Engar almenningssamgöngur frá Akureyrarflugvelli

Strætó á Akureyri er gjald­frjáls en gengur ekki til og frá flug­vell­inum. Jón Gnarr segir þetta vera grund­völl leigu­bíla­rekst­urs í bænum.

Engar almenningssamgöngur frá Akureyrarflugvelli
Akureyri Ekki er hægt að nýta almenn­ings­sam­göngur á milli bæj­ar­ins og flug­vall­ar­ins. Mynd: Shutterstock

Stræt­is­vagnar Akur­eyrar ganga ekki til og frá flug­velli bæj­ar­ins. Jón Gnarr, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri Reykja­víkur, vakti athygli á þessu á Twitter í síð­ustu viku. „Strætó á Akureyri er nið­ur­greiddur af bænum og gjald­frjáls fyrir not­endur,“ skrif­aði Jón. „Ganga eða leigu­bíll er eina option fyrir flug­far­þega og örugg­lega grund­völlur leigu­bíla­rekst­urs í bænum.“

Sex leiðir stræt­is­vagna ganga á Akureyri og frítt er í þær allar, en engin þeirra gengur til og frá flug­vell­inum. Akur­eyr­ar­flug­völlur er rúmum þremur kíló­metrum fyrir utan miðbæ Akur­eyrar. Um 40 mín­útur tekur að jafn­aði að ganga þessa leið. Fimm bíla­leigur hafa aðstöðu við flug­völl­inn og leigu­bif­reiðar eru til staðar á meðan áætl­un­ar­flug stendur yfir, sam­kvæmt vef Isavia.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá skrif­stofu Stræt­is­vagna Akur­eyrar hafa vagnar aldrei gengið út á flug­völl­inn, en engar upp­lýs­ingar feng­ust um ástæður þess. Leiða­kerfið mun vera í end­ur­skoðun um þessar mundir hjá umhverfis- og mann­virkja­ráði Akur­eyr­ar­bæjar. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár