Baudenbacher fjallar um Icesave og hnýtir í Ólaf Ragnar

Fyrr­ver­andi for­seti EFTA-dóm­stóls­ins snertir á ýmsum málum er varða Ísland í æviminn­inga­bók sem kom út fyrr á þessu ári.

Dómaraminningar
Dóm­ara­minn­ingar Carl Baudenbacher, fyrr­ver­andi for­seti EFTA-dóm­stóls­ins, gaf nýlega út æviminn­inga­bók þar sem snert er á ýmsum málum er varða Ísland.

Carl Baudenbacher, fyrr­ver­andi for­seti EFTA-dóm­stóls­ins, hafði aldrei trú á því að Ísland myndi ganga í Evr­ópu­sam­bandið. „Allt frá upp­hafi virt­ist mér aðild­ar­um­sóknin vera örvænt­ing­ar­full til­raun til að bjarga íslensku efna­hags­lífi. Rík­is­stjórn Jóhönnu vildi stökkva í fangið á ESB, sam­bandi sem kom svo sann­ar­lega ekki vel fram við Íslend­inga í Icesave-mál­inu.“ 

Þetta segir Baudenbacher í æviminn­inga­bók sinni sem kom út fyrr á þessu ári, Judicial Independence: Memoirs of a European Judge. Í bók­inni fer hann yfir feril sinn hjá EFTA-dóm­stólnum og fjallar um ýmis stefnu­mark­andi mál sem hann dæmdi í. Frægastur er Icesave-dóm­ur­inn þar sem Íslend­ingar unnu fulln­að­ar­sigur og kröfum um rík­is­á­byrgð á inni­stæðum Breta og Hol­lend­inga var hafnað. 

Baudenbacher segir að kvöldið fyrir upp­kvaðn­ingu Icesave-dóms­ins hafi hann boðið dóm­urum og dóm­rit­urum heim til sín og eldað fyrir þá. Eig­in­kona hans, Doris Baudenbacher-Tandler, var vant við látin – „svo þetta var stráka­kvöld,“ segir hann.

Lét ekki undan …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár