Eldum rétt samdi við Menn í vinnu: „Áttu að vera með allt upp á tíu“ – Stefnt vegna meintrar nauðungarvinnu

Fyr­ir­tækið Eldum rétt samdi við Menn í vinnu og taldi að starfs­manna­leigan hefði „unnið heima­vinn­una sína“ eftir óþægi­lega fjöl­miðlaum­fjöllun. Nú hafa fjórir Rúmenar stefnt báðum fyr­ir­tækjum, en málið snýst um van­greidd laun og meinta nauð­ung­ar­vinnu.

Eldum rétt samdi við Menn í vinnu: „Áttu að vera með allt upp á tíu“ – Stefnt vegna meintrar nauðungarvinnu
Ill með­ferð Stöð 2 fjall­aði um aðstæður Rúmena sem unnu hjá starfs­manna­leig­unni Mönnum í vinnu fyrr á árinu, en áður hafði Kveikur fjallað um mál­efnið. Mynd: Skjáskot úr fréttum Stöðvar 2

Fjórir Rúmenar hafa stefnt starfs­manna­leig­unni MIV ehf. og fyrr­ver­andi og núver­andi stjórn­endum og hlut­höfum hennar til greiðslu skaða- og miska­bóta vegna meintrar nauð­ung­ar­vinnu, van­virð­andi með­ferðar og van­greiddra launa.

Þá er fyr­ir­tæk­inu Eldum rétt stefnt sam­kvæmt ákvæði í lögum um starfs­manna­leigur um að not­enda­fyr­ir­tæki beri óskipta ábyrgð á grund­velli þjón­ustu­samn­ings á van­goldnum lág­marks­launum sem og öðrum van­greiðslum vegna starfs­manna starfs­manna­leigu. Fram kemur í stefn­unni að Eldum rétt hafi verið send kröfu­bréf vegna máls­ins þann 17. apríl 2019 en fyr­ir­tækið hafnað kröf­unum.

Segja Menn í vinnu hafa nýtt sér veika stöðu sína

Rúmensku rík­is­borg­ar­arnir komu til Íslands á vegum MIV ehf. (sem áður hét Menn í vinnu ehf.) í árs­byrjun og dvöldu í iðn­að­ar­hús­næði í Kópavogi. Fjallað var tals­vert um málið í fjöl­miðlum eftir að ASÍ hafði kallað saman full­trúa Vinnu­eft­ir­lits­ins, Vinnu­mála­stofn­unar, rík­is­skatt­stjóra og lög­reglu vegna ástands­ins.

„Tugir starfs­manna frá Rúmeníu hír­ast í her­bergjum, allt að tíu saman, en borga þó fimm­tíu þús­und krónur á mán­uði fyrir,“ segir í til­kynn­ingu sem Efling gaf út 8. febr­úar. „Í ráðn­ing­ar­samn­ingi frá fyr­ir­tæk­inu sem Efling-stétt­ar­fé­lag hefur undir höndum er klausa sem segir að und­ir­rit­aður skuldi leigu sem Menn í vinnu megi draga frá launum, án þess að upp­hæð eða nokk­urs konar leigu­vernd sé til­tekin.“

Málið var þing­fest í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í síð­ustu viku en Rúm­en­arnir segja MIV ehf. hafa boðið sér vinnu á fölskum for­sendum og nýtt sér bág­indi þeirra og fákunn­áttu á íslenskum lögum. Gerður hafi verið ráðn­ing­ar­samn­ingur þar sem áskil­inn var ólög­mætur, óhóf­legur og ósann­gjarn réttur til frá­dráttar af launa­greiðslum. Lagðir eru fram launa­seðlar, reikn­ings­yf­ir­lit og önnur gögn þessu til stuðn­ings og krefj­ast stefn­endur hver um sig um 1,7 millj­óna króna vegna tjóns­ins.

„Stefn­endur lögðu mikið á sig til þess að flytja frá sínum heim­ilum og fjöl­skyldum og hefja störf hér á landi og hafa hlotið óbæt­an­legt tjón þar af,“ segir í stefn­unni sem Stundin hefur undir höndum, en Réttur lög­manns­stofa fer með málið.

Vill gera upp við Rúmenanna með sanngjörnum hætti

Eldum rétt, fyr­ir­tæki sem býður við­skipta­vinum upp á reglu­lega heim­send­ingu á hrá­efnum og mat­ar­upp­skriftum, leigði starfs­fram­lag Rúm­en­anna af Mönnum í vinnu. Krist­ó­fer Júlíus Leifsson, fram­kvæmda­stjóri Eldum rétt, segir að kröfur Rúm­en­anna hafi komið sér í opna skjöldu.

„Við erum alveg til í að gera allt sem gera þarf til að gera upp við þá. Við buðum mönn­unum að koma í fullt starf hjá okkur þegar þetta mál kom upp. Við höfðum spurt þá áður hvort allt væri í lagi og fengum engin svör önnur svör en að svo væri,“ segir hann í sam­tali við Stundina.

„Við vissum að ef það yrði eitt­hvað vesen myndum við tryggja að þeir fengju sín laun. Málið er bara að eng­inn hefur talað við okkur beint. Við fáum bara bréf frá lög­fræð­ingum þar sem við erum beðin um að greiða starfs­mönnum fyrir alla liði sem voru teknir af þeim.“

Krist­ó­fer leggur áherslu að á því tveggja vikna tíma­bili sem málið snýst um hafi Rúm­en­arnir aðeins unnið hjá Eldum rétt í fjóra daga. „Við hljótum alla­vega að mega eiga sam­ræður og kom­ast að ein­hverjum skiln­ingi um hvað raun­veru­lega átti sér stað. Ef þeir fengu raun­veru­lega fyr­ir­fram­greidd laun, af hverju erum við þá að greiða 200 þús­und kall á haus og fleiri hund­ruð þús­und í lög­fræði­kostnað fyrir starfs­menn sem unnu bara í fjóra daga hjá okkur að með­al­tali á þessu tveggja vikna tíma­bili sem er verið að krefja okkur um?“

Brá þegar annað „fíaskó“ kom upp

Frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kveikur fjall­aði með ítar­legum hætti um mál­efni Manna í vinnu í fyrra. Aðspurður hvort stjórn­endur Eldum rétt hafi ekki vitað af fyrri vand­ræða­málum starfs­manna­leig­unnar þegar samið var við hana segir Krist­ó­fer: 

„Það hafði áður komið til sagna að það væri ekki allt í lagi hjá Mönnum í vinnu. En þegar við tölum við þá í jan­úar hafði fyr­ir­tækið starfað í nokkra mán­uði í við­bót, fengið samn­inga hjá Vinnu­mála­stofnun og klárað samn­inga við starfs­menn sína. Þá áttu þau að vera með allt upp á tíu. Ef það voru ein­hverjir sem væri hægt að treysta á þessu stigi máls þá voru það þeir, því þeir höfðu unnið alla sína heima­vinnu. Þetta kemur okkur svo í opna skjöldu mán­uði seinna þegar það er aftur eitt­hvað fíaskó í gangi.“

„Þetta kemur okkur svo í opna skjöldu mán­uði seinna þegar það er aftur eitt­hvað fíaskó í gangi“

Krist­ó­fer segir enga nið­ur­stöðu hafa feng­ist í málið. „Ég skil enn ekki hvað er rétt og rangt í þessu ef ég á að vera alveg hrein­skil­inn. Ég vil bara að gert sé upp við þetta fólk, en á réttum for­sendum. Við erum ekki að fara að borga þeim eitt­hvað aftur sem það fékk, og ein­hvern lög­fræði­kostnað og miska­bætur, þetta er bara út í hött. Ef þeir fengu ekki rétt greitt þá berum við ábyrgð á því og ég er til í að ganga frá því í dag, en starfs­menn­irnir unnu hjá okkur í fjóra daga á þessu tveggja vikna tíma­bili. Það er verið að krefja okkur um flug­miða og fyr­ir­fram­greiddu launin þeirra en það hefur eng­inn sýnt fram á að þeir hafi ekki fengið fyr­ir­fram­greiddu launin sem voru skráð. Það hefur eng­inn sýnt fram á að það sé ólög­legt að draga af þeim, af fyrsta launa­seðli, flug­miða til lands­ins. Það var upp­haf­lega samið um að það væri partur af þessu sam­komu­lagi og við vitum ekki betur en að Vinnu­mála­stofnun hafi skrifað upp á að þetta væri allt í lagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár