Sigmundur Davíð hitti Douglas Murray, manninn sem segir Evrópu vera að deyja vegna innflytjenda

Breskur aft­ur­halds­maður sem segir að Evrópa sé að „fremja sjálfs­morð“ hitti Sigmund Davíð Gunn­laugs­son í Alþing­is­hús­inu í gær.

Sigmundur Davíð hitti Douglas Murray, manninn sem segir Evrópu vera að deyja vegna innflytjenda

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Mið­flokks­ins, hitti breska rit­höf­und­inn og blaða­mann­inn Douglas Murray í gær. 

„Sönn ánægja að hitta Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í íslenska þing­hús­inu,“ skrifar Douglas Murray á Twitter og birtir mynd af þeim kump­ánum.

Bretinn flutti fyr­ir­lestur í Hörpu í gær­kvöldi en hann er þekktur fyrir skrif sín í breskum dag­blöðum og höf­undur bók­ar­innar Dauði Evrópu: Inn­flytj­endur, sjálfs­mynd, íslam sem nýlega kom út í þýð­ingu Jóns Magn­ús­sonar, lög­manns og fyrr­ver­andi þing­manns. Félagið Tján­ing­ar­frelsið gaf út bók­ina og skipu­lagði við­burð­inn, en þjóð­ern­is­hyggju­sam­tökin Vakur tóku þátt í að kynn­ingu á honum.

„Evrópa er að fremja sjálfs­morð,“ segir Murray í inn­gangs­orðum bók­ar­innar sem fjallar með gagn­rýnum hætti um fjöl­menn­ing­ar­hyggju og fjölgun inn­flytj­enda í Evrópu. Heldur Murray því fram að þöggun ríki um inn­flytj­enda­mál á Vest­ur­löndum, meðal ann­ars vegna þess að Evr­ópu­menn séu þjak­aðir af sekt­ar­kennd vegna nýlendu­stefnu for­tíðar.

Hér má sjá Steve Bannon, Viktor Orbán, Douglas Murray og fleiri.

Einn af aðdá­endum Murray er Viktor Orbán, for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands, sem rekið hefur harða inn­flytj­enda­stefnu síðan hann tók við emb­ætti árið 2010. Orbán hefur birt mynd af sér á Facebook við lestur Dauða Evrópu og í fyrra bauð hann Douglas Murray til mót­töku í ung­verska þing­hús­inu ásamt Stephen K. Bannon, fyrr­ver­andi kosn­inga­stjóra Donalds Trump og fleirum.

Sig­mundur Davíð hefur gagn­rýnt „póli­tíska rétt­hugsun“ og ekki hikað við að beita þjóð­ern­is­sinn­aðri orð­ræðu. Nýlega köll­uðu tveir félagar hans í þing­flokki Mið­flokks­ins eftir því að frum­varp dóms­mála­ráð­herra um herta útlend­inga­lög­gjöf yrði tekið sem fyrst á dag­skrá Alþingis til að spara rík­inu fjár­muni í útlend­inga­málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár