Afgangur af utanríkisviðskiptum 160 til 170 milljarðar króna - Kröftugt efnahagsár

Um ell­efu pró­sent aukn­ing var á útflutn­ing­tekjum þjóð­ar­bús­ins í fyrra, sam­kvæmt upp­lýs­ingum grein­ing­ar­deildar Arion banka. Hagur Íslands stór­batn­aði í fyrra frá fyrra ári.

„Á árinu 2015 var tals­verður upp­gangur í efna­hags­líf­inu, sem bæði skýrist af og end­ur­spegl­ast í öfl­ugum inn- og útflutn­ingi. Þetta eru góð tíð­indi þar sem Ísland er lítið og sér­hæft hag­kerfi og þar af leið­andi mjög háð við­skiptum við útlönd.“

Svona hefst umfjöllun grein­gar­deildar Arion banka, þar sem fjallað er um inn- og útflutn­ings­við­skipti á árinu 2015.

Ekki liggja fyrir allar tölur um utan­rík­is­við­skipti árið 2015 en grein­ing­ar­deildin áætlar að heild­ar­út­flutn­ingur hafi numið nærri 1.200 millj­örðum króna, sem er ell­efu pró­sent aukn­ing í krónum talið frá fyrra ári, en að inn­flutn­ingur hafið numið rúm­lega 1.000 millj­örðum, sem er um átta pró­sent aukn­ing. Munar ekki síst um mik­inn kraft í ferða­þjón­ustu.

Þetta þýðir að afgangur af utan­rík­is­við­skiptum var lík­lega nálægt 160 til 170 millj­arðar króna árið 2015, sam­an­borið við 125 millj­arða króna árið 2014, af því er fram kemur í umfjöll­un­inni.

Sterkara gengi og lægri skuldir

Að með­al­tali var gengið um þremur pró­sentum sterkara árið 2015, og því er vöxtur inn­flutn­ings og útflutn­ings á föstu gengi meiri sem því nemur. Samhliða þess­ari þróun hefur staða rík­is­sjóðs vænkast mikið, frá fyrra ári, en undir lok árs­ins greiddi rík­is­sjóður niður skuldir um tæp­lega 50 millj­arða króna, eins og kunn­gjört var í gær.

Greiðslan var innt af hendi undir lok síð­asta árs og er um að ræða eina stærstu ein­stöku afborgun af skuldum rík­is­sjóðs til þessa. Afborg­unin fór þannig fram að sjóðs­staða rík­is­sjóðs hjá Seðla­bank­anum var lækkuð. Heild­ar­skuldir rík­is­sjóðs í árs­lok 2015 eru áætl­aðar um 1.349 ma.kr. til sam­an­burðar við 1.492 ma.kr. í árs­lok 2014. Sam­svarar það um tíu pró­sent lækkun skulda á milli ára. Á árinu 2016 er áætlað að skuldir rík­is­sjóðs lækki enn frekar og nemi 1.171 millj­örðum króna í lok árs­ins. Það er upp­hæð sem nemur um 50 pró­sent á áætl­aðri lands­fram­leiðslu þessa árs.

Aukin umsvif

Með áfram­hald­andi aukn­ingu inn­lendrar eft­ir­spurnar og fjölgun ferða­manna, á sama tíma og áætlun um losun hafta verður hrint í fram­kvæmd, eru horfur á að utan­rík­is­við­skipti muni halda áfram að aukast á þessu ári, að því er fram kemur í umfjöllun grein­ing­ar­deildar Arion banka.

„Aukinn afgangur af utan­rík­is­verslun hefur, ásamt öðru, gert það að verkum að Seðla­bank­inn safn­aði mun hraðar í gjald­eyr­is­forð­ann í fyrra heldur en árið 2014. Það ár námu hrein gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans 111 millj­örðum króna en í fyrra voru þau 272 millj­arðar, þar af 44 millj­arðar í des­em­ber. Sitthvað fleira er þarna á ferð­inni heldur en ein­ungis afgangur af utan­rík­is­við­skiptum, eins og svarta línan á mynd­inni hér að neðan gefur til kynna. Ef afgangur af utan­rík­is­við­skiptum á árinu 2015, með áætlun grein­ing­ar­deildar fyrir 4. árs­fjórð­ung, er dregin frá gjald­eyr­is­kaupum Seðla­bank­ans eru ríf­lega 100 millj­arðar sem hafa bæst við í forð­ann og skýr­ast af stórum hluta af ann­ars­konar hreinu fjár­magnsinn­flæði,“ segir í umfjöll­un­inni.

Vaxtamunarviðskipti erlendra aðila

Í greiðslu­jafn­að­ar­tölum fyrir 3. árs­fjórð­ung 2015 mátti sjá tals­verða erlenda fjár­fest­ingu, einkum og sér í lagi í rík­is­skulda­bréfum, sem útskýrir að miklu leyti þennan mis­mun. Á síð­asta árs­fjórð­ungi er útlit fyrir að þessi mis­munur hafi verið enn meiri, en Seðla­bank­inn keypti erlendan gjald­eyri að and­virði 75 millj­arða á fjórð­ungnum, sem er nærri 60 millj­örðum króna meira en við áætlum að hafi verið í afgang af utan­rík­is­við­skiptum.

Þessi þróun er mik­ill við­snún­ingur frá því sem áður var en fram til árs­ins 2014 keypti seðla­bank­inn erlendan gjald­eyri í mun minna mæli á meðan tals­verður afgangur var af utan­rík­is­við­skiptum.

Þessi miklu gjald­eyr­is­kaup seðla­bank­ans hafa orðið á sama tíma og krónan hefur verið að styrkj­ast, og inn­grip seðla­bank­ans hafa þá verið öðru fremur til að halda krón­unni veik­ari en hún hefði ella verið.

Verðbólgudraugurinn ekki farinn á stjá

Pen­ings­tefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur býst við því að verð­bólga muni aukast nokkuð á þessu ári, ekki síst vegna áhrifa kjara­samn­ing, en á árinu 2015 var samið um launa­hækk­anir á almennum og opin­berum vinnu­mark­aði upp á 20 til 30 pró­sent yfir þriggja ára tíma­bil. Þetta telur Seðla­banki Íslands að sé nokkuð umfram fram­leiðni­vöxt og því muni hækk­an­irnar skila sér í auk­inni verð­bólgu til lengri tíma litið.

Verð­bólgan, sem mælist nú um tvö pró­sent, hefur ekki hækkað eins hratt og búist var við, á síð­ari hluta árs­ins í fyrra, og hefur þar spilað inn í að miklar lækk­anir hafa ein­kennt hrá­vöru­mark­aði erlendis að und­an­förnu. Olía hefur lækkað mikið, sé horft til síð­ustu tólf mán­aða, eða úr tæp­lega 110 Banda­ríkja­dölum í 37, þegar horft er til hrá­ol­íu­tunn­unar. Þessar miklu lækk­anir hafa áhrif á verð­lag inn­fluttra vara, og þá til lækk­unar að und­an­förnu.

En þegar fram í sækir, segir seðla­bank­inn að verð­bólga muni hækka, en eins og alltaf þegar verð­bólgu­mæl­ingar á Íslandi eru ann­ars vegar, þá er vandi að spá fyrir um þær til fram­tíðar litið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár