Guðmundur Andri sammála nálgun Guðjóns í máli Þórhildar Sunnu

Segist hafa talið að „þing­menn ættu ekki að grípa fram í fyrir hend­urnar á siða­nefnd“.

Guðmundur Andri sammála nálgun Guðjóns í máli Þórhildar Sunnu

Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, seg­ist hafa verið sam­mála Guðjóni S. Brjáns­syni flokks­fé­laga sínum um nið­ur­stöð­una í siða­reglu­máli Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur, þing­konu Pírata. Þessu greindi hann frá í færslu á Facebook fyrir helgi þar sem hann gagn­rýnir harð­lega nið­ur­stöðu siða­nefndar í Klaust­urs­mál­inu.  

„Þegar siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að Þór­hildur Sunna hefði brotið siða­reglur þing­manna með ummælum sínum í sjón­varps­þætti um „rök­studdan grun“ varð­andi akst­ur­greiðslur til Ásmundar Frið­riks­sonar – hún hafi komið fram við hann „á van­virð­andi hátt“ – fannst mér sú nið­ur­staða furðu­leg og afar óheppi­leg en um leið taldi ég að þing­menn ættu ekki að grípa fram í fyrir hend­urnar á siða­nefnd – ættu ekki að vera dóm­arar hver í ann­ars sök. Í svip­aðan streng tók Guðjón Brjáns­son full­trúi Sam­fylk­ingar í For­sætis­nefnd í bókun sinni við afgreiðslu þess máls,“ skrif­aði Guð­mundur Andri.

Í siða­reglum alþing­is­manna kemur skýrt fram að siða­nefnd er aðeins ráð­gef­andi. For­sætis­nefnd er sá aðili sem kemst að nið­ur­stöðu í siða­reglu­málum og ber ábyrgð á slíkum álitum.

Þrátt fyrir þetta virð­ist gæta til­hneig­ingar meðal þing­manna til að skýla sér á bak við álit siða­nefndar í umræðu um nið­ur­stöður for­sætis­nefndar í siða­reglu­málum. 

Í bókun Guðjóns S. Brjáns­sonar í máli Þór­hildar Sunnu kom fram að hann teldi „ótækt“ að póli­tískir full­trúar hefðu úrslita­vald við afgreiðslu mála er varða brot á siða­reglum. Sagði Guðjón „óheppi­legt fyrir þingið, ásýnd þess og störf“ að Þór­hildur Sunna hefði verið talin brot­leg við siða­reglur vegna ummæla um meint brot ann­ars þing­manns. Engu að síður hlyti hann að „lúta nið­ur­stöðu siða­nefndar“. 

„Það ætti að beina þeim spjótum að siða­nefnd­inni en að sjálf­sögðu ekki for­sætis­nefnd­inni“

Þegar Þór­hildur Sunna gagn­rýndi for­sætis­nefnd harð­lega vegna nið­ur­stöð­unnar kom Stein­grímur J. Sig­fús­son þing­for­seti fram í fjöl­miðlum og sagði: „Einhver ummæli um spillta for­sætis­nefnd eiga nátt­úru­lega í sjálfu sér ekki við, það ætti að beina þeim spjótum að siða­nefnd­inni en að sjálf­sögðu ekki for­sætis­nefnd­inni. Það er nið­ur­staða siða­nefndar sem er látin standa.“

Þór­hildur Sunna bregst við stöðu­upp­færslu Guð­mundar Andra á Facebook og gagn­rýnir Guðjón S. Brjáns­sonar harð­lega. „Guðjón Brjáns­son lagði blessun sína yfir þau furðu­legu fyr­ir­mæli for­sætis­nefndar til siða­nefndar að virða sann­leiks­gildi ummæla minna að vettugi. Hann greiddi því svo atkvæði sitt að stað­festa þá furðu­legu nið­ur­stöðu Sið­ar­nefndar sem fékkst af sökum fyr­ir­mæla sinna. Þú afsakar Andri þó ég líti á Guðjón sem dóm­ara í minni sök,“ skrifar hún. 

Þá segir hún Guðjón hafa haft val um að sitja hjá, eins og Þor­steinn Víglunds­son og Bryndís Har­alds­dóttir gerðu. „Hann gerði hvor­ugt og því sam­mála nið­ur­stöðu siða­nefndar. Aug­ljós­lega,“ skrifar hún. Guð­mundur Andri svarar: „Þor­steinn er áheyrn­ar­full­trúi. Ég þekki hins vegar ekki afstöðu Bryn­dísar. Guðjón taldi sig ekki geta farið á svig við úrskurð siða­nefndar og færði fyrir því rök. Hægt er láta ógert að fall­ast á þau, telja þau létt­væg eða röng, en óþarfi að gera honum upp afstöðu.“

Þór­hildur Sunna bendir á að Inga Sæland sé áheyrn­ar­full­trúi líkt og Þor­steinn Víglunds­son en hafi þó staðið að áliti for­sætis­nefndar eins og Guðjón. „Guðjón tók beinan þátt í að skapa nið­ur­stöðu siða­nefndar með því að meina sann­leik­anum aðgang að máls­með­ferð­inni. Hann tók svo aftur beinan þátt með því að stað­festa nið­ur­stöð­una. Hann hefði vel getað sagt sig frá mál­inu, setið hjá eða greitt atkvæði gegn álit­inu. Allar þær aðgerðir hefðu gefið til kynna í verki að hann væri ósam­mála nið­ur­stöð­unni, hefði jafn­vel eitt­hvað út á þessa hlægi­legu máls­með­ferð að setja.“

„Þér finnst greini­lega allt í fína að Guðjón hafi stutt þessa máls­með­ferð gegn mér með atkvæði sínu alla leið“

Segir Þór­hildur Sunna að með bókun Guðjóns, þar sem hann styður nið­ur­stöð­una þótt hann telji hana óheppi­lega fyrir þingið, hafi hann sett sam­trygg­ingu framar sann­fær­ingu. „Mér hefði þótt heið­ar­legra að standa bara með sínu atkvæði og reyna ekk­ert að draga úr því með ein­hverri marklausri bókun. Ég fæ þig eflaust ekki til að verða sam­mála mér um þetta Andri, þér finnst greini­lega allt í fína að Guðjón hafi stutt þessa máls­með­ferð gegn mér með atkvæði sínu alla leið. En mér leið­ist að lesa ein­hverja til­raun til fjar­vista­sönn­unar fyrir Guðjón sem tók fullan þátt í þess­ari máls­með­ferð frá upp­hafi til enda og getur því ekki hlaupið undan í ein­hverja bókun sem hann skrif­aði þegar verkið var full unnið.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár