Setja hraðatakmörk sem verða ólögleg um næstu áramót

Umferð­ar­hraði á flestum götum á Blöndu­ósi var í gær færður niður í 35 kíló­metra á klukku­stund. Frá og með næstu ára­mótum verður óheim­ilt að til­greina hámarks­öku­hraða í öðru en heilum tugum.

Setja hraðatakmörk sem verða ólögleg um næstu áramót

Lög­reglu­stjór­inn á Norð­ur­landi vestra hefur tekið ákvörðun um að færa umferð­ar­hraða niður í 35 kíló­metra á klukku­stund á flestum götum Blöndu­ós­bæjar. Bærinn vinnur nú að upp­setn­ingu nýrra umferð­ar­skilta þar sem það á við. Sá umferð­ar­hraði verður hins vegar óheim­ill um næstu ára­mót, þegar ný umferða­lög taka gildi.

Á vef Blöndu­ós­bæjar var í gær birt aug­lýs­ing um umferð innan Blöndu­ós­bæjar þar sem til­greint er að lög­reglu­stjóri hafi ákveðið, að til­lögu sveit­ar­stjórnar, að hámarks­hraði verði færður niður í 35 kíló­metra á klukku­stund á flest­öllum götum bæj­ar­ins. Er vísað til heim­ildar í 81. grein núgild­andi umferð­ar­laga og það til­greint að breyt­ing­arnar taki gildi strax við birt­ingu aug­lýs­ing­ar­innar. Þá er einnig greint frá því að Blöndu­ós­bær vinni að upp­setn­ingu nýrra skilta þar sem þess sé þörf.

Þau skilti munu hins vegar tæp­lega fá að standa lengi, eða öllu heldur ekki lengur heldur en til næstu ára­móta. Þá taka gildi ný umferð­ar­lög sem sam­þykkt voru á Alþingi síð­ast­liðið vor. Í grein 37 í þeim segir meðal ann­ars: „Hámarks­öku­hraði skal til­greindur í heilum tugum, að und­an­teknum hámarks­öku­hrað­anum 15 km á klst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár