Albanska konan óttast um heilsu barns síns: „Ég er svo hrædd og svo þreytt“

Albanska konan sem send var úr landi í gær, komin 36 vikur á leið, fékk að fara heim af spít­ala fyrir skömmu en ótt­ast hafði verið að fyr­ir­bura­fæð­ing myndi fara af stað fyrr í dag.

Albanska konan óttast um heilsu barns síns: „Ég er svo hrædd og svo þreytt“
Er skelfd, þreytt og aum Albanska konan sem flutt var úr landi gengin 36 vikur með barn sitt segir að hún sé með háan blóð­þrýst­ing og sé mjög illt í baki og mjaðma­grind. Mynd: No Boders

„Ég er svo hrædd og svo þreytt, svo ofboðs­lega þreytt. Ég er svo stressuð yfir því að eitt­hvað komi fyrir barnið mitt,“ sagði albanska konan sem íslensk stjórn­völd fluttu úr landi í gær, þvert á ráð­legg­ingar læknis á kvenna­deild Land­spít­ala. Konan ræddi stutt­lega við Stundina en hún var þá að yfir­gefa spít­ala eftir að hafa verið lögð þar inn tíma­bundið vegna sterkra sam­drátta. Óttast var að fæð­ing myndi fara af stað og var starfs­fólk sjúkra­húss­ins til­búið að takast á við fyr­ir­bura­fæð­ingu. Afþví varð sem betur fer ekki.

Tveggja ára drengurinn skelfdur og hrekkur upp af svefni

Konan sagði að hún og fjöl­skyldan öll sé miður sín og dauð­upp­gefin eftir ferða­lagið. Þannig sé tveggja ára sonur hennar skelfdur, hann sé þreyttur en eigi samt erfitt með að sofa og hrökkvi reglu­lega upp, aug­ljós­lega hræddur. Hann hafi lítið viljað nær­ast og hún hafi miklar áhyggjur af líðan hans en einnig hvernig brott­flutn­ing­ur­inn og staða mála muni hafa áhrif á and­lega hlið drengs­ins til lengri tíma.

Konan sagði að hún sjálf væri mjög aum, hún finndi mikið til, einkum í baki og mjaðma­grind en í vott­orði læknis á kvenna­deild Land­spít­ala kom einmitt fram að konan væri „slæm af stoð­kerf­is­verkjum í baki og ætti erfitt með langt flug.“. Þá væri hún mjög stressuð og að blóð­þrýst­ingur hennar hefði mælst hár á spít­al­anum. „Við erum að fara til vina­fólks þar sem við fáum að vera í nótt en við þurfum að fara á milli staða,“ sagði konan.

„Ég er svo stressuð yfir því að eitt­hvað komi fyrir barnið mitt“

Konan sagði að hún væri ótta­slegin, fjöl­skyldan ótt­að­ist um öryggi sitt í Albaníu og hún ætti þá von helsta í brjósti að þau fengju að snúa aftur til Íslands. Hún sagði að hún vissi ekki betur en að mál þeirra væri enn í vinnslu á Íslandi og hún skyldi því ekki ákvörð­un­ina um að vísa þeim úr landi í gær, hún væri bæði sár og reið yfir því, sér­stak­lega í ljósi þess að hún væri komin 36 vikur á leið.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár