Af sem áður var - 480 milljarðar í plús á þremur og hálfu ári

Ótrú­legur við­snún­ingur hefur orðið á utan­rík­is­verslun lands­ins. Á meðan mik­ill halli er á vöru­við­skiptum þá blómstrar ferða­þjón­usta.

Óhætt er að segja að það mikla gjald­eyr­is­inn­streymi sem fylgt hefur vext­inum í ferða­þjón­ust­unni á und­an­förnum árum hafi gjör­breytt íslenska hag­kerf­inu. Á þremur á hálfu ári nemur afgangur af vöru- og þjón­ustu­við­skiptum 480 millj­örðum króna.

Munar þar lang­sam­lega mest um mik­inn afgang af þjón­ustu­við­skiptum, og þar er ferða­þjón­ustan lang­sam­lega fyr­ir­ferða­mest. Við­var­andi halli er þó á vöru­við­skiptum, en á síð­asta árs­fjórð­ungi jókst hann um 25 millj­arða króna frá sama tíma í fyrra, og var 47,5 millj­arðar króna. Afgangur af vöru- og þjón­ustu­við­skiptum nam 68 millj­örðum á þriðja árs­fjórð­ungi þessa árs en hann var yfir 100 millj­arðar á sama tíma í fyrra.

Í hag­sjá hag­fræði­deildar Lands­bank­ans er þetta gert að umtals­efni og sagt að þetta sé mikil breyt­ing frá því sem hefur verið raunin lengst af íslenskri hag­sögu. Við­var­andi við­skipta­halli hefur gert okkur lífið leitt, má segja, og er talað um „krónískan“ halla í úttekt Lands­bank­ans.

Breyt­ingin til hins betra er mikil, og eins og áður sagði þá munar mest um hinn ótrú­lega vöxt sem verið hefur í ferða­þjón­ust­unni.

Árið 2010 komu um 450 þús­und ferða­menn til lands­ins, en gert er ráð fyrir að þeir verði um 2,3 millj­ónir á þessu ári og jafn­vel upp undir þrjár millj­ónir árið 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár