Ingibjörg Sólrún: Eigendur jarða verða að deila örlögum með Íslendingum

„Nú get ég ekki lengur orða bund­ist,“ segir fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar vegna fregna af enn frek­ari jarða­kaupum auð­manns­ins James Ratcliffe.

Ingibjörg Sólrún: Eigendur jarða verða að deila örlögum með Íslendingum

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, borg­ar­stjóri og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, gagn­rýnir harð­lega þá þróun sem hefur átt sér stað varð­andi upp­kaup erlendra auð­manna á íslenskum jörðum.

„Nú get ég ekki lengur orða bund­ist,“ skrifar hún á Facebook. „Stjórn­mála­menn verða að tryggja þegn­rétt þeirra sem búa á Íslandi. Það þarf að ganga þannig frá málum að útlend­ingar og fyr­ir­tæki þeirra geti því aðeins keypt jarðir á Íslandi að þeir ætli að hafa stað­festu í land­inu og deila örlögum með þeim sem þar búa.“

RÚV greindi frá því í síð­ustu viku að fjár­fest­inga­fé­lagið Sól­ar­salir ehf., í eigu James Ratcliffe, hefði nýverið fest kaup á jörð­inni Brú­ar­landi 2 í Þistil­firði og fyrir vikið eign­ast meiri­hluta veiði­réttar í Hafra­lónsá. Ratcliffe var rík­asti maður Bret­lands en flutti nýlega lög­heim­ilið til Mónakó til að lækka skatt­byrði sína. Und­an­farin ár hefur hann, ásamt við­skipta­fé­lögum sínum, keypt tugi jarða í Vopna­firði og Þistil­firði. 

Sumar jarð­anna eru í nágrenni til­von­andi athafna­svæðis umskip­un­ar­hafnar í Finna­firði. Lang­tíma­mark­mið verk­efn­is­ins er þjón­usta við skipa­flutn­inga á Norð­ur­slóðum og olíu- og gas­iðnað í Norður-Atl­ants­hafi. Ineos, stór­fyr­ir­tæki í eigu James Ratcliffe, hefur átt í við­ræðum við olíu­fé­lagið ConocoPhillips um kaup á olíu- og gasauð­lindum í Norð­ur­sjó.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra hafa boðað herta lög­gjöf um jarða­kaup auð­manna. „Við getum ekki litið á land eins og hverja aðra vöru og þjón­ustu,“ sagði Katrín nýlega í við­tali við RÚV. „Ég hef falið sér­fræð­ingi að gera til­lögur að laga­breyt­ingum sem koma munu til kasta þings­ins næsta vetur. Ég tel að það sé mik­ill og breiður póli­tískur vilji til að setja strang­ari ramma um þessi mál hér á landi eins og við sjáum svo víða í nágranna­löndum okkar.“

Ingi­björg Sólrún, sem í dag starfar sem for­stjóri Lýðræðis- og mann­rétt­inda­skrif­stofu ÖSE, tjáir sig um jarða­kaup erlendra auð­manna á Facebook og kallar eftir því að komið verði böndum á þró­un­ina. Segist hún einnig hlynnt því að settar verði reglur sem tak­marki hversu mikið land hver og einn má eiga, hvort sem um er að ræða Íslend­inga eða útlend­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár