Hin útvöldu innan við tíu prósent umsækjenda

Samtals sóttu 221 ein­stak­lingar eftir því að sitja í stjórnum fjár­mála­fyr­ir­tækja í eigu rík­is­ins þegar Banka­sýslan aug­lýsti eftir því. Búið var að til­nefna átján ein­stak­linga í fram­boð til stjórnar- og banka­ráðs­starfa stuttu eftir að frestur rann út.

Banka­sýsla rík­is­ins, sem fer með eign­ar­hluti í fjár­mála­fyr­ir­tækjum fyrir hönd íslenska rík­is­ins, neitar að gefa upp nákvæm­lega hvaða aðila val­nefnd lagði til að yrðu skip­aðir í banka­ráðs Lands­bank­ans og stjórn Íslands­banka. Ríkið á ríf­lega 98 pró­sent eign­ar­hlut í Lands­bank­anum en allt hlutafé í Íslands­banka. For­stjóri Banka­sýsl­unnar, Jón Gunnar Jónsson, segir þó að þeir sem til­nefndir voru í stjórn­irnar hafi komið frá val­nefnd­inni, eins og lög gera ráð fyrir.

Samtals sóttu 221 um að fá að sitja í stjórnum fjár­mála­fyr­ir­tækja sem ríkið á að fullu eða að hluta og er með stjórn­ar­menn hjá, þegar Banka­sýslan aug­lýsti eftir fólki, 19. mars, sam­kvæmt svari frá Banka­sýsl­unni við fyr­ir­spurn Kjarnans. Með vara­mönnum eru átján stjórn­ar­menn í stærstu bönk­unum tveimur, Landbs­bank­anum og Íslands­banka. Það eru aðeins um 8,1 pró­sent af þeim fjölda sem sótt­ist eftir stjórn­ar­setu. Má því segja að þau sem valin voru úr þessum stóra hópi séu hin útvöldu í þessu mik­il­vægu störf, sem stjórnir fjár­mála­fyr­ir­tækja í eigu rík­is­ins hér á landi eru. Ríkið er nú með yfir 70 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á fjár­má­mark­aði.

Lands­bank­inn er stærsta fyr­ir­tæki lands­ins, sé horft til eig­in­fjár­stöðu, en í lok síð­asta árs nam eig­infé bank­ans ríf­lega 260 millj­örðum króna og hjá Íslands­banka var það rúm­lega 200 millj­arðar.

Sigurður Þórðarson leiðir valnefnd

Ný val­nefnd, sem starfar eftir lögum um Banka­sýsl­una, var komið á lagg­irnar tveimur dögum áður en aug­lýst var eftir stjórn­ar­mönnum, eða 17. mars. „Með vísan til ákvæðis 7. gr. laga nr. 88/2009 um Banka­sýslu rík­is­ins voru eft­ir­taldir ein­stak­lingar skip­aðir í val­nefnd með bréfi dags. 11. mars sl. Þau eru, Auður Bjarna­dóttir ráð­gjafi hjá Capacent, Þórdís Inga­dóttir dós­ent við laga­deild Háskól­ans í Reykja­vík og Sigurður Þórð­ar­son fyrr­ver­andi rík­is­end­ur­skoð­andi, sem jafn­framt er for­maður nefnd­ar­innar,“ sagði í frétt um skipan val­nefnd­ar­innar á vef Banka­sýsl­unnar.

Umsókn­ar­frest­ur­inn til að sækj­ast eftir stjórn­ar­stör­f­unum rann út 30. mars. Ljóst er því að val­nefndin hefur þurft að hafa hraðar hendur, til að fara í gegnum 221 umsókn, og greina hvaða fólk var best til þess fallið að taka sæti í stjórn Lands­bank­ans og Íslands­banka.

Tæplega tveimur vikum eftir að umsókn­ar­frest­ur­inn rann út, var til­kynnt um hvaða fólk væri í fram­boði til setu í banka­ráði Lands­bank­ans og í stjórn Íslands­banka. Kjöri banka­ráðs Lands­bank­ans var frestað, 14. apríl síð­ast­lið­inn, þar sem borg­ar­yf­ir­völd fóru fram á að Birgir Björn Sig­ur­jóns­son, fjár­mála­stjóri Reykja­vík­ur­borgar, myndi draga fram­boð sitt til setu í banka­ráð­inu til baka, þar sem slíkt myndi ekki sam­ræm­ast anna­sömum störfum fyrir borg­ina. Birgir Björn gerði það, og fór svo, eftir að kosn­ingu um nýtt banka­ráð hafði verið frestað, að nýtt banka­ráð var kosið á fram­halds­að­al­fundi 25. apríl.

Banka­ráðið skipa Helga Björk Eiríks­dóttir, for­maður, Berglind Svav­ars­dóttir, Danielle Pamela Neben, Einar Þór Bjarna­son, Hersir Sig­ur­geirs­son, Jón Guðmann Pét­urs­son og Magnús Pét­urs­son.

Ný stjórn Íslands­banka var form­lega kosin 19. apríl. Sem aðal­menn voru til­nefnd Friðrik Soph­us­son, sem for­maður, Árni Stef­áns­son, Anna Þórð­ar­dóttir, Auður Finn­boga­dóttir, Hall­grímur Snorra­son, Heiðrún Jóns­dóttir og Helga Valfells.

Á að tryggja kynjajafnrétti og starfa eftir reglum

Samkvæmt fyrr­greindum lögum til­nefnir val­nefndin ein­stak­linga fyrir hönd rík­is­ins sem rétt hafa til setu í banka­ráðum eða stjórnum fyr­ir­tækja á for­ræði stofn­un­ar­innar. Val­nefndin á að tryggja að í banka­ráðum og stjórnum fjár­mála­fyr­ir­tækja sitji sem næst jafn­margar konur og karlar. Stjórn Banka­sýslu rík­is­ins óskar hverju sinni form­lega eftir til­nefn­ingum val­nefndar um stjórn­ar­menn fyrir stjórn­ar­kjör í hlut­að­eig­andi banka­ráðum eða stjórnum.

Samkvæmt lögum um Banka­sýsl­una þá er það stjórn Banka­sýsl­unnar sem ræður ferð­inni, þegar kemur að starfi val­nefnd­ar­innar. Stjórn Banka­sýslu rík­is­ins skipa þau Lárus L. Blöndal, stjórn­ar­for­maður, Hulda Dóra Styrm­is­dóttir, vara­for­maður og Sigurjón Örn Þórsson. Hún setur nefnd­inni starfs­reglur þar sem fram koma þau við­mið sem val­nefndin styðst við í mati sínu á hæfni, menntun og reynslu ein­stak­linga sem til greina koma til setu í banka­ráðum eða stjórnum fyr­ir­tækja. Í þessum starfs­reglum, sem birtar eru á vef Banka­sýsl­unnar, kemur meðal ann­ars fram að val­nefndin skuli í hvert sinn til­nefna til Banka­sýslu rík­is­ins tvo til þrjá ein­stak­linga fyrir „hvert sæti sem losnar í stjórnum eða banka­ráðum.“

Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins, segir að eftir þess­ari leið­sögn frá val­nefnd­inni undir leið­sögn Sigurðar hafi verið farið í þetta skiptið. „Valnefnd til­nefnir svo 2-3 ein­stak­linga og stjórn Banka­sýsl­unnar velur svo úr þeim til­nefn­ingum þá aðila sem kjörnir verða á aðal­fundi við­kom­andi fjár­mála­fyr­ir­tækis. Af þeim sökum hafa allir ein­stak­lingar sem valdir hafa verið í stjórnir verið til­nefndir af val­nefnd og það var einnig í þetta skipti,“ segir Jón Gunnar.

Að minnsta kosti tveir stjórn­ar­menn þurftu að gera breyt­ingar á störfum sínum, eftir að þau sam­þykktu að bjóða sig fram í stjórn Íslands­banka. Heiðrún Jóns­dóttir var stjórn­ar­for­maður Íslenskra verð­bréfa en hefur látið af því starfi og hefur Eiríkur S. Jóhanns­son tekið við því. Ekki er heim­ilt sam­kvæmt íslenskum lögum að sitja í stjórnum tveggja fjár­mála­fyr­ir­tækja á sama tíma.

Auður Finn­boga­dóttir er hætt sem stjórn­ar­for­mað­ur­ ­Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið veitti henni lausn frá setu í stjórn stofn­un­ar­innar með bréfi sem dag­sett var 18. apríl 2016. Dag­inn eft­ir, þann 19. apr­íl, var Auður kosin í stjórn Íslands­banka.

Lögin um Banka­sýslu rík­is­ins og val­nefnd­ina sem til­nefna á ein­stak­linga til setu í stjórnum, voru upp­haf­lega sett til að tryggja að stjórn­mála­flokkar færu ekki póli­tískt að hand­velja fólk inn í stjórnir bank­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár