Erfitt að meta árangur sérstaks saksóknara

Af þeim 806 málum sem emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara tók við á starfs­tíma sínum, árin 2009 til 2015, voru 208 mál sem vörð­uðu upp­haf­legt verk­efni emb­ætt­is­ins, rann­sókn og sak­sókn mála sem tengd­ust hrun­inu. Af þessum 208 málum lauk emb­ættið 173 þeirra, 27 voru í vinnslu þegar emb­ættið var lagt niður og átta mál biðu afgreiðslu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar á emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara.

46 hrun­mál fóru í ákæru­með­ferð á meðan emb­ættið var starf­andi, og end­an­leg dóms­nið­ur­staða fékkst í níu málum, þar af féllu átta dómar í Hæsta­rétti. Sakfellt var að hluta eða öllu leyti í sjö málum en sýknað í tveimur.

Rík­is­end­ur­skoðun segir að almennt hafi með­ferð hrun­mál­anna verið tíma­frek og kostn­að­ar­söm. „Mörg þeirra voru flókin í rann­sókn, stundum teygði rann­sóknin sig út fyrir land­stein­ana og oft varð löng bið eftir gögnum. Oft gripu sak­born­ingar líka til viða­mik­illa varna þar sem reyndi á rétt­ar­fars­leg atriði,“ segir í skýrsl­unni. Alls voru 94 mál í vinnslu í meira en tvö ár, og 45 af þeim voru í lengri tíma en fjögur ár í vinnslu. Lengsti rann­sókn­ar­tími eins máls voru 6,4 ár.

Rík­is­end­ur­skoðun segir að erfitt sé að meta árangur emb­ætt­is­ins þegar litið sé til máls­með­ferðar, nýt­ingar fjár­muna og skil­virkni. Margar ástæður eru fyrir því, meðal ann­ars að ekki er kveðið á um árang­ur­svið­mið í lögum, og engin slík við­mið voru sett þegar emb­ættið var sett á lagg­irnar. Þá er óger­legt að meta hversu mörgum vinnu­stundum emb­ættið varði í ein­stök mál og hver kostn­að­ur­inn var vegna þess að tíma­skrán­ing hjá emb­ætt­inu var ófull­nægj­andi. Rík­is­end­ur­skoðun beinir því til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara, sem tók við af sér­stökum sak­sókn­ara, að taka upp verk­bók­hald til þess að yfir­sýn fáist um alla þætti máls­með­ferðar hjá emb­ætt­inu.

Skorti á stuðning innanríkisráðuneytis

Rík­is­end­ur­skoðun segir að stjórn­völd hafi veitt emb­ætt­inu full­nægj­andi fjár­hags­legan stuðn­ing, en að nokkuð hafi skort upp á annan stuðn­ing inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við emb­ættið. „Aldrei var óskað eftir fjár­laga­til­lögum þess og þegar emb­ættið tók við efna­hags­brota­deild rík­is­lög­reglu­stjóra 1. sept­em­ber 2011 var athuga­semdum þess lítið sinnt og ekki með form­legum hætti. Rík­is­end­ur­skoðun telur að ráðu­neytið hefði mátt standa betur að þessum málum og hvetur það til að gera árang­urs­stjórn­un­ar­samn­ing við emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara með mæl­an­legum og tíma­settum mark­miðum,“ segir í skýrsl­unni.

Þá er sagt að flutn­ingur efna­hags­brota­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra til sér­staks sak­sókn­ara hafi haft nei­kvæð áhrif á fram­vindu ann­arra mála, en inn­an­rík­is­ráðu­neytið hefði að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar þurft að standa betur að flutn­ingnum.

Þá var því frestað í tvígang að leggja niður emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara, en sú óvissa og tafir við skipun í emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara höfðu óæski­leg áhrif á rekstur og mannauð emb­ætt­is­ins, að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Í skýrslu sinni er því beint til ráðu­neyt­is­ins að efla sam­skipti og stuðn­ing við hér­aðs­sak­sókn­ara, vanda þurfi flutn­ing mála­flokka og sam­ein­ingu stofn­ana og ljúka gerð réttar­ör­ygg­is­á­ætl­unar, en það yrði stórt skref í átt að rétt­lát­ari og skil­virk­ari máls­með­ferð.

Jafn­framt er því beint að bæði ráðu­neyt­inu og rík­is­lög­reglu­stjóra að huga þurfi að upp­færslu og þróun mála­skrár­kerf­is­ins sem lög­reglan notar, LÖKE.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár