Setja lágmarksíbúamark sveitarfélaga

Sveit­ar­fé­lög fá auk­inn fjár­hags­legan stuðn­ing til að sam­ein­ast, sam­kvæmt þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem Sigurður Ingi Jóhanns­son boðar.

Heild­ar­stefna um sveit­ar­stjórn­ar­stigið felur í sér aðgerðir til að sam­eina fámenn­ari sveit­ar­fé­lög og verður lág­mark­s­í­búa­mark sett í lög. Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, mun kynna þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess efnis á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í Mývatns­sveit í dag, að því fram kemur í grein sem hann birti í Frétta­blað­inu í dag.

„Flest urðu sveit­ar­fé­lögin 229 en á seinni hluta ald­ar­innar var farið að leggja aukna áherslu á sam­ein­ingu sveit­ar­fé­laga og auka hlut­verk þeirra í opin­berri stjórn­sýslu,“ skrifar Sigurður Ingi. „Fækkaði sveit­ar­fé­lögum úr 157 um mið­bik síð­ustu aldar og eru þau 72 í dag. Meira en helm­ingur hefur færri en 1.000 íbúa sem hægt er að halda fram að séu vart sjálf­bærar ein­ingar.“

Í til­lög­unni er í fyrsta skipti sett fram heild­ar­stefna um sveit­ar­stjórn­ar­stigið að und­an­gengnu sam­ráði um land allt. „Meg­in­mark­miðið er að sveit­ar­fé­lög á Íslandi verði öflug og sjálf­bær vett­vangur lýð­ræð­is­legrar starf­semi og að sjálfs­stjórn og ábyrgð sveit­ar­fé­laga sé virt og tryggð verði sem jöfn­ust rétt­indi og aðgengi íbúa að þjón­ustu,“ skrifar Sigurður Ingi.

Þá fylgir stefn­unni aðgerð­ar­á­ætlun með 11 aðgerðum. „Ein aðgerðin felur í sér að lág­mark­s­í­búa­mark verði að nýju sett í sveit­ar­stjórn­ar­lög, önnur fjallar um auk­inn stuðn­ing Jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga við sam­ein­ingar og sú þriðja miðar að því að lækka skulda­við­mið sveit­ar­stjórn­ar­laga,“ skrifar Sigurður Ingi. „Þá felur ein aðgerð í sér efl­ingu raf­rænnar stjórn­sýslu og þjón­ustu sveit­ar­fé­laga. Hér er um tíma­mót að ræða sem fela í sér stór­tækar umbætur í opin­berri stjórn­sýslu sem eflir sveit­ar­stjórn­ar­stigið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár