Hagnaður og arðgreiðslur Eldum rétt dragast saman

Fyr­ir­tækið Eldum rétt, sem hefur verið tals­vert til umfjöll­unar í fjöl­miðlum vegna deilna við Eflingu, hefur nú skilað árs­reikn­ingi vegna árs­ins 2018.

Hagnaður og arðgreiðslur Eldum rétt dragast saman

Fyr­ir­tækið Eldum rétt hagn­að­ist um 45 millj­ónir í fyrra og eigið fé þess í árs­lok nam 108 millj­ónum króna. Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins. Eigendur greiddu sér 40 millj­óna arð í fyrra en í ár nema arð­greiðsl­urnar 15 millj­ónum.

Eldum rétt hefur verið tals­vert til umfjöll­unar í fjöl­miðlum und­an­farna daga eftir að fyr­ir­tækið nýtti sér þjón­ustu starfs­manna­leig­unnar Menn í vinnu og var stefnt vegna meintrar nauð­ung­ar­vinnu og van­virð­andi með­ferðar sem rúm­enskir starfs­menn telja sig hafa orðið fyrir.

Hagnaður fyr­ir­tæk­is­ins nam rúm­lega 80 millj­ónum árið 2017 og 78 millj­ónum þar á undan og dróst þannig saman um tæpan helm­ing milli 2017 og 2018.

Fyr­ir­tækið samdi við Menn í vinnu fyrr á þessu ári, en þá hafði frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kveikur fjallað ítar­lega um mál­efni fyr­ir­tæk­is­ins og fleiri starfs­manna­leiga. „Ef það voru ein­hverjir sem væri hægt að treysta á þessu stigi máls þá voru það þeir, því þeir höfðu unnið alla sína heima­vinnu. Þetta kemur okkur svo í opna skjöldu mán­uði seinna þegar það er aftur eitt­hvað fíaskó í gangi,“ sagði Krist­ó­fer Júlíus Leifsson, fram­kvæmda­stjóri Eldum rétt, þegar Stundin ræddi við hann um málið.

Eldum rétt hefur starfað frá 2013 og býður við­skipta­vinum upp á reglu­lega heim­send­ingu á hrá­efnum og mat­ar­upp­skriftum. 33 störf­uðu hjá félag­inu árið 2018 og launa­greiðslur námu sam­tals 180,8 millj­ónum króna. 

Eigendur Eldum rétt eru Basko ehf. sem rekur meðal ann­ars 10-11 búð­irnar og Kvosina, Port­folio ehf. í eigu Krist­ó­fers Júlíusar og Supernova ehf., félag í eigu Vals Her­manns­sonar. Eig­end­urnir greiddu sér 40 millj­óna arð vegna rekstr­ar­árs­ins 2017 en 50 millj­ónir árið á undan. Stjórn félags­ins leggur til að 15 millj­ónir verði greiddar í arð til hlut­hafa á þessu ári vegna rekstr­ar­árs­ins 2018.

Í stjórn Eldum rétt sitja, auk Krist­ó­fers og Vals, þeir Hermann M. Þórisson og Jón Þor­steinn Odd­leifs­son sem báðir starfa hjá Lands­bréfum. Jón Þor­steinn var for­stöðu­maður fjár­stýr­ingar hjá Lands­bank­anum og, sam­kvæmt rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis, lyk­il­maður í ást­ar­bréfa­við­skiptum Lands­bank­ans fyrir hrun.

Áður sagði í frétt­inni greiddur væri út 40 millj­óna arður vegna rekstr­ar­árs­ins 2018. Hið rétta er að sú fjár­hæð er vegna rekstr­ar­árs­ins 2017. Stjórn félags­ins leggur hins vegar til að greiddur verði út 15 millj­óna arður vegna árs­ins 2018, í takt við hagn­að­ar­sam­drátt. Beðist er vel­virð­ingar á þessum mis­tökum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár