Miklu meira en bara bíó

Sigríður María Sig­ur­jóns­dóttir eða Sigga Maja eins og hún er ávallt kölluð, tók við starfi rekstr­ar­stjóra kvík­mynda­húss­ins Bíó Paradís í fyrra. Hún segir bíóið fylgja mjög ákveð­inni hug­sjón og segir það hafa breyst í nokk­urs konar félags­mið­stöð í mið­bænum. Um helg­ina verður opnuð ný vef­síða þar sem hægt er að festa kaup á um 200 plakötum eftir íslenska sam­tíma­lista­menn sem gerðu þau fyrir bíó­kvöldin vin­sælu, Svarta sunnu­daga.

Miklu meira en bara bíó
Þykir vænt um gömlu skink­una Sigga Maija er úr Mýr­dalnum og átti um skeið heima á Laug­ar­vatni. Hún seg­ist vera gömul Selfoss-skinka og að henni þyki vænt um að hafa verið sú týpa, þó hún hafi verið léleg í því. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sigga Maija er mennt­aður fata­hönn­uður frá Lista­há­skóla Íslands og stofn­aði meðal ann­ars sitt eigið fata­merki, Sigga Maija og var ein stofn­enda Minör Coworking sem er vinnu­stofa fyrir lista­menn úti á Granda. Hún er í sam­bandi með Árna Sveins­syni kvik­mynda­gerð­ar­manni og saman eiga þau ell­efu ára dóttur, Lóu. Sigga Maija tók við starfi sínu sem rekstr­ar­stjóri Bíó Paradís í fyrra og segir að list­rænn bak­grunnur sinn hafi komið sér vel í nýju starfi. „Ég á heima í hund­rað og einum Reykja­vík og hef átt heima þar frá því árið 2003. Ég er samt úr sveit­inni upp­runa­lega, frá Mýr­dalnum á Suð­ur­landi, og svo átti ég heima um skeið á Laug­ar­vatni. Svo er ég líka gömul Selfoss-skinka. Mér þykir vænt um að hafa verið skinka, ég var léleg í því en ég reyndi þó,“ segir hún og hlær. „Eftir að ég útskrif­að­ist úr fata­hönn­un­ar­deild í LHÍ stofn­aði ég mitt eigið merki og snerti …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár