Fréttir

Hug­myndir að mögu­legum aðgerðum fyr­ir­ferð­ar­miklar

Alls eru 150 aðgerðir í upp­færðri aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum. Lítill hluti þeirra eru beinar lofts­lags­að­gerðir sem búið er að meta með til­liti til sam­dráttar fyrir árið 2030, en alls eru 66 á hug­mynda­stigi. Formaður Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands segir svo­kallað sjálf­stætt mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar um sam­drátt í losun mark­laust bull og að atvinnu­lífið hafi gefið lofts­lags­ráð­herr­anum Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni langt nef með við­brögðum sínum við áætl­un­inni í sumar.
Fréttir

Geta varla vísað Yazan úr landi eftir 21. sept­em­ber

Þann 22. sept­em­ber næst­kom­andi bera íslensk stjórn­völd ábyrgð á hæl­is­um­sókn hins 11 ára gamla Yazans Tamimis. Lagalega séð mega íslensk stjórn­völd þá ekki lengur vísa honum og for­eldrum hans til Spánar og ólík­legt verður að telj­ast að þeim verði vísað til Palest­ínu, þaðan sem þau eru upp­runa­lega. Lög­fræð­ingur fjöl­skyld­unnar seg­ist þó bera lítið traust til emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra eftir atburði næt­ur­innar.
Fréttir

Beiðni útlend­inga­stofn­unar um brott­vísun „ekki verið tíma­sett“

Marín Þórs­dóttir, verk­efn­is­stjóri hjá Rík­is­lög­reglu­stjóra segir að lög­regla hafi verið að fram­fylgja úrskurði Útlend­inga­stofn­unar þegar Yazan Tamimi var sóttur í nótt með það fyrir augum að fylgja honum úr landi. Beiðnin hafi ekki verið tíma­sett. Guðrún Haf­steins­dóttir, dóms­mála­ráð­herra fór fram á að hætt yrði við að flytja Yazan Tamimi úr landi í morgun.
Pistill

Illugi Jökulsson

Sigraði VG Sjálf­stæð­is­flokk­inn? Nei, allir töp­uðu og Yasan líka

Hinni ótrú­legu atburða­rás gær­kvölds­ins — þegar lög­reglu­menn mættu á sjúkra­hús til þess að vísa úr landi 11 gömlum fötl­uðum og veikum dreng og fluttu hann með valdi suður á Kefla­vík­ur­flug­völl — henni lauk sem betur fer með því að hætt var við allt saman. Maður getur haft ýmsar skoð­anir á mál­efnum útlend­inga og hæl­is­leit­enda en brott­vísun Yasans litla — og...

Mest lesið undanfarið ár