Ferskir straumar í nýrri tónleikaröð við Hlemm

Lifandi tón­list í bak­her­bergi nærri Hlemmi.

Ferskir straumar í nýrri tónleikaröð við Hlemm
Aðstand­endur tón­leik­anna Halldór Viðar Hjalte­sted og James Cox.

Á meðan að æ fleiri tón­leika­staðir loka í mið­bænum ákvað hót­elið Hlemmur Square að spýta í lóf­ana og bjóða upp á lif­andi tón­list með reglu­legu milli­bili. Tón­leika­röðin „New to Us“ hóf göngu sína síð­sum­ars í bóka­her­bergi hót­els­ins á jarð­hæð en þar leit­ast skipu­leggj­endur við að finna spenn­andi nýja tón­list­ar­menn og kynna þá til leiks. Fyrsta kvöldið átti sér stað í júlí en þá voru það íslensku tón­list­ar­kon­urnar Dead Bird Lady og Frid sem komu fram og í ágúst stigu Konfekt, sig­ur­veg­arar Músiktil­rauna, á svið. „Frid er alveg stór­kost­leg og var bara að koma fram í fjórða skiptið. Svo­leiðis er einmitt það sem tón­leik­arnir snú­ast um. Og Konfekt byrj­uðu bara að spila saman sem hljóm­sveit nú í ár,“ segir James Cox, sem skipu­leggur tón­leik­ana ásamt Halldóri Viðari Hjalte­sted. James kom til Íslands frá London þar sem hann var virkur í tón­list­ar­brans­anum en Halldór er rekstr­ar­stjóri bars­ins á Hlemmur Square. „Mér þykir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár