Talskonur Lífs án ofbeldis bjartsýnar eftir fund með dómsmálaráðherra

Félags­skap­ur­inn afhenti Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur um 2.000 und­ir­skriftir þar sem skorað er á á ráð­herra að tryggja vernd barna gegn ofbeldi af hálfu for­eldra.

Talskonur Lífs án ofbeldis bjartsýnar eftir fund með dómsmálaráðherra
Jákvæður fundur Fundur for­svarskvenna Lífs án ofbeldis með dóms­mála­ráð­herra í morgun var gagn­legur. Mynd: Jóhann Smári Jónbjörnsson

Félags­skap­ur­inn Líf án ofbeldis afhenti í morgun Áslaugu Örnu Sigu­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra um 2.000 und­ir­skriftir fólks sem  hefur lagt nafn sitt við mál­stað félags­skap­ar­ins, sem berst gegn því að börn séu neydd í þving­aða umgengni við ofbeld­is­fulla feður sína. Talskona Lífs án ofbeldis segir að ráð­herra hafi tekið þeim vel, aug­ljós­lega verið búin að kynna sér málin og eftir fund­inn væru þær bjart­sýnar á fram­haldið.

Líf án ofbeldis er hreyf­ing sem stofnuð var í sept­em­ber á þessu ári. Að félags­skapnum standa mæður sem hafa þurft að verja börnin sín gegn ofbeldi feðra og konur sem voru sem börn þving­aðar í umgengi við ofbeld­is­fulla feður sína, ásamt aðstand­endum þeirra. Félags­skap­ur­inn berst fyrir því að fundnar verði nýjar leiðir í umgengnis- og for­sjár­málum þar sem hags­munir barna eru tryggðir, þegar fyrir liggur að for­eldri hefur beitt börn ofbeldi. „Það er óásætt­an­legt að börn fari í umgengni hjá feðrum sem beita þau kyn­ferð­is­legu, lík­am­legu og and­legu ofbeldi. Samt sem áður er það að ger­ast reglu­lega í okkar sam­fé­lagi. Fjöldi mála sýnir greini­legt end­ur­tekið mynstur þar sem dóms­mála­ráðu­neytið og stofn­anir sem ábyrgar eru fyrir laga­fram­kvæmd um barna­rétt, gefa gögnum og vitn­is­burðum sem sýna ský­laust að um ofbeldi sé að ræða, ekki vægi,“ segir í bréfi félags­skap­ar­ins sem sent var dóms­mála­ráð­herra á dög­unum en í því var óskað eftir fundi þeim sem fram fór í morgun.

„Okkur leið eins og það væri á okkur hlustað og þessi fundur gæti verið upp­hafið að ein­hverjum aðgerðum í rétta átt“

Líf án ofbeldis segir jafn­framt að rétt­inda­gæslu barna í for­sjár- og umgengn­is­málum, þar sem saga sé um heim­ilis- og kyn­ferð­is­of­beldi, sé veru­lega ábóta­vant. Mæðrum séu settir afar­kostir um að annað hvort stofni þær börnum sínum í hættu með því að sam­þykkja umgengni þeirra við ofbeld­is­fulla feður, eða að þær séu að öðrum kosti settar í þá stöðu að virða ekki for­sjár­skyldur sínar gagn­vart barni, í and­stöðu við rétt­ar­á­kvarð­anir. Í áskorun þeirri sem afhent var Áslaugu Örnu í morgun er þess kraf­ist að við laga­fram­kvæmd sýslu­manna og dóm­ara séu ákvæði Barna­sátt­mála sam­ein­uðu þjóð­anna virt og að laga­fram­kvæmdin sé í sam­ræmi við þær áherslur sem lagðar hafa verið í barna­lögum um að saga um ofbeldi fái aukið vægi við ákvörðun um for­sjá og umgengni.

Sigrún Sif Jóels­dóttir, ein talskvenna Lífs án ofbeldis, segir að fund­ur­inn hafi gengið vel. „Áslaug tók okkur vel og hafði kynnt sér málið. Hún lýsti áhyggjum af stöð­unni við okkur, hvað varðar fram­kvæmd­ina, og án þess að gefa nein lof­orð lýsti hún því að þetta mál væri í athugun. Til að mynda stæði til að hún fund­aði með sýslu­manns­emb­ætt­inu á höfðu­borg­ar­svæð­inu um málið í næstu viku. Okkur leið eins og það væri á okkur hlustað og þessi fundur gæti verið upp­hafið að ein­hverjum aðgerðum í rétta átt. Við erum því bjart­sýnar eftir þennan fund.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár