Sigtryggur gíraffi
Mynd dagsins

Sig­tryggur gíraffi

Það er einn gíraffi í Hlíðunum, hann heitir Sig­tryggur og er úr járni. Í Afríku eru um 70.000 villtir gíraffar og hefur þeim fækkað um 40% á síð­ustu árum. Þetta eru stórar skepnur, full­orðnir vega þeir tonn og karl­dýrin verða um 5,5 metra há, kven­dýrin eru 40 cm lægri. Gíraffar eru hæstu skepnur jarðar og verða að með­al­tali 35 ára gamlir. IUCN sam­tökin hafa nýverið sett gíraffa á lista yfir þau dýr sem eru í alvar­legri hættu, næsta stig er rautt: útrým­ing­ar­hætta.
Brunarústir á Bræðra­borg­ar­stíg
Mynd dagsins

Bruna­rústir á Bræðra­borg­ar­stíg

Það eru að nálg­ast sjö mán­uðir síðan kveikt var í hús­inu á horni Vest­ur­götu og Bræðra­borg­ar­stígs, þar sem þrjú ung­menni lét­ust. Óskilj­an­legt er að húsið standi enn, eins og minn­is­varði um þennan hörmu­lega atburð. Í skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar, sem birt var í lok síð­asta árs, kemur fram að húsið var „óbyggi­legt frá bruna­tækni­legu sjón­ar­horni“. Þegar brun­inn varð þann 25. júní voru 73 ein­stak­lingar með lög­heim­ili í hús­inu.
Verði ljós
Mynd dagsins

Verði ljós

Norð­ur­ljósin voru óvenju sterk yfir höf­uð­borg­inni snemma í gærkveldi. Þessi und­ur­fal­legu ljós sem dansa í um 100 km hæð, verða til þegar hrað­fleygar raf­hlaðnar agnir frá sól­inni rekast í atóm og sam­eindir í loft­hjúpi jarðar. Á mynd­inni má líka sjá ljósið frá Frið­ar­súlu Yoko Ono, sem er til minn­ingar um eig­in­mann hennar, John Lennon. Venjan er að slökkt sé á Frið­ar­súl­unni á dán­ar­degi Lennon, þann 8. des­em­ber, en í ljósi aðstæðna í heim­inum fær hún að lýsa áfram, fram að jafn­dægri að vori.
Gullfallegur foss
Mynd dagsins

Gull­fal­legur foss

Á árinu 2019 komu hátt í tvær millj­ónir ferða­manna til að bera Gullfoss augum. Í morgun var ekki sála sjá­an­leg, við eða kringum þennan gull­fal­lega foss, sem er sam­tals 32 metra hár. Fossinn og gljúfrið, er nú í eigu okkar allra, en svæðið var frið­lýst árið 1979. Árinu áður var reistur minn­is­varði af Sigríði Tóm­as­dóttur frá Bratt­holti við foss­inn. En hún var í flokki for­víg­is­manna nátt­úr­verndar á Íslandi og barð­ist með oddi og egg gegn því að Gullfoss yrði virkj­aður á fyrri hluta síð­ustu aldar. Hita­stigið í morgun, mínus 12.

Mest lesið undanfarið ár