegar hluta­bréfa­verð í Kína (Shanghai-vísi­talan) lækk­aði um rúm­lega sjö pró­sent á einum degi. Í dag voru svo við­skipti með bréf stöðvuð um tíma, vegna hraðrar lækk­unar sem þá var um átta pró­sent.

Sama þróun hefur síðan haldið áfram á öðrum mörk­uðum, og hafa vísi­tölur í Evrópu lækkað um mikið að und­an­förnu. Einkum hefur lækk­unin verið skörp í Þýska­land, en lækkun DAX vísi­töl­unnar nemur um níu pró­sentum á síð­ustu tveimur vikum, sem þýðir að mark­aðsvirði skráðra félaga í vísi­töl­unni hefur lækkað um mörg þús­und millj­arða á skömmum tíma. Sömu sögu er að segja af Banda­ríkj­unum, Bret­landi, Frakk­landi og Japan. Rauðar tölur lækk­unar hvert sem litið er, að með­al­tali á bil­inu fjögur til sex pró­sent á und­an­förnum dögum.

Hvað er að gerast?

Skamm­tíma­sveiflur á hluta­bréfa­mörk­uðum segja oft lítið um það sem raun­veru­lega á sér stað, en þær geta gefið vís­bend­ingar um und­ir­liggj­andi veik- eða styrk­leika á mörk­uðum. George Soros, fjár­festir­inn sem þekktur eru fyrir stór veð­mál sín um gengi gjald­miðla, telur að heimskreppa geti verið í nánd. Þessi orð lét hann falla í morgun, þegar hann tjáði sig um mikið verð­fall á verð­bréfa­mörk­uðum og ekki síst áhyggjur fjár­festa af gangi mála í Kína. Óhætt er að segja að hag­vaxt­ar­tölur í Kína hafi verið með ólík­indum und­an­farin fimmtán ár en hag­kerfið hefur vaxið um á bil­inu sjö til tólf pró­sent á hverju ári á þeim tíma.

En nú eru blikur á lofti. Í byrjun árs­ins birt­ust nýjar hag­tölur, sem þóttu sýna slaka í hag­kerf­inu og minni eft­ir­spurn en flestar spár höfðu gert ráð fyrir, sam­kvæmt fréttum Wall Street Journal. Við þessar fréttir virt­ist trú­verð­ug­leiki gjald­mið­ils­ins, júans­ins, minnka á meðal alþjóð­legra fjár­festa. Þessi tið­indi bætt­ust við önnur frá und­an­förnum mán­uðum, þar sem efa­semdir hafa komið upp um kín­verska hag­kerfið, með til­heyr­andi verð­falli og titr­ingi.

Til ein­föld­unar má segja að fjár­festir trúi ekki lengur á að hag­vöxtur í Kína geti verið eins mik­ill og hann hefur verið að und­an­förnu, og að aðgerðir stjórn­valda til að örva hag­kerfið, í gegnum pen­inga­stefn­una meðal ann­ars, séu ekki trú­verð­ugar. Soros heldur því fram, líkt og margir fleiri, að staða mála nú minni á svika­lognið árið 2008, áður en fjár­mála­mark­aðir hrundu eins og spila­borg, áður en þeir voru hífðir upp á nýjan leik af seðla­bönkum.

Soros sagði, í erindi sem hann fluti á ráð­stefnu í Sri Lanka í morgun, að það ríkti mikið ójafn­vægi í efna­hags­málum Kína, miklar og tíðar sveiflur á eigna­verði, og skuld­setn­ing í ákveðnum geirum væri mikil. Þetta leiddi hug­ann að því að und­ir­stöð­urnar væru ekki nægi­lega traustar.

Soros hefur náð ein­stökum árangri á verð­bréfa­mörk­uðum frá því hann hóf að reka vog­un­ar­sjóði, en frá árinu 1969 og til 2011 hefur með­al­talsárs­á­vöxtun hans verið rúm­lega 20 pró­sent, og eru eignir hans per­sónu­lega metnar á 27,1 millj­arð Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 3.500 millj­örðum króna. Soros er einna þekkt­astur fyrir að hafa hagn­ast um einn millj­arð punda, tæp­lega 200 millj­arða króna, þegar hann veðj­aði á veik­ingu punds­ins árið 1992.

Eins og Kjarninn greindi frá í frétta­skýr­ingu á gaml­árs­dag þá vakti það athygli margra, að Kína væri ekki á topp tíu lista The Economist fyrir árið 2016, þegar kom að því að spá fyrir um hag­vöxt. Það er í fyrsta skipti í 19 ár sem það ger­ist, en eina stóra ríkið á list­anum að þessu sinni er Indland, með um sjö pró­sent hag­vöxt.

Olían hefur hrunið í verði

Þó áhyggjur manna af Kína séu að magn­ast, með til­heyr­andi titr­ingi og erf­ið­leikum þjóða sem eru háð við­skiptum við þetta fjöl­menn­asta ríkið heims, þá hefur verð­fall á olíu þótt helsta ein­kennið um að eitt­hvað und­ar­legt sé á seyði. Á fimmtán mán­aða tíma­bili hefur hrá­olía fallið úr 111,2 Banda­ríkja­dölum á tunn­una niður í 33,3 dali í dag. Það er rúm­lega 70 pró­sent fall.

Olíu­fram­leiðslu­ríki hafa fundið fyrir þessu, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Brasilía, stærsta ríki Suður-Ameríku með meira en 200 millj­ónir íbúa (meira en öll Suður-Evrópa) er nán­ast í frjálsu falli, og Rússland og Nígería hafa einnig gengið í gegnum erf­iða tíma sem ekki sér fyrir end­ann á á meðan olíu­verðið helst lágt. Norðmenn eru einnig að upp­lifa mik­inn sam­drátt, einkum í þjón­ustu­iðn­aði við olíu­geir­ann, meðal ann­ars í skipa­þjón­ustu við olíu­bor­p­alla. Íslenska félagið Fáfnir Offshore, sem Kjarninn hefur skrifað frétta­skýr­ingar um að und­an­förnu, berst nú í bökkum vegna þess­ara hlið­ar­á­hrifa af hröðu falli olíu­verðs­ins. Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eiga mikið undir í starf­semi félags­ins.

Almennt er litið svo á að olíu­verð þurfi að vera yfir 60 Banda­ríkjdalir svo að olíu­geir­inn í Noregi og við Norð­ur­sjó gangi ásætt­an­lega. Spár gera flestar ekki ráð fyrir því að verðið muni hækka upp í þá tölu á þessu ári, og því er ekki ólík­legt að erf­ið­leikar muni víða koma fram í olíu­iðn­að­inum á næst­unni, ekki síst í Noregi.

Ísland í vari hafta

Ísland er í þeirri und­ar­legu stöðu, þegar þessar hremm­ingar ganga yfir víða, að vera í vari fjár­magns­hafta og með flesta hag­vísa í jákvæðar áttir. Hag­vöxtur er mik­ill í alþjóð­legum sam­an­burði, þrjú til fjögur pró­sent, atvinnu­leysi er lítið, 2,8 pró­sent, og verð­bólga hefur aldrei þessu vant, hald­ist undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­aði í dágóðan tíma. Hún mælist nú tvö pró­sent. Seðla­banki Íslands hefur varað við því að verð­bólga kunni að aukast á næst­unni vegna áhrifa af kjara­samn­ingum, og 20 til 30 pró­sent launa­hækk­ana á þriggja ára tíma­bili, sem um var samið á nær öllum vinnu­mark­aðnum íslenska. Verð­bólgu­draug­ur­inn hefur þó látið bíða eftir sér lengur en spáð var í fyrstu eftir að samið var um kaup og kjör.

Þá hefur þróun á hluta­bréfa­mark­aði hér lendis verið mun jákvæð­ari fyrir fjár­festa en víð­ast hvar ann­ars staðar en í fyrra var ávöxt­unin 43 pró­sent á íslenska mark­aðnum.

Verð­fallið á olíu hefur haft jákvæð áhrif á íslenskan efna­hag, ef litið er fram­hjá óbeinum áhrifum. Útgerð­ar­fyr­ir­tæki þurfa að greiða minna fyrir olíu á flot­ann, íslenskir neyt­endur minna fyrir olí­una á öku­tæki – þó verð á inn­an­land­l­ans­mark­aði hafi aldrei sveifl­ast með heims­mark­aðs­verði, meðal ann­ars vegna opin­berra gjalda sem inn í sölu­verð­inu eru – og verð­bólgu­á­hrif eru almennt jákvæð fyrir almenn­ing.

Fjár­magns­höftin hafa síðan hlíft Íslandi við miklum sveiflum á mark­aði, og komið á stöð­ug­leika í gengis- og pen­inga­málum, þó nei­kvæðu áhrifin séu aug­ljós einnig. Einkum ein­angr­un­ar­ein­kenni og lítil tengsl við alþjóða­mark­aði og fjár­festa.

En á þessu ári stendur til að losa um höftin, eins og kunn­ugt er, lækka opin­berar skuldir enn meira, eða niður í um 50 pró­sent af árlegri lands­fram­leiðslu, og end­ur­skipu­leggja eigna­hald á banka­kerf­inu. Vissu­lega krefj­andi verk­efni, en ef vel tekst til mun íslenskur efna­hagur standa traust­ari fótum en reyndin er víða ann­ars staðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár