Afmæli borgarinnar, tilfinningaskynjun og skilvirkt gjörningaverk

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir 23. ágúst til 5. sept­em­ber.

Afmæli borgarinnar, tilfinningaskynjun og skilvirkt gjörningaverk

Þetta og ótal margt fleira er á döf­inni næstu tvær vik­urnar.

Menningarnótt 2019

Hvar? Reykja­vík
Hvenær? 24. ágúst
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Afmæl­is­há­tíð Reykja­vík­ur­borgar er haldin hátíð­leg 24. ágúst eins og fyrri ár. Boðið er upp á ara­grúa af fjöl­skyldu­vænum við­burðum, skipu­lögðum af borg­ar­búum fyrir borg­ar­búa. Þeir sem eru tón­leika­þyrstir geta meðal ann­ars gætt sér á pönk götu­veislu á Ing­ólfs­stræti, end­ur­komu Ultra Mega Technobandsins Stefáns á Bryggj­unni Brugg­húsi, speisuðum tón­leikum dj. flug­vél geim­skip í Hafn­ar­hús­inu, við­kunn­an­legum tónum Helga Björns og SSSól í Gamla bíói, og fjöl­skyldu­tón­leikum Maxímús Músíkús í Hörpu. Einnig er hægt að taka þátt í  Reykja­vík­ur­mara­þon­inu, fylgj­ast með brauðtertu­sam­keppni í Hafn­ar­hús­inu, Capoeira sýn­ingu á Aust­ur­velli eða lista­manna­spjalli á lista­söfnum borg­ar­innar, fá dans­kennslu víðs vegar og margt fleira. Undir lok kvölds­ins verður síðan að sjálf­sögðu flug­elda­sýn­ing við höfn­ina.

Ágústkvöld / pod koniec sierpnia

Hvar? Gerð­ar­safn, Midpunkt & Catalína
Hvenær? 23. ágúst–1. sept.
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Lista­menn frá Póllandi og Íslandi taka þátt í þess­ari pólsk–íslensku tón­listar- og mynd­list­ar­há­tíð. Nafn sýn­ing­ar­innar vísar í titil íslenska dæg­ur­lags­ins „Ágúst­kvöld“ og pólska dæg­ur­lags­ins „Spotka­jmy sie pod koniec sierpnia“ sem þýðir „Hittumst í ágúst­lok“. Á dag­skrá verða tón­leikar, gjörn­ingar og inn­setn­ingar. 23. ágúst kl. 18.00 er sér­stakt opn­un­ar­hóf í Midpunkt.

Rage 

Hvar? Rýmd
Hvenær? 23. ágúst–1. sept.
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Rage er hóp­sýn­ing sjö ungra lista­manna sem rann­saka upp­sprettu bræði eða ofsareiði og þann sköp­un­ar­kraft og orku sem fylgir þeirri til­finn­ingu. Spurt er hver finni til þess­arar til­finn­ingu og af hverju, hvaðan hún komi, hvort ofsareiði skapi nýjar leiðir, og hvað taki við þegar bræðin kólnar. Sérstakt opn­un­ar­hóf er 23. ágúst kl. 18.00.

Litríki kvensjálfsins

Hvar? Flæði
Hvenær? til 28. ágúst
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Litríki kven­sjálfs­ins er fyrsta einka­sýn­ing Stein­unnar Ólínu Haf­liða­dóttur. Við­fangs­efni mál­verka hennar eru nálægt henni en útfærsla þeirra skapar þó skil á milli verk­anna og raun­veru­leik­ans. Femínískur bak­grunnur Stein­unnar Ólínu end­ur­spegl­ast í mál­verkum hennar þar sem konur eru iðu­lega í aðal­hlut­verki. Verkin beita sér fyrir því að varpa fram lit­ríkum skjá­skotum af vissu kven­sjálfi; þá helst til hennar eigin. 

Can't think just feel #8

Hvar? Loft
Hvenær? 23. ágúst kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Can’t think just feel er mán­að­ar­leg tón­leika­sería skipu­lögð af kanadísku lista­kon­unni Maria-Carmela Raso, einnig þekkt sem MSEA. Á þessu kvöldi koma fram pólski raf­tón­list­ar­mað­ur­inn Teenage Lightn­ing, hinn til­finn­inga­ríki Futuregrap­her sem hefur verið virkur í rúm­lega tvo ára­tugi, og AAIIEENN, hug­ar­fóstur Hallmars Gauta Hall­dórs­sonar, sem býr til pol­yr­hyt­hmískt techno.

Róttæki sumarháskólinn 2019

Hvar? Frið­ar­húsið
Hvenær? 26. ágúst–1. sept.
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Róttæki sum­ar­há­skól­inn stendur fyrir árlegri fyr­ir­lestr­a­röð þar sem fræði­menn og aktí­vistar miðla hug­myndum og reynslu sinni. Í ár verða fluttir fyr­ir­lestrar um rót­tækni, lög­fræði og kyn­bundið ofbeldi, nýfrjáls­hyggju­væð­ingu skóla­kerf­is­ins, landamæra­eft­ir­lit og Ísland, mann­rétt­indi og jafn­rétt­is­hug­takið, og fleiri mál­efni. Sum­ar­há­skól­inn er ókeypis og aðgengi­legur öllum.

Auður

Hvar? Kaffi Flóra
Hvenær? 28. & 29. ágúst kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 3.000 kr.

Silki­mjúki og við­kunn­an­legi R&B lista­mað­ur­inn Auður hefur átt gjöf­ult ár; hann gaf út breið­skíf­una Afsak­anir í nóv­em­ber síð­ast­liðnum sem var valin raf­tón­list­ar­plata árs­ins 2019 á Íslensku tón­list­ar­verð­laun­unum. Hann heldur huggu­lega tón­leika í Grasa­garð­inum, en Magnús Jóhann Ragn­ars­son leikur undir. Búast má við að hann spili mikið af nýju plötu sinni, auk vel val­inna eldri laga.

Túttífrútturnar

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 31. ágúst kl. 21.30
Aðgangs­eyrir: 2.900 kr.

Tút­tífrútt­urnar er nýtil­kom­inn burlesque-hópur í ört vax­andi senu burlesque á Íslandi. Frútt­urnar geta ekki beðið eftir að sýna spenntum og burlesque-þyrstum áhorf­endum ný og fersk atriði, auk eldri atriða sem voru til sýnis fyrr í ár. Hópurinn varð til eftir nám­skeið hjá burlesque-drottn­ingu Íslands, Margréti Erlu Maack, síð­ast­lið­inn maí.

Stonecarver’s Dilemma

Hvar? Mengi
Hvenær? 31. ágúst kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Stonecarver’s Dilemma er skil­virkt gjörn­inga­verk í umsjón Bergs Thomas And­er­sons og Ash Kilmartin. Áhorf­endur bregða sér í hlut­verk far­and­lista­manns sem nýkom­inn er til Rott­bridge í þeim til­gangi að höggva út nýtt verk fyrir kirkju bæj­ar­ins. Lifandi tón­list, foley, hættu­legt brauð­meti og sér­brugg­aðir drykkir gætu vísað áhorf­endum veg­inn í að leysa leynd­ar­dóma Rott­bridge.

101 Festival

Hvar? Origo-völl­ur­inn
Hvenær? 31. ágúst kl. 18.00
Aðgangs­eyrir: 3.990 kr.

Útvarp 101 blæs til stór­tón­leika þar sem ein­vala­lið af íslensku tón­list­ar­fólki úr rapp- og popp­sen­unum koma fram. Fram koma Hjalta­lín, 101 BOYS, Vök, Floni & Birnir, Cell7, Auður, Konfekt, Yamaho, Gróa og GDRN. 

Hvar mörkin liggja

Hvar? Ásmund­ar­safn
Hvenær? 31. ágúst–3. nóv.
Aðgangs­eyrir: 1.800 kr.

Helgi Gíslason er vel þekktur fyrir þrí­víðar högg­myndir sínar, bæði í brons og gifs, sem hafa verið sýndar víða hér á landi og erlendis. Verk Helga eru gjarnan sam­bland hlut­bund­inna við­fangs­efna, þá helst manns­lík­am­ans og óhlut­bund­inna forma. Þar tekst hann á við til­vist manns­ins og tjáir lit­róf til­finn­ing­anna.

Alræði fegurðar!

Hvar? Kjar­vals­staðir
Hvenær? til 6. októ­ber
Aðgangs­eyrir: 1.800 kr.

Þessi sýn­ing gerir skil fjöl­breyttu ævi­starfi breska lista­manns­ins William Morris, en hann fékkst bæði við hönnun, skáld­skap og var fram­úr­skar­andi hand­verks­maður. Hann var sós­íal­ískur aktí­visti og hug­myndir hans um sam­fé­lag iðn­bylt­ing­ar­innar þóttu bylt­ing­ar­kenndar. Á sýn­ing­unni eru auk frum­teikn­inga af munstrum Morris; útsaums­verk, hús­gögn, fag­ur­lega skreyttar bækur, flísar auk verka eftir sam­ferða­menn Morris á borð við Dante Gabriel Rossetti.

Jazzhátíð Reykjavíkur

Hvar? Hard Rock Café, Lista­safn Íslands & Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 4.–8. sept­em­ber
Aðgangs­eyrir: 18.900 kr.

Jazzhátíð Reykja­víkur er haldin í 30. skiptið og af því til­efni verður blásið til djass­veislu í nágrenni við Reykja­vík­ur­tjörn. Á þess­ari upp­skeru­há­tíð íslenskra djass­tón­list­ar­manna gefst færi á að hlýða á fram­varða­sveitir í fag­inu ásamt áhuga­verðum sam­starfs­verk­efnum íslenskra og erlendra flytj­enda. Að venju er einnig boðið upp á erlend atriði sem vakið hafa athygli og hrifn­ingu úti í hinum stóra heimi.

Ómar af kynngimagnaðri fjarveru

Hvar: Nýlista­safn Íslands
Hvenær? til 29. sept­em­ber
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Þessi einka­sýn­ing Karls Ómars­sonar virkar sem leið­ar­ljós og afvegur í senn; verkin fela í sér kunn­ug­lega eig­in­leika: form, efni, línur, orð og liti, fyr­ir­bæri sem áhorf­endur hafa áður litið auga, snert, hlustað á og loks fært í orð. Á sama tíma leysa yfir­borð verk­anna upp fyr­ir­fram gefnar hug­myndir, fjar­lægja sam­hengi og losa um þær upp­lýs­ingar sem hafa safn­ast saman í hug­anum yfir lengri tíma. 

Móðir og barn

Hvar? Kling & Bang
Hvenær? til 29. sept­em­ber
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Á sýn­ing­unni Móðir og barn má sjá verk eftir hinn þekkta danska mynd­list­ar­hóp A Kassen sem var stofn­aður í Kaup­manna­höfn 2004. Hvað miðla varðar spanna verk hóps­ins allt frá gjörn­inga-inn­setn­ingum yfir í skúlp­t­úra og ljós­myndir, oft með til­búnum fundnum hlutum eða hlutum sem voru fram­leiddir fyrir eitt­hvað allt annað en það sem hóp­ur­inn gerir við þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár