Að hlúa að því sem okkur er dýrmætast

KAF heitir ný íslensk heim­ilda­mynd Snorra Magn­ús­sonar þroska­þjálfa, sem hefur helgað líf sitt kennslu­að­ferðum í ung­barna­sundi. Leik­stjórar mynd­ar­innar eru vin­kon­urnar Elín Hans­dóttir, Anna Rún Tryggva­dóttir og Hanna Björk Vals­dóttir, sem allar höfðu heill­ast af ein­stökum heimi Snorra þegar þær voru nýbak­aðar mæður.

Að hlúa að því sem okkur er dýrmætast
Tveir af þremur leik­stjórum Samstarf þeirrar Hönnu Bjarkar, Elínar og Önnu Rúnar kvikn­aði þegar þær eign­uð­ust allar börn á sama tíma fyrir um það bil sex til átta árum síðan.

KAF var frum­sýnd í Bíó Paradís á mið­viku­dags­kvöldið en hún er tekin upp í Skála­túns­laug í Mos­fellsbæ þar sem Snorri hefur byggt upp lit­ríkan heim milli fjalls og fjöru sem skýlir for­eldrum og börnum fyrir veðri og vindum allan árs­ins hring. Í heim­ilda­mynd­inni er fylgst með hvít­voð­ungum stálp­ast og þroskast og því hvernig for­eldrar kynn­ast börnum sínum í gegnum upp­lifun í vatni.

Fóru í gegnum barneignir á sama tíma

Leik­stjórar mynd­ar­innar eru þrjár konur og spurðar um hvernig sam­starf þeirrar Hönnu Bjarkar, Elínar og Önnu Rúnar kvikn­aði svarar Anna að sam­starfið um mynd­ina hafi sprottið upp þegar þær eign­uð­ust allar börn á sama tíma fyrir um það bil sex til átta árum síðan. „Við vorum saman í mömmu­klúbbum, með­göngu- og kríla­jóga og svo vorum við í ung­barna­sundi. Við höfðum verið vin­konur í mörg ár, og þegar við fórum í gegnum barn­eignir á sama tíma var eðli­legt að sú …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár