Lögregla sneri niður hinsegin aktívista og sakaði um að „mótmæla gleðigöngunni“

„Lögregla er ekki og hefur aldrei verið í liði með hinseg­in­fólki,“ segir Guðmunda Smári Veig­ars­dóttir, aðgerðasinni sem hefur gegnt trún­að­ar­störfum fyrir Samtökin '78 og Hinsegin daga. „Ég veit að Elínborg hlakk­aði til að sjá göng­una, en svo ger­ist þetta.“

Lögregla sneri niður hinsegin aktívista og sakaði um að „mótmæla gleðigöngunni“

„Það er ofboðs­lega sárt að vera hand­tekin fyrir hver ég er en ekki fyrir eitt­hvað sem ég hef gert.“ Þetta segir Elínborg Harpa Önund­ar­dóttir, unga konan sem var hand­tekin í gleði­göng­unni, í sam­tali við Stundina. Hún var stödd á Land­spít­al­anum að afla áverka­vott­orðs þegar blaða­maður náði tali af henni.

Lög­reglan sagði fjöl­miðlum fyrr í dag að konan hefði gert „til­raun til þess að trufla göng­una í mót­mæla­skyni“ . Elínborg segir þetta kol­rangt og útskýrir hvernig atburða­rásin horfir við henni í við­tali við Vísi. 

Guðmunda Smári Veig­ars­dóttir, hinsegin aðgerðasinni sem meðal ann­ars hefur setið í stjórnum Hinsegin daga og Sam­tak­anna '78, fjallar um málið á Facebook og greinir frá því að nokkrir aðgerða­sinnar hafi íhugað að mót­mæla við­veru lög­reglu í gleði­göng­unni en síðan hætt við.

„Lögregla framdi lík­ams­árás á Pride göng­unni,“ skrifar Guðmunda. „Réðst á hinsegin mann­eskju fyrir það eitt að labba og vera til. Eina sem þessi mann­eskja gæti hafa gert var að hafa hitt mig og rætt um hugs­an­leg mót­mæli sem við aft­ur­köll­uðum vegna lof­orða lög­regl­unnar við pride. Greini­lega eru lof­orð lög­regl­unnar við hinsegin fólk ekki virt. Ég sit núna með þess­ari mann­eskju og horfi upp á áverka og miklar bólgur sem ég ætti að bera því ég var eina upp­hafs mann­eskjan. Núna er greini­legt að lög­reglan er að leka röngum upp­lýs­ingum í fjöl­miðla. Sú sem var hand­tekin var ekki að mót­mæla heldur var bara að njóta pride.“ 

Guðmunda segir í sam­tali við Stundina að atvikið komi sér því miður ekki á óvart. 

„Lögregla er ekki og hefur aldrei verið í liði með hinseg­in­fólki. Það fara engar kærur vegna hat­urs­glæpa áfram frá lög­reglu, jafn­vel þótt um sé að ræða ítrek­aðar árásir og jafn­vel þótt mála­vextir séu aug­ljósir. Þessi aðgerð í dag sýnir einmitt við­mótið. Þau vilj­andi tar­geta hinsegin mann­eskju.“

Guðmunda segir að aldrei hafi staðið til að mót­mæla gleði­göng­unni þótt nokkrir aðgerða­sinnar hafi íhugað að mót­mæla við­veru lög­reglu með ein­hverjum hætti en hætt við. Í fyrra­dag birti hún eft­ir­far­andi færslu á Facebook:

„Lög­reglan gaf stjórn Hinsegin daga lof­orð sem þau stóðu svo ekki við,“ segir hún. „Okkur þykir vænt um göng­una og ég veit að Elínborg hlakk­aði til að sjá göng­una – en svo ger­ist þetta.“

Elínborg seg­ist hafa fengið kaldar kveðjur frá lög­reglu­mönn­unum. „Þeir kvöddu mig með þeim orðum að ef ég myndi óhlýðn­ast fyr­ir­mælum lög­reglu aftur myndu þeir sjá til þess að ég fengi ekki að skemmta mér í dag eða taka þátt í skemmt­unum í kvöld.“

Ýmsir hafa lýst hneykslan á fram­göngu lög­reglu, meðal ann­ars Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir, for­maður Skipu­lags- og sam­göngu­ráðs Reykja­vík­ur­borgar, og Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár