Myndin er ferðalag um Ísland

Ljósmál er ný heim­ilda­mynd sem er leik­stýrð af Einari Þór Gunn­laugs­syni en hún rekur vita­sögu Íslands. Yfir vitum hvílir dulúð þar sem þeir standa í stór­brotnu umhverfi á mörkum lands og sjávar og laða að sér fólk hvaðanæva að úr heim­inum. Þeir geyma sögu um það hvernig Ísland varð nútíma­sam­fé­lag og fanga ímynd­un­ar­afl ungra sem ald­inna.

Myndin er ferðalag um Ísland
Ógrynni til af vita­sögum Gerð mynd­ar­innar um vit­ana tók Einar um það bil fimm ár. Hann seg­ist enn eiga mikið efni um vita og nefnir sem dæmi sögu af Þjóð­verja sem fór í felur í Galta­vita á stríðs­ár­unum, sem væri jafn­vel efni í heila kvik­mynd. Mynd: Ljósmál

„Hug­myndin að mynd­inni kom upp fyrir löngu síðan,“ útskýrir leik­stjóri mynd­ar­innar, Einar Þór Gunn­laugs­son. „Ég er lands­byggð­ar­maður og var mikið á sjó. Líkt og flestir þeir sem hafa farið á sjó fór ég að taka eftir fleiri og fleiri vitum og þar kvikn­aði áhugi minn á þeim. Saga vita á Íslandi er gríð­ar­lega áhuga­verð en vitar voru eig­in­lega upp­haf okkar Íslend­inga á iðn­bylt­ing­unni. Þarna fengu hönn­uðir og arki­tektar sín fyrstu tæki­færi til að láta að sér kveða og margir vitar lands­ins end­ur­spegla þau áhrif sem smíði þeirra hafði á íslenska bygg­ing­ar­list. Bygging þeirra krafð­ist tækni­þekk­ingar og verk­kunn­áttu sem áður var óþekkt og þetta voru fyrstu íslensku stein­steypu­bygg­ing­arnar.“ 

Áhuginn kvikn­aði á sjónumÞegar Einar starf­aði sem sjó­maður óx áhugi hans á vitum, eftir því sem hann sá fleiri slíka.

Vitarnir hluti af sjálfstæðisbaráttu Íslendinga

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár