Sérfræðingar vöruðu við sandflutningi við Landeyjahöfn strax árið 2005

Tveir aðilar í Danmörku van­mátu vand­ann við sand­flutn­inga áður en fram­kvæmdir hófust við Land­eyja­höfn. Fræði­menn við Háskól­ann í Lundi höfðu bent á að huga þyrfti að sand­flutn­ingum. Höfnin hefur verið ónot­hæf á vet­urna og nýr Herj­ólfur sem milda á vand­ann er ekki kom­inn í notkun.

Herjólfur
Herj­ólfur Nýr Herj­ólfur ristir grynnra en sá gamli og vonir standa því til að hann eigi auð­veld­ara með að sigla inn í Land­eyja­höfn. Mynd: Aðsend mynd

Huga þyrfti sér­stak­lega að sand­flutn­ingum og áhrifum þeirra á höfn­ina ef Land­eyja­höfn kæmi til fram­kvæmda. Þetta kemur fram í áliti sem Magnus Larson og Hans Hanson hjá Háskól­anum í Lundi skrif­uðu árið 2005. Í kjöl­farið van­mátu danskir aðilar vand­ann. Land­eyja­höfn hefur verið ónot­hæf á vet­urna vegna þessa und­an­farin ár og hefur það gert sam­göngur milli lands og Vest­manna­eyja erf­ið­ari.

Í álit­inu, sem Stundin hefur undir höndum, er fjallað um hug­myndir um bygg­ingu hafn­ar­innar á öðrum stað í fjör­unni en úr varð, en fram­kvæmdir hófust þegar lög um höfn­ina voru sam­þykkt á Alþingi árið 2008 og verk­efnið var boðið út. Álitið var unnið fyrir Sigl­inga­stofnun, sem síðar varð hluti af Vega­gerð­inni, og hafa Larson og Hanson reglu­lega veitt stofn­un­inni ráð­gjöf í málum sem tengj­ast sand­flutn­ingum og dýpkun hafn­ar­innar.

Í álit­inu er bent á að árósar Mark­ar­fljóts, austan við fyr­ir­hug­aða höfn, hafi færst veru­lega til á und­an­förnum ára­tugum. Þetta gefi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár