Óvenjuleg framganga dómara kann að stangast á við siðareglur

Hér­aðs­dóm­ar­inn Arnar Þór Jónsson er orð­inn einn hávær­asti og skel­egg­asti and­ófs­maður þriðja orku­pakk­ans í opin­berri umræðu á Íslandi. Hann sakar þing­menn um „heig­uls­hátt“ og varar við „trún­að­ar­bresti við kom­andi kyn­slóðir“. Dómarar settu sér siða­reglur árið 2017 þar sem fram kemur að virk þátt­taka í stjórn­mála­bar­áttu á opin­berum vett­vangi sé ósam­rým­an­leg starfi dóm­ara.

Óvenjuleg framganga dómara kann að stangast á við siðareglur

Arnar Þór Jónsson hér­aðs­dóm­ari segir að það yrði „trún­að­ar­brestur við kom­andi kyn­slóðir“ ef Alþingi ákvæði að sam­þykkja inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans í íslenskan rétt. Þingmenn sýni „heig­uls­hátt“ í mál­inu. 

Þetta full­yrðir Arnar á Facebook-síðu sinni í dag þar sem hann bregst við grein sem Bjarni Már Magn­ús­son, pró­fessor við laga­deild Háskól­ans í Reykja­vík, skrif­aði í Frétta­blaðið í morgun. 

Dómarinn hefur blandað sér með afger­andi hætti í umræð­una um þriðja orku­pakk­ann und­an­farna mán­uði og tekið ein­dregna afstöðu gegn inn­leið­ingu hans. „EES-samn­ing­ur­inn er til fyrir Íslend­inga en ekki Íslend­ingar fyrir EES-samn­ing­inn,“ sagði hann í við­tali á Stöð 2 á dög­unum. 

Óvenju­legt er að dóm­arar blandi sér með jafn áber­andi hætti í póli­tísk deilu­mál. Lög­fræð­ingar sem Stundin hefur rætt við benda á að Arnar Þór kunni með fram­göngu sinni að hafa gert sig van­hæfan til að dæma í málum er varða EES-skuld­bind­ingar Íslands.

Í siða­reglum dóm­ara sem sam­þykktar voru á aðal­fundi Dóm­ara­fé­lags Íslands þann 24. nóv­em­ber 2017 kemur fram að dóm­urum beri að hegða sér þannig að sem minnstar líkur séu á að þeir verði að víkja sæti í dóms­máli vegna van­hæfis.

Þá skuli þeir forð­ast orð og athafnir sem geti orðið til þess að óhlut­drægni þeirra verði dregin í efa.

„Sú ábyrgð sem fylgir starfi dóm­ara tak­markar að ein­hverju marki frelsi þeirra til sam­fé­lags­legrar þátt­töku og tján­ingar“

„Getur orkað tví­mælis“„Þó svo að ummæli þessi hafi að nokkru verið við­höfð á fræði­legum vett­vangi er slík þátt­taka dóm­ara í almennri umræðu að sönnu óvenju­leg og getur orkað tví­mælis hvort hún sé sam­rým­an­leg starfi hans,“ segir í nýlegum dómi Hæsta­réttar þar sem kröfu um að lands­rétt­ar­dóm­ar­inn Davíð Þór Björg­vins­son viki sæti vegna van­hæfis var hafnað.

„Sú ábyrgð sem fylgir starfi dóm­ara tak­markar að ein­hverju marki frelsi þeirra til sam­fé­lags­legrar þátt­töku og tján­ingar og gerir rík­ari kröfur til hátt­semi en almennt eru gerðar til ann­arra,“ segir í 4. gr. siða­regln­anna. „Dómarar skulu því ávallt gæta var­kárni í opin­berri umfjöllun, þar á meðal á sam­fé­lags­miðlum, um umdeild eða við­kvæm mál­efni. Þá skulu dóm­arar gæta að því að virk þátt­taka í stjórn­mála­bar­áttu á opin­berum vett­vangi er ósam­rým­an­leg starfi dóm­ara.“

Fyrr í sumar kvað Hæsti­réttur upp dóm þar sem fundið er að þátt­töku Davíðs Þórs Björg­vins­sonar lands­rétt­ar­dóm­ara í almennri þjóð­mála­um­ræðu um nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í Lands­rétt­ar­mál­inu.

„Þó svo að ummæli þessi hafi að nokkru verið við­höfð á fræði­legum vett­vangi er slík þátt­taka dóm­ara í almennri umræðu að sönnu óvenju­leg og getur orkað tví­mælis hvort hún sé sam­rým­an­leg starfi hans,“ segir í nið­ur­stöðu Lands­réttar.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi
FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
Aðstoðarmaður Sigmundar réttlætir fullgildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár