Tilhugsunin um að verða prestur var fjarstæðukennd

Á sama tíma og ungu fólki fækkar í Þjóð­kirkj­unni ákvað Hjalti Jón Sverr­is­son, að fara í guð­fræði. Sú ákvörðun kom honum sjálfum á óvart en hann ræðir stöðu sína sem 32 ára gam­all prestur, sem býr í stúd­íó­í­búð, leitar að ást­inni og er virkur á sam­fé­lags­miðlum, um líf og trú, alda­mó­ta­kyn­slóð­ina, Instagram og Guð.

Tilhugsunin um að verða prestur var fjarstæðukennd

Ungt fólk sem hefur brenn­andi áhuga á kirkj­unni og krist­inni trú heyrir til und­an­tekn­inga. Flestir með­limir Þjóð­kirkj­unnar eru af eldri kyn­slóð­inni og frá 1998 hefur félags­mönnum fækkað um rúm­lega fjórð­ung. Hneyksl­is­mál hafa skekið kirkj­una og traust til hennar er í sögu­legu lág­marki, um 30 pró­sent. En um leið bendir sitt­hvað til þess að kirkjan sé að breyt­ast og ný kyn­slóð að taka við. Ágætt dæmi um þetta er hinn 32 ára gamli Hjalti Jón Sverri­son.

Hann er af alda­mó­ta­kyn­slóð­inni, fastur á leigu­mark­aði og skuldar sinn skerf af náms­lánum. Hjalti notar sam­fé­lags­miðla, sendir vinum sínum hnyttin gif í sms-um og kynn­ist stelpum í gegnum stefnu­móta­appið Tinder. Hjalti ber það ekki sér­stak­lega utan á sér að vera klerkur, þjónn guðs á jörðu. En hann starfar sem prestur í Laug­ar­nes­kirkju.

Sagt hefur verið um alda­mó­ta­kyn­slóð­ina að hún eigi erfitt með að skuld­binda sig, efist meira, sé löt og sjálfselsk. Hjalti Jón …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár