Ísland í hnotskurn gegnum sópransöng

Tón­leika­röðin Uppi og niðri og þar í miðju - úr alfara­leið fer fram á sér­völdum íslenskum stöðum í júlí.

Ísland í hnotskurn gegnum sópransöng
Í Tjarn­ar­gíg í Laka­gígum Tón­leik­arnir í Laka­gígum fara fram 11. júlí næst­kom­andi. Mynd: Úr einkasafni

Í júlí banka fornir tímar upp á í Tjarn­ar­gíg í Laka­gígum, Akra­nes­vita, Stef­áns­helli í Hall­mund­ar­hrauni, Lýsistank­inum í Djúpavík, í Botns­tjörn í Ásbyrgi og á Emel­íu­klöppum í Grímsey. Þá fer tón­leika­röðin Uppi og niðri og þar í miðju - úr alfara­leið fram á þessum ein­stöku stöðum, þar sem flutt verða íslensk þjóð­lög sem eiga það sam­eig­in­legt að tjá mann­lega til­veru. Það er sópran­söng­konan Anna Jóns­dóttir sem stendur að við­burð­unum en hún hefur reynslu af því að flytja lög úti í nátt­úr­unni, sem hún segir engu líkt. „Ég hef reynslu af því að flytja lögin svona beint fram af munni og hef fundið hvað þetta er kröft­ugur og gjöf­ull mið­ill í senn, að gera það í þessu nána umhverfi á svona mögn­uðum stöðum. Á stundum sem þessum verður til sam­runi tón­listar, ljóð­listar, sam­veru og tengsla fólks á milli. Allt rennur saman í eitt.“

Anna gaf út plötu árið 2015 og fór …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár